Þjóðviljinn - 12.11.1986, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 12.11.1986, Blaðsíða 3
 FRETT1R Alþýðubandalagið Ekki forval á Reykjanesi Á fundi kjördæmisaráðs Al- þýðubandalagsins á Reykjanesi í fyrrakvöld var kjörnefnd falið að gera tillögur að uppstillingu á framboðslista flokksins við næstu alþingiskosningar. Þá var því fagnað að Geir Gunnarsson hafí gefið kost á sér í 1. sæti listans og Olafur Ragnar Grímssson í 2. sætið. Á fundinum sagði Geir Gunn- arsson að hann fagnaði þeim liðs- auka sem óneitanlega væri að Ólafi Ragnari og kvaðst sjá fram á harða og spennandi kosninga- baráttu þar sem markmiðið væri að koma tveimur Alþýðubanda- lagsmönnum inn á þing. Ólafur Ragnar sagði í sinni ræðu að hann hlakkaði til að vinna með nýju fólki í Reykjaneskjördæmi og að kosningabaráttan væri hafin. Á Reykjanesi yrði tekist á um meg- inmálin í íslenskri pólitík og Al- þýðubandalagið ætti þar sem og annars staðar góðan málstað að verja. -v. Hjálparstofnun Sitja sem fastast Engin mannaskipti hjá Hjálparstofnun. Stjórn ákveður að selja Engihlíð 9. Kostnaði við rekstur verði haldið niðri Ég taldi rétt að ég, Guðmundur Einarsson framkvæmdastjóri og framkvæmdanefnd létum af störfum og gerði tiilögu um það á stjórnarfundinum, en mér snérist síðan hugur á fundinum og niður- staða hans varð önnur, sagði Er- ling Aspelund, stjórnarformaður Hjálparstofnunar kirkjunnar í samtali við Þjóðviljann í gær. Nú er ljóst að sú gagnrýni sem fram hefur komið á starfsemi Hjálparstofnunar leiðir ekki til þess að starfsmenn eða stjórnar- menn láti af störfum. Stjórn stofnunarinnar fundaði í átta klukkutíma um þessa gagnrýni í fyrradag og komst þar að þeirri niðurstöðu að starfsmenn skyldu sitja sem fastast. í yfirlýsingu stjórnarinnar segir að hún telji það ábyrgðarleysi að forstöðu- menn hverfi frá störfum nú og lýsir yfir fullu trausti á fram- kvæmdastjóra og starfsmenn stofnunarinnar. Erling sagðist í gær telja að hægt yrði að skapa á ný trúnað- artraust milli almennings og Hjálparstofnunar, enda þótt sömu menn yrðu í forystu fyrir henni. Hann sagði að reynt yrði að gera bragarbót á starfseminni og bæta það sem aflaga hefur far- ið. Stjórnin hefur samþykkt að selja húseignina að Engihlíð 9, sem stofnunin keypti í haust á 10 miljónir króna. Þá segir í yfirlýs- ingu stjórnarinnar að öllum ráðum verði beitt til að halda rekstrarkostnaði niðri, sem og kostnaði við ferðalög starfs- manna erlendis. Stjórnin segist einnig munu sjá til þess að að- halds verði gætt í viðskiptum Hjálparstofnunar við önnur fyrir- tæki. í yfirlýsingu sinni vísar stjórnin á bug sögusögnum um fjármála- misferli og óheiðarleika í rekstri Hjálparstofnunar. -gg Kjaramál Viljum reyna nýjar leiðir Trésmiðafélag Reykjavíkur samþykkir aðfara sjálft með samninganœst. SamstarfviðS.B.M. verðurrœtt. Grétar Þorsteinsson: Munum berjastmeð oddi og eggfyrir afnámi tvöfalda launakerfisins Trésmiðafélag Reykjavíkur hefur ákveðið að fara sjálft með samninga í komandi samningum eða í samstarfí við aðildarfélög S.B.M., en í samningunum mun félagið leggja áherslu á að taxtar félagsins verði færðir sem næst greiddu kaupi, og ákvæðisvinna fái hliðstæðar leiðréttingar. Grétar Þorsteinsson hjá Tré- smiðafélagi Reykjavíkur sagði að samþykktin hefði verið gerð í ljósi þess að í undanförnum samningum hefði ekki tekist að afnema muninn á milli taxtalauna og greiddra launa. Það væri því full ástæða til þess að reyna nýjar leiðir að því marki. „Menn vilja líka hafa á hreinu og það verður undirstrikað að að þessu sinni ætla menn sér að ná árangri hvað þetta varðar. Það er auðvitað vonandi að aðrir félagar okkar í hreyfingunni vilji halda eins á málum og berjast með oddi og egg fýrir því að tvöfalda launa- kerfið verði afnumið,“ sagði Grétar. -K.