Þjóðviljinn - 30.01.1987, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 30.01.1987, Blaðsíða 1
Föstudagur 30. janúar 1987 23. tölublað 52. örgangur Farmenn/útgerðarmenn Kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd Jón Baldvin einn á móti Afnorrœnum krataforingjum er aðeins Jón Baldvin á móti fyrsta skrefi stjórnanna til athugunar. Utanríkisráðherra þœfirmálið, -óljóstumafstöðuhans Jón Baldvin Hannibalsson lýsti í gær yfir andstöðu íslenskra krata við skipan norrænnar emb- ættisnefndar til að kanna mögu- leika á stofnun kjarnorkuvopna- lauss svæðis á Norðurlöndum. Aðrir krataforingjar á Norður- löndum og reyndar allir forsætis- Húsnœðisstofnun Ósamið við 5 sjóði Það gengur alveg prýðilega að semja við lífeyrissjóðina um skuldabréfakaup, sagði Sigurður E. Guðmundsson í Húsnæðis- stofnun við Þjóðviljann í gær Eftir er að semja við fimm sjóði og er gert ráð fyrir að fjórir þeirra muni kaupa bréf. Það eru Eftirlaunasjóður starfsmanna Útvegsbankans, Líf- eyrissjóður bænda, Lífeyrissjóð- ur Iðju á Akureyri og Eftirlauna- sjóður starfsmanna Keflavíkur- kaupstaðar. Óvíst er að Eftir- launasjóður atvinnuflugmanna semji. Sjóðirnir sem þegar hefur ver- ið samið við munu að sögn Sig- urðar kaupa fyrir minnst 3,3 milljarða á ári a.m.k. út 1988. Sigurður sagði jafnframt í gær að hann treysti því að í upphafi næsta mánaðar yrði að fullu hægt að tryggja lánsloforð innan 8 vikna frá því fullgild umsókn liggur fyrir. -gg ráðherrar hinna landanna fjög- urra hafa lýst yfir stuðningi við skipan nefndarinnar. Fyrirhugað er að utanríkisráð- herrafundur Norðurlanda verði haldinn hér í Reykjavík 25. og 26. mars og á þá að ákveða hvort af skipun nefndarinnar verður. Fullyrt hefur verið í norska dag- blaðinu Aftenposten að íslenski utanríkisráðherrann standi í vegi fyrir skipan nefndarinnar en svör hans á alþingi í gær voru nokkuð óljós. Hann vísaði til samþykktar alþingis um afvopnunarmál frá 23. maí 1985 þar sem hvatt er til að könnuð verði samstaða um kjarnorkuvopnalausa Norður- Evrópu í Iandi, lofti og á og í haf- inu. Yrði ekki farið að ályktun alþingis að þessu leyti, þ.e. að umrætt kjarnorkuvopnalaust svæði væri stærra en Norður- löndin ein, teldi hann ekki ást- æðu til skipunar nefndarinnar. Umræðurnar spunnust í fram- haldi af þingsályktunartillögu sem Guðrún Agnarsdóttir flytu ásamt Haraldi Olafssyni og Sva vari Gestssyni. Þau Guðrún o Svavar lögðu áherslu á mikilvæg þess að íslendingar tækju fr; upphafi fullan þátt í undirbúning og umræðum um þessi mikilvægi mál og benti Guðrún m.a. á ai 86% þeirra sem afstöðu tóku skoðanakönnun hér á árinu 198i voru fylgjandi stofnui kjarnorkuvopnalausra svæða Sagði hún óskiljanlegt hvernij menn nú beittu ályktun alþingi um afvopnun fyrir sig sem þrö skuldi í vegi þessara umræðna Svavar Gestsson skoraði í viðreisnarmeirihlutann sen þarna kæmi fram enn eim ganginn að manna sig uppí að af greiða tillöguna frá þinginu. Þat dygði ekki að skríða með han; um baksali og beita þingsköpun til að drepa málið. -Á) Sjá bls. 5 Sjálfstæðisflokkurinn Málefnalega gjaldþrota Helena Albertsdóttir í Mannlífsviðtali: Nœrist