Þjóðviljinn - 22.04.1986, Blaðsíða 1
Pétur Guðmundsson skoraði 7 stig þegar Los Angeles
Lakers unnu sinn annan stórsigur á San Antonio Spurs,
122-94, í 16-Iiða úrslitum bandarísku NBA-deildarinnar í
körfuknattlcik á laugardagskvöldið. Lakers þurfa nú aðeins
að sigra Spurs einu sinni í viðbót til að komast á fram, og eiga
til þess þrjá leiki.
Boston Celtics, Houston Rockets, Atlanta Hawks, Dallas
Mavericks og Milwaukee Bucks eru einnig komin með 2-0
forystu í sínum einvígjum en annars staðar er staðan 1-1 eða
1-0.
—VS/Reuteq
NBA-deildin
Annar stórsigur
Asgeir hafnaði
gylliboði Kölnar
Frá Jóni H.Garðarssyni fréttamanni Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
Asgeir Sigurvinsson hafnaði um hclgina góðu tilboði frá Köln
um að leika með liðinu í Bundesligunni í knattspyrnu næsta
vetur. Það er nokkuð öruggt að hann leikur áfram með Stuttgart
og eins og hann hefur leikið undanfarið má liðið ekki fyrir
nokkra muni sjá á bak honum.
Schalke ætlar sér stóra hluti næsta vetur og er í þann veginn að
kaupa landsliðsmennina Hannes og Mill frá Mönchengladbach
og Wegmann, framherja frá Dortmund.
Jan Svensson, Svíi sem hefur verið besti leikmaður Frankfurt
sl. tvö ár, er á förum heim til Svíþjóðar, þrátt fyrir að félagið
bjóði honum gull og græna skóga fyrir að vera áfram. Ástæðan
er sú að mengunin í Frankfurt hefur slæm áhrif á dóttur hans
sem verður að breyta um umhverfi.
Frank Lippmann, austur-þýski flóttamaðurinn sem varð eftir
þegar Dynamo Dresden lék gegn Bayer Uérdingen í Evrópu-
keppninni fyrr í vor, hefur gengið til liðs við Nurnberg. Hann
má ekki leika fyrr en eftir eitt ár, samkvæmt reglum um Aust-
ur-Evrópubúa sem flýja vestur.
Stefan Kunz hjá Bochum, markahæsti leikmaður Bundeslig-
unnar, hefur fengið freistandi tilboð um að leika með Sören
Lerby og félögum í Monaco næsta vetur.
NM/pilta
Þriðja sæti
í Danmörku
England
Þrenna frá
Martin miðverði
West Ham vann 8-1 og er í3. sæti
ísland hafnaði í 3. saeti á Norð-
urlandamóti pilta í handknattleik
sem lauk í Danmörku á sunnu-
daginn. Liðið vann þrjá leiki en
tapaði tveimur.
Fyrst tapaði ísland 19-27 gegn
Svíþjóð, sem vann yfirburðasigur
í keppninni. Þá kom tap gegn
Noregi, 23-25, eftir að íslensku
piltarnir höfðu verið yfir rétt fyrir
leikslok. Síðan unnust sigrar á
Grænlendingum, 44-17, Dönum
21-17 og Færeyingum, 29-19.
West Ham þeyttist uppí 3. sæti
1. deildar ensku knattspyrnunnar
með risasigri, 8-1, á Newcastle á
Upton Park í gærkvöldi. Með
þessum úrslitum á Lundúnaliðið
enn möguleika á að hreppa
meistaratitilinn, er 7 stigum á
eftir Liverpool og Everton en á
1-2 leiki til góða.
Sóknardúettinn McAvennie/
Cottee, sem hefur gert bróður-
part marka West Ham í vetur,
hafði ótrúlega hljótt um sig,
McAvennie skoraði eitt mark,
það sjöunda í röðinni, en Cottee
ekkert. Landsliðsmiðvörðurinn
sterki, Alvin Martin, gerði hins-
vegar sína fyrstu þrennu fyrir fé-
lagið og félagar hans í vörninni,
Neil Orr og Ray Stewart,
skoruðu líka. Paul Goddard,
McAvennie og Glenn Roeder,
fyrirliði Newcastle með sjálfs-
mark, sáu um hin.
