Meira Leita Titlar Greinar Fréttir Um vefinn Algengar spurningar
skrá inn Íslenska Føroyskt Kalaallisut Dansk English

Þjóðviljinn


og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 . . .



Skoða síðu í nýjum glugga  Skoða texta í nýjum glugga  Skoða hágæðaútgáfu í nýjum glugga  Beinn tengill á þessa síðu
Innskráðir notendur geta bætt einstaka síðum við vinnusvæði sitt:
Bæta síðu við bókamerki








þú þarft að vera með Adobe Reader Plugin til að skoða þessa síðu


get Adobe Reader



Þjóðviljinn

					Húsnœðislánin

Vaxtahækkun þegar ráðin

Formenn stjórnarflokkanna einhuga um hœkkun húsnœðislánavaxtaúr3,5% í7%.AriSkúlason, ASÍ: Vaxtahœkkun

húsnœðislánavœri glórulaus. Aukinni greiðslubyrði aldrei mœtt í gegnum skattakerfið

Formenn ríkisstjórnarflokk-

anna hafa þegar komið sér saman

um hækkun húsnæðislánavaxta

með útgáfu bráðabirgðalaga.

Samkvæmt staðfestum heimild-

um Þjóðviljans felst í samkomu-

lagi formannanna að raunvextir

lána til húsnæðiskaupa og bygg-

inga hækki úr 3,5% í 7%, en enn

á eftir að útfæra hvernig aukinni

greiðslubyrði lántakenda verði

mætt með hliðaraðgerðum.

Ari Skúlason, hagfræðingur

Alþýðusambandsins, sagði í sam-

tali við Þjóðviljann í gær að væri

þessi raunin, þýddi það í reynd

aukna greiðslubyrði fyrir þá sem

væru komnir uppá náð og miskun

húsnæðislánakerfisins.

- Slík vaxtahækkun væri gjör-

samlega glórulaus. Það er yfirlýst

stefna rfkisstjórnarinnar að vext-

ir eigi að lækka. En ef leiðin til

vaxtalækkunar er fólgin í því að

hækka vexti á útlánum húsnæð-

iskerf isins er betur heima setið en

af stað farið, sagði Ari.

Ari sagðist ekki haf a trú á íviln-

anir í gegnum skattakerfið til þess

að mæta aukinni greiðslubyrði í

kjölfar vaxtahækkunar, en Jó-

hanna Sigurðardóttir, félags-

málaráðherra, telur slfkt koma til

álita.

- Uppbætur fyrir aukna vaxta-

byrði í gegnum skattakerfið

koma aidrei til framkvæmda fyrr

en eftir mitt næsta ár og fólk fengi

aldrei lausnarmeðulin fyrr en í

ágúst. Ég get ómögulega séð

hvernig ríkisstjórnin ætlar að fara

að því að finna út hverjir það eru

sem helst er þurfi fyrir slíkar

skattaívilnanir, ekki síður en hér

um árið þegar láglaunabótunum

var útdeÚt, sagði Ari.

Ari sagðist ómögulega geta séð

hvernig núgildandi raunvextir á

húsnæðislánum kæmu rekstrar-

vanda útflutningsatvinnuveg-

anna við, eins og forstjóranefnd-

in sk. teldi sig vita. - Þeirri spurn-

ingu er því gjörsamlega ósvarað

hvað vaxtahækkun á húsnæðisl-

ánum eigi að leysa, sagði Ari.

Sjá síðu 5

Tékkóslóvakía

í sól og sumaryl. Haffi, Vigga og Sirrý bergja á mjólkurhriisting ( veðurblíðunni á Lækjartorgi í gær. Á

Torginu var margt um manninn enda lítt sést til sólar undanfarið og því full ástæða tii þess að láta sálartetrið

njóta veðurblíðunnar. Mynd Ari.

Tuttugu ár

#       7       ¦                   A                                             Grái markaðurinn

ira iniiraS   Opinbera heilbrigðisskoðun

/ dag eru 20 ár HðinfráþvíRauði herinn tróð

vorið íPrag undir járnhœlnum

Nákvæmlega fyrir tuttugu

árum sýndu sovéskir stjórnar-

herrar nágrönnum sínum í Tékk-

óslóvakíu það vinarþel sem seint

mun gleymast. Tilburðir tékkn-

esku þjóðarinnar til að slíta af sér

helsi Stalínismans og koma á fót

sósíalísku lýðræði, sem gjarnan

er kennt við vorið í Prag, voru

brotin á bak aftur með hervaldi.

í Þjóðviljanum í dag eru þessir

atburðir rifjaðir upp, birt er grein

eftir tékkneska útlagann Lynar

á

um    áhrif   perestrojkunnar

austantjaldslöndin.

Einnig er rætt við fimm íslend-

inga - á ýmsum aldri um það

hvernig þeir brugðust við er þeir

fréttu af innrás Rauða hersins.

Þeir sem talað er við eru Einar

Kárason, Hjörleifur Guttorms-

son, Magnús Torfi Ólafsson,

Svanfríður Jónasdóttir og Vil-

borg Harðardóttir.

Sjá síður 7-10

og leiðara

Bankaeftirlitinu verðifalið að hafa gœtur meðfjárreiðumfjárfesting-

arfyrirtœkja og verðbréfasjóða

Forsvarsmenn fjárfestingarfyr-

irtækja og verðbréfasjóða vísa

orðum Ólafs Ragnars Gríms-

sonar algerlega á bug að eitt ef

ekki fleiri fyrirtækja sem fiska á

gráa         fjármagnsmarkaðnum

kunni að komast í þrot á næstu

vikum eða mánuðum.

Ólafur segist óttast keðjuverk-

andi hrun þessara fyrirtækja,

með ófyrirséðum afleiðingum

fyrir allan þann fjölda sparifjár-

eigenda sem hefur treyst þessum

fyrirtækjum fyrir ávöxtun spari-

fjár síns.

Ólafur segir að það sé skýlaus

krafa af hálfu Alþýðubandalags-

ins að fram fari opinber

heilbrigðisskoðun á fjárhags-

stöðu fyrirtækja á gráa markaðn-

um og þeim verði gert að starfa

eftir ströngum lögum eins og

bankastofnunum. Jafnframt

segir hann það eðlilegt að Banka-

eftirlitinu verði falið að hafa gæt-

ur á fjárreiðum þeirra eins og

gikli um bankana.

Hann segir að samkvæmt upp-

lýsingum endurskoðenda og ann-

arra sem þekki til á fjármagns-

markaðnum, sé veruleg hætta á

hruni. Sum fjárfestingarfyrir-

tækin hafi fjárfest í stórum stíl í

fyrirtækjum sem orðin séu

greiðsluþrota eða við það að

verða það.

Sjá síðu 3

null