Þjóðviljinn - 28.01.1988, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 28. janúar 1988 21. tólublað 53. árgangur
Rangárþing
Landauðn blasir við
Guðrún Haraldsdóttir, Hellu: 1171 atvinnuleysisdagar
ídesember. Stefnir í 100% aukningu íjanúar. Fólkhefur
ekki að neinu að hverfa þegar því er sagt upp
að hefur orðið vart mikillar
gremju meðal manna með at-
vinnuástandið hérna í sýslunni. I
desembermánuði voru skráðir
1171 atvinnuleysisdagar og það
stefnir i helmingsaukningu í þess-
um mánuði. Það munar um
minna í ekki fjölmennari sýslu.
Það væru höfð stór orð um sama
atvinnuleysishlutfall í Reykjavík,
sagði Guðrún Haraldsdóttir,
varaformaður verkalýðsféiagsins
Rangæings á Hellu, sem sagði
landauðn blasa við á þéttbýlis-
stöðum í sýslunni ef ekki rættist
úr fljótlega.
Á síðasta ári missti fjöldi
manns atvinnuna í Rangárvalla-
sýslu eftir að nokkur fyrirtæki
hættu rekstri. Nú síðast lagði
Kaupfélagið Þór niður alla aðra
starfsemi en rekstur verslunar-
innar og sláturhússins, sem ekki
hefur bætt úr skák.
- Svo til eini ljósi punkturinn í
avinnumálefnum á Hellu á síðast-
liðnu ári var þegar Kjötvinnsla
Jónasar hóf starfsemi hér, en við
hana starfa 10 manns, Fólk hefur
annars ekki haft að neinu að
hverfa eftir að hafa misst vinn-
una. Fólk er orðið langþreytt á
þessu og margir vildu fegnir flytja
burtu en eiga óhægt um vik vegna
þess að engir kaupendur fást að
íbúðum. A Hellu og Hvolsvelli
stendur þónokkur fjöldi húsa
auður. Fólk hefur einfaldlega
ráðið sig annað í vinnu, sagði
Guðrún.
Guðrún sagði að verkalýðsfé-
lagið Rangæingur hefði aflað sér
verkfallsheimildar og viðræður
um gerð nýrra kjarasamninga
fyrir vegagerðarmenn og ófag-
lært starfsfólk á sjúkrahúsum og
dvalarheimilum væru í undirbún-
ingi.
- Satt best að segja líst mér
ekki á launaliðinn í samningnum
fyrir vestan. Kaupið þarf að
hækka meira og það gott betur, ef
takast á að rétta hlut láglauna-
fólks.
-rk
Skák
Stutt jafntefli
í St. John
Lognið á undan
storminum? Kortsnoj
hefur hvítt í kvöld
Jóhann Hjartarson og Viktor
Kortsnoj gerðu jafntefli í þriðju
skákinni f einvfgi sínu sem haldið
er í St. John í Kanada. Skákin var
stutt, aðeins 15 leikir.
Jóhann lék kóngspeði sínu í 1.
leik og Kortsnoj svaraði með cer-
es sex; Caro -Cann vörn með öðr-
um orðum, en sú ágæta byrjun
hefur stundum gengið undir
nafninu byrjun fátæka mannsins.
Jóhann heldur þar með vinn-
ingsforskoti í einvíginu sem nú er
hálfnað, hefur hlotið tvo vinn-
inga gegn einum vinningi Korts-
nojs.
Sjá skýringar Helga Ól-
afssonar bls. 2
Lífeyrissjóðirnir
Tug-
miljarða
fortíðar-
vandi
Vandi á bilinu 10-60
miljarðar.
Vandanum mœttmeð
hœkkun iðgjalds,
skerðingu réttinda og
almennri skattheimtu
Lífeyrissjóðirnir eiga við að
etja fortíðarvanda, sem er ein-
hversstaðar á bilinu 10-60 milj-
arðar króna. Höfuðorsök vand-
ans er tími neikvæðra vaxta í
verðbólgu áttunda áratugarins.
Einnig hafa breyttar forsendur,
minni fólksfjölgun og lengri líf-
aldur haft áhrif á þennan vanda
lífeyrissjóðanna.
Lífeyrissjóðir opinberra starfs-
manna og bankamanna eiga hins-
vegar ekki við þennan vanda að
etja því hið opinbera og bankarn-
ir tryggja lífeyrisréttindi sinna
sjóðfélaga.