Staðan var 4-0 í hálfleik og þá
varð Martin Thomas markvörður
Newcastle að hætta vegrja
meiðsla. Chris Hedworht, tengi-
liður fór þá í markið en hann
meiddist eftir 20 mínútur og Pet-
er Beardsley lék milli stanganna
það sem eftir var. Billy White-
hurst skoraði mark Newcastle,
minnkaði þá muninn í 5-1.
Watford og Nottingham Forest
skildu jöfn, 1-1, á Vicarage
Road. Þessi úrslit hafa verið færð
innt' stöðuna á bls. 12.
—VS/Reuter
Taumlaus glefti íslensku landsliðsþjálfaranna, Gunnar Þorvarðarson og Einar Bollason fagna
óvæntum sigri íslands í C-riðlinum í körfuknattleik. Nánar í opnu. Mynd: E.ÓI.
Knattspyrna
Enn jafnt
Breiðablik gerði sitt þriðja
jafntefli í jafnmörgum leikjum í
Litlu bikarkeppninni á laugar-
daginn. Það var gegn 1A og úrslit
1-1. Keflvíkingar sigruðu Hauka
3-0. ÍA hefur 3 stig, ÍBK 3,
Breiðablik 3, FH 1 og Haukar
ekkert stig. Blikar hafa leikið 3
leiki, hin 2 nema FH aðeins einn
leik.
—VS
Knattspyrna
Ekkert mark
Wales og Uruguay gerðu
markalaust jafntefli í vináttu-
landsleik sem fram fór í Wrex-
ham í gærkvöldi. Leikurinn var
jafn en lítið um markverð færi.
—VS/Reuter
—VS
Spjótkast
íris með
Körfubolti
Norðmenn náðu hefndum
Sigruðu ísland 89-85 í Keflavík ígœrkvöldi
nýtt met
íris Grönfeldt bætti íslandsmet
sitt í spjótkasti á móti í Bandaríkj-
unum um helgina. Hún þeytti
spjótinu 59,12 metra en gamla
metið hennar var 58,24 metrar.
Arangur hennar á þessum árs-
tíma gefur góðar vonir um að hún
nái 60 metra markinu fyrr en var-
ir- —VS
Norðmenn náðu að hefna fyrir
ófarirnar í Evrópuleiknum á
laugardaginn með því að sigra ís-
lenska landsliðið 89-85 í Keflavík
í gærkvöldi.
Norðmenn náðu góðu forskoti
strax í byrjun. 12-1, og voru yfir
til leiksloka. Island saxaði á for-
ystuna þegar líða tók á fyrri hálf-
leik, minnst munaði 37-40 en
staðan var 44-48 í hléi. í seinni
hálfleik var munurinn 6-9 stig,
nær komst íslenska liðið ekki fyrr
en 2 sekúndum fyrir leikslok þeg-
ar Valur Ingimundarson skoraði
3ja stiga körfu. Lokatölur 85-89
en sigur Norðmanna ekki í neinni
hættu í lokin.
Miklu munaði að Norðmenn
höfðu góðar gætur á Val og Pálm-
ari Sigurðssyni sem komust ekki
á blað fyrr en undir lok fyrri hálf-
leiks. Guðni Guðnason og Páll
Kolbeinsson nýttu sér aukið at-
hafnafrelsi og léku báðir mjög vel
og þeir Valur og Pálmar voru
drjúgir í seinni hálfleiknum.
Hinir hávöxnu Norðmenn
voru sannfærandi og nýttu hæð-
ina betur en á laugardaginn. Það
er ótrúlegt að þeir skuli þá aðeins
hafa tekið 28 fráköst gegn 40 frá-
köstum íslands. Austerfjörd og
Posti voru bestu menn liðsins.
Stig íslands: Valur 17, Guöni 17, Pálm-
ar 15, Páll 9, Símon Olafsson 6, Torfi
Magnússon 5, Þorvaldur Geirsson 4, Tóm-
as Holton 4, Ragnar Torfason 4, Jón Kr.
Gíslason 2 og Birgir Mikaelsson 2.
Stig Noregs: Ausferfjörd 26, Posti 20,
Bryn 11, Frey 11, Grönli 10, Beck 6, Nettli 3
og Halvorsen 2.
Robert Persson og Jón Otti Ólafsson
dæmdu leikinn ágætlega.
—SÓM/Suðurnesjum
UMSJÓN: VfÐIR SIGURÐSSON
Þriðjudagur 22. apríl 1986 -ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9