Þjóðviljinn - 03.06.1987, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 03.06.1987, Blaðsíða 1
ftm WBaPÆ ^ÉiÉ|f Miðvikudagur 3. júní 1987 117. tölublað 52. árgangur Sauðárkrókur Herflugvöllur um bakdymar Samgönguráðuneytið lœtur kanna heppilegustu staðsetningu varaherflugvallar. Sauðárkrókur talinn ákjósanlegastur Eg er ekki til viðræðu um svo mikið sem sölu eins þumlungs iands undir varaflugvöll til hern- aðarnota. Þeirri ákvörðun minni verður ekki haggað. Oðru máli gegnir um landsölu undir varaflu- gvöll fyrir almennt millilanda- flug, sagði Kristmundur Bjarna- son á Sjávarborg í Skagafirði, en hann var einn eigcnda þess lands sem falast hefur verið eftir undir gerð varaherflugvallar á Sauðár- króki. Náttúruverndarráð og fleiri aðilar vinna nú fyrir samgöngu- ráðuneytið að úttekt á hag- kvæmni byggingar varaherflu- gvallar á Sauðárkróki og víðar. Látið er líta svo út sem hér sé um athugun að ræða fyrir staðsetn- ingu varaflugvallar fyrir milli- landaflug, en ekki herflugvöll, og eru athuganirnar greiddar af ís- lenska ríkinu. Forsendur rannsóknanna ganga út frá allnokkru lengri flugbraut en Al- þjóðaflugmálastofnunin telur fullnægjandi fyrir stærri milli- landaflugvélar, eða 3000 metra langri braut, sem nægir fyrir F-15 orustuvélar hersins. Bæjar- stjórn Sauðárkrókskaupstaðar hefur þegar leitað eftir því við þá landeigendur, sem land eiga að Sauðárkróksflugvelli, að þeir selji bænum land undir lengingu flugbrautarinnar í 3000 metra. „í fljótu bragði sé ég ekki ann- að en að sjálfsagt væri að verða við því að selja landsvæði undir lengingu flugbrautarinnar upp í 2287 metra, eða þá lengd sem tal- in er fullnægjandi fyrir stærri millilandaflugvélar. Það bara dugir þeim ekki. 3000 metrar skal flugbrautin vera að mati bæjar- stjórnarinnar,“ sagði Kristmund- ur. „Það er rétt, Kristmundur Bjarnason hefur hafnað frekari viðræðum við okkur um sölu á landi, sem nægði til lengingar flugbrautarinnar í 3000 metra. Með því að leita eftir viðræðum við landeigendur, er núverandi bæjarstjórnarmeirihluti aðeins að framkvæma samþykktir fyrr- verandi meirihluta, Framsóknar og Alþýðubandalags, þess efnis að bæjarstjórnin afhenti skilmálalaust það land sem farið væri fram á,“ sagði Snorri Björn Sigurðsson, bæjarstjóri á Sauðár- króki. -RK Atli Eðvaldsson - með bros á vör- sækir hér að félögum sínum í íslenska landsliðinu, á æfingu í gær. ísland leikur gegn Austur-Þýskalandi í dag og segja spekingar að möguleikar séu á sigri. Mynd E.ÓI. Stjórnarmyndun Þríhjólið í smíðum Jón Baldvin fékk stjórnarmyndunarumboð ígær. Reynirstjórn með Ihaldi og Framsókn. Óttast viðræður við Alþýðubandalagið eittánþátttöku Sjálfstæðisflokks. Svavar Gestsson: Tilbúnir í viðrœður við krata og konur með fjórflokkastjórn í huga. Stefán Valgeirsson vill ráðherradóm Samstjórn Alþýðuflokks, Framsóknarflokks og Sjálf- stæðisflokks er það stjórnar- munstur sem Jón Baldvin Hanni- balsson mun reyna næstu daga, en forseti íslands afhenti honum ASÍIVSÍ Endurskoðun frestað Ásmundur Stefánsson: Tíminn vinnur gegn okkur Atvinnurekendur eru ekki til- búnir til efnislegra viðræðna við Alþýðusambandið um endur- skoðun á samningum, fyrr en búið er að mynda nýja ríkisstjórn í landinu og vitað er hvcrjar ráð- stafanir hennar í efnahagsmálum verða. Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, sagði að Alþýðusambandið hefði ítrekað það sjónarmið að nauðsynlegt væri að endurskoða samningana strax þar sem tíminn ynni gegn launafóíki og misgengi íauna í landinu ykist stöðugt. VSÍ og VMS samþykktu að lokum að fara í óformlegar við- ræður við samböndin en forystu- menn þeirra segjast ekki tilbúnir í efnislegar viðræður strax. Ás- mundur sagði ekki forsendu til að meta það núna hvort þær við- ræður skiluðu árangri. -Sáf stjórnarmyndunarumboðið eftir hádegi í gær. Mun Jón Baldvin hitta Steingrím Hermannsson fyrir hádegi í dag og kanna hug Framsóknarflokksins til slíkra viðræðna. I kjölfar þess fundar er búist við að Jón gefi yfirlýsingu um áframhald stjórnarmyndun- artilrauna sinna. Jón Baldvin ákvað að ræða við formenn allra flokka áður en formlegar stjórnarmyndunarvið- ræður hæfust. Hann ræddi m.a. við Svavar Gestsson í gær. Áður hafði Jón afhent Alþýðubanda- laginu og Kvennalistanum mál- efnagrundvöll til að ræða út frá, en með því skilyrði að Sjálfstæð- isflokkurinn yrði þriðji aðilinn í ríkisstjórn. Svavar sagði að Alþýðubanda- lagið hefði verið tilbúið að ræða B Byggingafúskið Þessir fúskuðu urðarþolshönnuðirnir, sem hönnuðu burðarvirki í þau hús sem þoihönnunarskýrslan náði til, voru færðir til bókar á fundi bygginganefndar Reykja- víkur í fyrradag. Burðarþolshönnuðirnir eru: Hallgrímur Sandholt að Bílds- höfða 16 og 18, en hann mun jafnframt hafa séð sjálfur um út- tekt á byggingunr.i að sögn Gunnars Sigurðssonar bygginga- fulltrúa. Þráinn Karlsson að Eldshöfða 14 og Björgvin Víg- lundsson að Eidshöfða 18 og 16. Sagði Gunnar að Björgvin hefði sjálfur séð um úttekt á þeim hús- um á meðan hann starfaði hjá embættinu, en Björgvini var vik- ið úr starfi fyrir rúmu ári. Það var fyrirtækið Istak, en að þvf standa Ágúst Þ. Jónsson og Steinþór Haarde, sem hannaði burðarvirkið í Foldaskóla. Bene- dikt Bogason hannaði burðar- virki í Réttarháls 2. Verkfræðistofan Ferill, sem Gunnar Scheving Thorsteinsson og Snœbjörn Kristjánsson reka, hannaði burðarvirki í Skipholt 50C, SveinbjörnJónsson hannaði burðarvirki í Suðurlandsbraut 24. Allir þeir sem hér hafa verið taldir upp eru menntaðir verk- fræðingar en einn tæknifræðingur var í hópnum, Hermann Isebarn, sem hannaði burðarvirki í Suður- landsbraut 22. Hann fékk Júlíus Sólnes, sem er sérmenntaður í hönnun vegna jarðskjálfta, til að yfirfara alla útreikninga fyrir sig. -Sáf við Alþýðuflokkinn og Kvenna- listann ef svo bæri undir, en flokkurinn hefði ekki verið tilbú- ið í viðræður, sem hafa það að markmiði að fara í stjórn með Sjálfstæðisflokki. Jón Baldvin tók þetta sem neitun á viðræður. Sjálfstæðismenn telja að Jón hafi óttast að ræða einslega við Al- þýðubandalagið áður en hann hitti íhaldið, af ótta við að ef þeir tveir flokkar færu fram með sam- eiginlegan umræðugrundvöll yrði hann of vinstrisinnaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn og þar með hefði Jón misst af lestinni með það stjórnarmunstur sem nú á að ræða. Hvorki tókst að ná í Jón Bald- vin né Steingrím Hermannsson í gær. Jón hafði lokað að sér og Steingrímur yfirgefið bæinn. -Sáf Kanaríeyjar Torgástir Elskendur nokkrir sitja nú á bak við lás og slá fangag- eymslu lögreglunnar í þorpinu Tenerife á Kanarícyjum. Þeim er geflð að sök að hafa farið full geyst í sakirnar síðast þegar þau gegndu kalli náttúrunnar, ekki gætt almenns velsæmis á alfara- leið og lagt hendur á laganna og velsæmisins vörð. Lögregluþjónninn Chico Al- varez segir sínar farir ekki sléttar. Á föstudag átti hann leið fram hjá aðaltorginu í hjarta bæjarins, varð litið til vinstri og krossbrá. Honum fórust orð á þessa lund um reynslu sína: „Þau voru alls- nakin á aðaltorginu og ég fékk ekki betur séð en að annað væri uppi á hinu.“ En þar með er sag- an ekki fullsögð. Chico vildi nú skakka leikinn en þá reis karlinn upp á afturfæturna og snoppung aði hann. -ks.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.