Meira Leita Titlar Greinar Fréttir Um vefinn Algengar spurningar
skrá inn Íslenska Føroyskt Kalaallisut Dansk English

Þjóðviljinn


og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 . . .



Skoða síðu í nýjum glugga  Skoða texta í nýjum glugga  Skoða hágæðaútgáfu í nýjum glugga  Beinn tengill á þessa síðu
Innskráðir notendur geta bætt einstaka síðum við vinnusvæði sitt:
Bæta síðu við bókamerki








þú þarft að vera með Adobe Reader Plugin til að skoða þessa síðu


get Adobe Reader



Þjóðviljinn

					Vaxtaokrið

ómin víki

OlafurRagnar Grímsson: Vaxtahámark verði lögbundið og lánskjaravísitalan afnumin.

Viðskiptaráðherra segir lœkkun raunvaxtafyrirsjáanlega, takist að kveða gengislœkkunarkórinn íkútinn.

Vaxtahœkkun húsnœðislána kemur vel tilgreina

Setja verður nýja stjórn yfir

Seðlabankann í stað núverandi

bankastjóra, lögbundið hámark

verði sett á vexti og vaxtamun og

samræmd lækkun verði á vöxtum

lífeyrissjóðanna, segir í grein

Ólafs Ragnars Grímssonar í blað-

inu í dag, þar sem hann gerir

grein fyrir nýrri vaxtastefnu sem

grundvallist á því að böndum

verði komið á vexti og lánastarf-

semi í stað vaxtaokurs í skjóli

ríkjandi vaxtafrelsis.

Jón Sigurðsson viðskiptaráð-

herra telur hins vegar að það sé •

komið að vatnaskilum í þróun

raunvaxta og vaxtafrelsið hafi

borið sýnilegan ávöxt. Vextir á

ríkisskuldabréfum séu orðnir

leiðandi hvað vaxtakjör varði, en

með lækkun raunvaxta á

skuldabréfum ríkissjóðs hafa ein-

ir tveir bankar fylgt í kjölfarið og

lækkað raunvexti á verðtryggð-

um skuldabréfum úr 10,75% í

9,25%. Þetta kom fram að lokn-

um samráðsfundi ráðherra með

fulltrúum aðila á fjármagnsmark-

aði um vexti og vaxtaþróun.

Forsenda þess að raunvextir

lækki á næstunni, er að mati

Seðlabankans að hægt verði að'

bægja frá ótta við frekari gengis-

fellingar og verðbólgu, en til

lengri tíma litið er lækkun láns-

fjárþarfar ríkisins eitt mikilvæg-

asta skilyrði raunvaxtalækkunar.

Jöfnun lánskjara milli íbúða-

lána og annarra fjárfestingarlána

kann einnig að mati Seðlabank-

ans að stuðla að lækkun al-

mennra vaxta og draga úr eftir-

spurn eftir lánsfé.

Jóhannes NordaL sagði að nið-

urgreiddir vextir á húsnæðislán-

um hefðu stuðlað að hærra verði

Framfœrslan

Vei

r ¦

I 111*!

42,5%

Vísitala framfærslukostnaður

hefur hækkað um 2,1% frá því í

síðasta mánuði. Síðustu þrjá

mánuði hefur vísitalan hækkað

um 9,3% og jafngildir sú hækkun

um 42,5% verðbólgu á heilu ári.

Síðustu 12 mánuði hefur vísi-

talan hækkað um 28,8% en

hækkunin í síðasta mánuði svarar

til 29,1% árshækkunar. Stærsti

hluti hækkunarinnar nú stafar af

hækkun ýmissa vöru- og þjón-

ustuliða um 0,5%, hækkun mat-

vöru 'olli 0,4% hækkun vísitöl-

unnar og aukinn húsnæðis-

kostnaður sömuleiðis.

á íbúðarhúsnæði og vaxtaniður-

greiðslurnar væru komnar langt

fram yfir félagslega þörf, eins og

það var orðað.

Ólafur Ragnar Grímsson segir

allrar athygli vert að aðeins 3%

raunvextir séu á útlánum lífeyris-

sjóðs Seðlabankans meðan ein-

staklingum og fyrirtækjum sé

gert að greiða allt að 12% raun-

vexti af sínum lántökum eða

þrisvar  til  fjórum  sinni  hærri

raunvexti      en      bankastjórar

Seðlabankans verða aðnjótandi.

Sjá síðu 9

fbúará sunnan- og vestanverðu landinu verða baðaðir ísól og hlýju um helgina samkvæmtspá veðurfræðinga. Höfuðborgarbúar nutu sólarinn-

ar í gær og ýmsir brugöu á leik eins og þessi hnokki sem steig dans við dúfurnar á Tjarnarbakkanum. Mynd - Ari.

,*. \^

Framkvœmdir

Bömin sitja hjá

Tafir áframkvœmdum valda röskun á rekstri

dagheimila. Deildyngstu barna lokuð. SmiðiríViðey

þar sem alltgengur samkvœmt áœtlun

Tafir á málningarvinnu og við-

haldi smiða hefur valdið röskun á

nokkrum dagheimilum í Reykja-

vík og eitt dagheimili þurfti að

loka deild yngstu bama af þess-

um sökum. Margir foreldrar hafa

lent í vandræðum vegna þessa og

rekstur dagheimilanna hefur

raskast.

Á meðan sumarlokun stóð yfir

átti að mála og laga til nokkur

dagheimili. Obbinn af smiðum

Reykjavíkurborgar hefur hins

vegar verið upptekinn í Viðey

sem er ein skýringin á töfunum.

Sjá síðu 3

SHISIS

Samdratturinn

tæpur miljarður

Um 650 miljóna króna sölusamdráttur hjá

lceland Seafood Corporation á

Bandaríkjamarkaði áfyrri helmingi ársins.

Hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna nemur

samdrátturinn um 300 miljónum króna á sama

tíma

Á fyrri helmingi þesáa árs hef-

ur söluverðmæti frystra sjávaraf-

urða hjá dótturfyfirtæki Sam-

bands íslenskra Sarpvinnufélaga

Iceland Seafood Corporation í

Bandaríkjunum dregist saman

um 650 miljónir króna sem eru

um 16% af heildarveltu fyrirtæk-

isins.

Á sama tíma hefur útflutnings-

verðmæti Sölumiðstöðvar hrað-

frystihúsanna dregist saman um

300 miljónir króna. Hjá þessum

tveimur stærstu sölusamtökum

landsins á sviði frystra sjávaraf-

urða hefur verðmæti útflutnings-

ins dregist saman um tæpan milj-

arð króna á fyrri helmingi ársins

og munar um minna.

Sjá síðu 3

null