Ól. Erling Aspelund og félagar í Hjálparstofnun ætla að sitja áfram þrátt fyrir óvægna gagnrýni á starfsemi Hjálparstofnunar. Reynt verður að bæta ýmsa þætti í rekstrinum og losa stofnunina við 10 miljón króna húseign að Engihlíð 9, sem er á innfelldu myndinni. Mynd. Sig. Hvað finnst þeim um jafna&arstjórn? % Jón Baldvin Tökum ekki afstöðu fyrirfram Guðrún Agnarsdóttir Raunhæf- ur möguleiki i Karvel Pálmason Pú ert ekki að tala við Jón Balvin „AlþýÖubandalagið setti fram þessar sömu hugmyndir í ársbyrjun 1985 með yfírskriftinni Nýtt landstjórnarafl, en undirtektir urðu dræmar og jafnvel engar,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson þegar hann var spurður álits á stjórnarmyndun með Alþýðubandalagi og Kvennalista. „Eina breytingin síðan þá er sú að Alþýðuflokkurinn hefur styrkt stöðu sína verulega. Ég tel þennan möguleika enn ákaflega ólíklegan og óraunhæfan. Ef Alþýðubandalagsmenn meina með þessu útspili ólafs Ragnars tilboð um kosningabandalag, þá höfnum við því algjörlega. Varðandi skilyrði til Alþýðuflokksins um breytta stefnu í öryggismálum þá neitum við því. Annað skilyrði var að Alþýðuflokkurinn hafnaði al- gjörlega þeim valkosti í stjómarmyndun sem kallast Við- reisn. Það gerum við ekki. Auk þessa fer því fjarri að eining sé meðal forystu- manna Álþýðubandalagsins um þessa hugmynd og nefni ég sérstaklega Þröst Ólafsson. Skoðanir hans um þriggja-1 flokka stjórn með Sjálfstæðisflokki eiga verulegu fylgi að fagna meðal forystumanna Alþýðubandalagsins og einn- ig Alþýðuflokks. Mér líst miklu betur á slíka stjórn en hugmyndir Alþýðubandalagsins. Hvað varðar Kvennalistann þá tel ég hann ákaflega ósennilegan stj órnarmyndunarkost. Kvennalistinn neitar að taka afstöðu til tillögu Alla- balla fyrirfram og það gemm við líka. Með því er þessi hugmynd í rauninni úr sögunni." _vtj. „Möguleiki á nýrri jafnaðarstjórn er jafn raunhæfur og hver annar, það veltur á málefnagrundvelli,“ sagði Guðrún Agnarsdóttir formaður þingflokks Kvennalist- ans þegar hún var innt álits á nýrri jafnaðarstjórn. „Ennþá eru þetta bara dagdraumar sem hafa verið settir á flot og það kemur í ljós eftir að úrslit kosninga liggja fyrir hvaða möguleikar verða á ríkisstjórn," sagði Guðrún. „Við höldum þeirri stefnu að við erum viðræð- ufúsar við alla sem vilja við okkur tala, en höfum ekki tekið afstöðu fyrirfram um gerð einnar stjórnar frekar en annarrar. Hvað varðar ummæli Jóns Baldvins um að Kvennalist- inn sé óstjórnhæfur flokkur þá vísa ég því algerlega á bug en beini því til Jóns Baldvins að hann kynni sér valddreif- ingarvinnubrögð Kvennalistans, það væri hollt fyrir hann að kynnast virku lýðræði. Þessi skætingur hans lýsir betur hans eigin vinnubrögðum en vinnubrögðum Kvennalist- ans. Það hefur ekki vafist fyrir okkur að sinna þingstörf- um og það mun ekki vefjast fyrir okkur að sitja í ríkis- stjórn.“ -vd. „Mér lísí ekkert sérstaklega vel á þær, reynslan hefur sýnt að það eru litlar líkur á því að það verði margt sameiginlegt gert af viti,“ sagði Karvel Pálmason þing- maður Alþýðuflokksins þegar hann var inntur álits á hugmyndum Alþýðubandalags um nýja jafnaðarstjórn. -Telur þú að jafnaðarstefnunni sé betur borgið í sam- starfi með Sjálfstæðisflokki? „Það sagði ég ekki, þú ert ekki að tala við Jón Baldvin núna. Ég hef enga draumastjórn í huganum og reynslan verður að skera úr um það hvar næst málefnaleg sam- staða. Ég hef ekki mikla trú á að það takist samstarf milli þessara flokka um að mynda stjórn sem hafi stefnumark- andi áhrif. En það væru aðrar stjórnir vitlausari en stjórn Sjálf- stæðisflokks, Alþýðubandalags og Alþýðuflokks. Ég vil ekki hryggbrjóta Alþýðubandalagið fyrirfram, þar geta menn vitkast einsog annars staðar.“ -vd. Mlðvikudagur 12. nóvember 1986 þjÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.