Einkum er talað um þrjár leiðir
til að vinna bug á vandanum;
hækka iðgjöld, draga úr lífeyris-
réttindum og að mæta þessu með
almennri skattheimtu. Líklegasta
lausnin er sambland þessara þrig-
gja þátta. Lífeyrissjóður verka-
manna vill hinsvegar skerða líf-
eyrisréttindi þeirra sem fengu
óverðtryggð lán en hvorki Hrafn
Magnússon, SAL, né Pétur
Blöndal, LL, telja þá leið fram-
kvæmanlega.
Sjá nánar um fortíð, nútíð og
framtíð sparibauks þjóðarinnar í
opnu blaðsins.
Rýnt í Vestfjarðasamninginn á framkvæmdastjómarfundi Verkamannasambandsins í gær. Guðmundur J. og Bjöm Grétar Sveinsson fró Hðfn hafa báðir
lýst yfir efasemdum um gildi samningsins. Karvel Pálmason varformaður VMSl og Alþýðusambands Vestfjarða hefur ekki enn gert opinberlega upp hug
sinn111 samningsins. Mynd sig. Verkamannasambandið
Þrýst á skammtíma samninga
Gálgafresturinn senn úti. Véstfjarðasamningurinn ekki eftirbreytniverður. Gripið til aðgerða
fáist atvinnurekendur ekki að samningaborðinu. Ágreiningur um samningsleiðir.
Þór á Selfossi hafnar samningum til skamms tíma
Framkvæmdastjórn Verka-
mannasambandsins er einhuga
um að krefjast þess að atvinnu-
rekendur gangi að samninga-
borðinu og ræði við VMSI í fullri
alvöru um gerð samninga tU.
skamms tíma. Að öðrum kosti er
viðbúið að gripið verði til harðra
aðgerða. Að sögn Björns Grétars
Sveinssonar, formanns verkalýð-
sfélagsins Jökuls á Höfn I Horna-
fírði, var samdóma álit fram-
kvæmdastjórnar á fundi hennar í
gær, að óraunhæft væri að scmja
tU langs tíma, meðan ekki væri
Ijóst tU hvaða efnahagsaðgerða
ríkisstjórnin muni grfpa. Fundi
framkvæmdastjórnar verður
fram haldið í dag.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans eru skoðanir þó ærið
skiptar um það innan félaga
Verkamannasambandsins hvaða
leiðir geti talist vænlegastar í
kjaramálum. Einkum er deilt um
hvort stefna beri að samningum
til skamms tíma, eins og fram-
kvæmdastjórnin hefur lagt bless-
un sína yfir, eða hvort feta skuli í
slóð Álþýðusambands Vestf-
jarða og semja á hliðstæðum nót-
um til ársins. Alþýðuflokksmenn
telja margir hverjir síðarnefndu
leiðina fýsilega. Verkalýðsfé-
lögin á Suðurnesjum, undir for-
ystu Karls Steinars Guðnasonar
fyrrverandi varaformanns VMSÍ,
eru þeirrar skoðunar að stefna
beri að „hóflegum kauphækkun-
um“ í anda Vestfjarðasamning-
sins. Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum blaðsins binda ýmsir
sauðtryggir stuðningsmenn ríkis-
stjórnarinnar í röðum Alþýðu-
flokksmanna vonir við að samn-
ingar takist á Suðurnesjum áður
en skriður kemst á samningavið-
ræður VMSÍ. - Með því móti
ynnist tvennt. Annars vegar væri
VMSÍ þá nauðbeygt til að semja
á sömu nótum og hins vegar væri
Karvel Pálmasyni goldinn rauður
belgur fyrir gráan vegna and-
stöðu hans við matarskattinn,
sagði einn viðmælenda blaðsins
sem er í forystu verkalýðshreyf-
ingarinnar.
Ljóst er að mörgum þykir þó
hvorugur kosturinn góður, þar
. sem sýnt er að báðar þessar leiðir
færi láglaunafólki ekki þær
launaleiðréttingar og kjarabætur
sem knýjandi þörf er á.
Þá hefur verkalýðsfélagið Þór
á Selfossi gagnrýnt hugmyndir
um skammtímasamninga og lagt
til að Alþýðusamband Suður-
lands leiði samningaviðræður
fyrir félagið.
Stjórn Dagsbrúnar hefur verið
kölluð saman til fundar í dag til
að ræða stöðuna í samningamál-
unum.
-rk
-Sáf