Þjóðviljinn - 17.03.1988, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 17. mars 1988 63. tölublað 53. órgangur
Gamalt stríðstertutilbrigði við
ráðhússtef í Tjörninni.
Skipulag
Borgin
sem aldrei
var byggð
Viðlegukantar í Tjörninni,
skipaskurður í gegnum Vatns-
mýrina og aðalhöfn borgarinnar í
Skerjafirðinum?
Þessar skipulagshugmyndir
eru meðal þeirra sem slegið hefur
verið fram í gegnum tíðina en
ekki náð fram að ganga eins og
við vitum. Tæpt er á þessum mál-
um í blaðinu í dag, og varpað
fram þeirri spurningu hver
ending sé í fegurðarsmekknum
þar sem húsagerðarlist er annars
vegar.
Sjá „borg og byggðir“
síðu 8-10
Verkakona
Neitaði eftirvinnu, var rekin
Vinnuveitandinn hafði ekki sótt um at-
vinnuleyfifyrirhana. Hótaði brottrekstri
úrlandi. Útlendingaeftirlitið kannar
málið
Alþýðubandalagið
Erlend verkakona sem starfað
hefur hérlendis um nokkurt
skeið, var rekin úr vinnu í gróðr-
arstöðinni Lambhaga, þegar hún
neitaði að vinna eftirvinnu. Auk
þess hótaði atvinnurekandinn að
sjá til þess að hún yrði rekin úr
landi, en hann hafði trassað að
sækja um atvinnuleyfi fyrir hana.
Málið er til rannsóknar hjá út-
lendingaeftirlitinu.
Verkakonan sem heitir Gila
Carters hengdi upp á vinnustað
sínum borða með orðinu „Soli-
darity“ eða Samstaða. Vinnu-
veitandinn skipaði henni að taka
það niður og einnig úrdrátt úr
kjarasamningum Félags garð-
yrkjumanna sem hún hafði hengt
upp á vegg.
Sjá bls. 3
Gila Carters með Samstöðu-borðann sem hún hengdi upp á vinnu-
stað sínum. Mynd-E.ÓI.
Ólafur Ragnar Grímsson og Steingrímur J. Sigfússon kynna tillögur
Alþýðubandalagsins að nýrri launastefnu á blaðamannafundi í gær.
Minnkum launamuninn!
Launastefnafyrirþingið. Lögtryggð lágmarks-
laun, launamunur úrfimmtánföldum
í fjórfaldan
Alþýðubandalagið vill að
launamunur í landinu verði ekki
meiri en ferfaldur og á hverjum
vinnustað verði lægstu laun aldrei
lægri en þriðjungur af hæstu
launum. Lögbundið verði að lág-
markslaun nægi fyrir framfærslu,
takist ekki að tryggja lífvænleg
laun fyrir átta stunda vinnudag í
almennum kjarasamningum. í
dag nema hæstu laun 15-20 föld-
um lágmarkslaunum.
Alþýðubandalagið lagði í gær
fram á alþingi tillögu til þings-
ályktunar um nýja launastefnu
sem miðar að launajöfnun,
lífvænlegum launum fyrir dag-
vinnu og jöfnum kjörum karla og
kvenna.
Sjá síðu 7 og leiðara
Húsnœðismálin
Verkalýðshreyfingin
sniðgengin
Einkahagfrœðingarfélagsmálaráðherra skila húsnœðis-
skýrslunnifyrir helgi. Enginnfulltrúi frá verka-
lýðshreyfingunni. Tillögurum aðdraga
úr G-lánunum
Félagsmálaráðherra leitaði ekki til samtaka launafólks þegar húsnæðislánakerfið var skoðað.
Félagsmálaráðherra sniðgekk
verkalýðshreyfinguna þegar
hann skipaði nefnd til að stokka
upp húsnæðislánakerfið og er
mikil óánægja með það meðal
þeirra manna sem fara með hús-
næðismálin hjá samtökum launa-
fólks.
Nefndin er skipuð fjórum hag-
fræðingum auk Kjartans Jó-
hannssonar, formanns. Hagfræð-
ingarnir eru hagstofustjóri, hag-
fræðingur Seðlabankans, fram-
kvæmdastjóri iðnrekenda og
framkvæmdastjóri Þróunarfé-
lagsins.
I skýrslu nefndarinnar, sem
lögð verður fram fyrir helgi,
verða þrjár tillögur um húsnæðis-
kerfi framtíðarinnar, ein um að
lappa upp á núverandi kerfi og
tvær um alveg nýtt húsnæðislán-
akerfi.
Meðal hugmynda hagfræðing-
anna er að draga úr lánum til
kaupa á eldri íbúðum, þar sem
hagfræðingarnir telja hlutfall G-
lána vera orðið of hátt,-
Grétar Þorsteinsson, annar
fulltrúi launamanna í húsnæðis-
málastjórn, telur að núverandi
kerfi hafi ekki fengið að sanna
sig. Þessi hringlandaháttur með
kerfið sé mjög slæmur og skapi
óöryggi fyrir almenning og á
húsnæðismarkaðinum. Fulltrúar
verkalýðshreyfingarinnar munu
fjalla um þetta mál nú um helg-
ina, bæði nefndarskipanina og
skýrsluna.
Sjá bls. 5