eingöngu á kommagrýl- unni. Utilokar ekki sér- framboð föður síns verði honum bolað úr 1. sœt i -Sjálfstæðisflokkurinn þrífst á einu, hann þrífst á svokallaðri kommagrýlu. Það er afskaplega algengt að þegar maður er að vinna í kosningum, að fóik segist vera hundóánægt með flokkinn, en það eigi ekki annarra kosta völ, segir Helena Albertsdóttir Guðmundssonar m.a. í viðtali við nýútkomið Mannlíf og bætir við að flokkurinn sé að verða mál- efnalega gjaldþrota. Helena tekur upp hanskann fyrir föður sinn og segir að flokks- forystan, -„pínulítil mafía“ þoli ekki menn með sjálfstæðar skoð- anir. Helena segir jafnframt að eina leiðin til að flokkurinn hangi saman í Reykjavík sé að hann hlíti niðurstöðum prófkjörsins þar sem Albert hlaut 1. sætið. Hún útilokar ekki sérframboð ef Alberti verður ýtt úr efsta sætinu. -*g- Sáttatillagan var kolfelld Felld einróma afvinnuveitendum og afmeginþorra farmanna. Guðlaugur Þorvaldsson: Staðan verður svipuð. Getur ekki versnað. Birgir Björgvinsson: Meiri harka getur hlaupið ídeiluna. Farmenn tilbúnir í átökfram á vor efþess geristþörf Tillaga ríkissáttasemjara, Guð- laugs Þorvaldssonar, til iausnar deilu farmanna og vinnu- veitenda var kolfelld í gærkvöldi af báðum samningsaðilum. Ein- róma af þeim 12 fulltrúum vinnu- veitenda sem greiddu atkvæði og af 116 farmönnum sem greiddu atkvæði samþykktu aðeins 9. Samkvæmt tillögu sáttasemj- ara er í fyrsta lagi gert ráð fyrir að grunnlaun hækki um 7 1/2% en vinnuveitendur hafa boðið 6%. Krafa sjómanna hefur hljóðað uppá 48% hækkun. í þessari til- lögu er gert ráð fyrir að byrjunar- laun háseta verði 26.500 krónur. Þá er gert ráð fyrir 5% hækkun á árinu. Tillaga sáttasemjara um yfirvinnuálag er það sama og vinnuveitendur hafa boðið, þ.e.a.s. 1% af grunnlaunum sem greiðist eftir 8 stunda vinnuskil, en frábrugðin að því leyti að reiknað er með því að þær greiðslur gangi í gildi strax en ekki í september eins og vinnu- veitendur hafa boðið. Að sögn farmanna var það mikið til þessi liður sem minnkaði möguleikann á því að tillagan yrði samþykkt. Loks var gert ráð fyrir því að far- menn og vinnuveitendur gangi til samstarfs um breyttan vinnu- ramma og á því tímabili sem samningaviðræður um rammann standi yfir fái hver félagsmaður í Sjómannafélagi Reykjavíkur 15 þúsund krónur. „Úrslitin staðfesta hvað bilið er breytt. Ég held þó að staðan sé ekkert verri en hún var, hún gat ekki versnað," sagði Guðlaugur Þorvaldsson. Farmenn voru svartsýnni. „Það er ekki ólíklegt að eftir þetta hlaupi meiri harka í deiluna. Ég gæti t.d. trúað því að við yrðum harðari á undanþágun- um,“ sagði Birgir Björgvinsson og farmenn staðfestu að þeirra menn væru tilbúnir í átök frammá vorefþessþyrfti,enverfalliðhef- eina smugan sem ég sé í stöð- ur nú staðið á fjórðu viku. unni,“ sagði Þórarinn V. Þórar- „Eina leiðin sem nú liggur fyrir insson. „Ekki smuga,“ var við- er að semja um endurskipulagn- kvæði farmanna við vonarneista ingu á vinnurammanum. Það er Þórarins. -K.ÓI. Farmenn íhuga tilboð sáttasemjara við upphaf félagsfundar þeirra í gærkvöldi. Mynd: Sig.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.