Meira Leita Titlar Greinar Fréttir Um vefinn Algengar spurningar
skrá inn Íslenska Føroyskt Kalaallisut Dansk English

Þjóðviljinn


og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 . . .



Skoða síðu í nýjum glugga  Skoða texta í nýjum glugga  Skoða hágæðaútgáfu í nýjum glugga  Beinn tengill á þessa síðu
Innskráðir notendur geta bætt einstaka síðum við vinnusvæði sitt:
Bæta síðu við bókamerki








þú þarft að vera með Adobe Reader Plugin til að skoða þessa síðu


get Adobe Reader



Þjóðviljinn

					Forystumenn í Sjálfstæðisflokknum koma á fund forsætisráðherra í Stjórnarráðinu í gær til að ræða útfærslu væntanlegrar kjaraskeröingar. Frá v. Þorsteinn Pálsson,

Davlð Oddsson, Ólafur G. Einarsson, Guðmundur H. Garöarsson og Víglundur Þorsteinsson. Myndir-Ari.

Ríkisstjómin

Kjararánið undirbúið

Forstjóranefndin skilar afsér ídag. Tillögur um stórfellda kaupskerðingu. Þorsteinn Pálsson: Dagsetning

og útfœrsla enn óákveÖin. Alþýðusambandið: Fólk mun ekki sœtta sig við kjaraskerðingu

- Ég vil ekki ræða nein hlutföll

í þeim efnum, sagði Þorsteinn

Pálsson forsætisráðherra, þegar

Þjóðviljinn spurði hann í gær,

hve mikil kjaraskerðing fælist í

væntanlegum efnahagsaðgerðum

ríkisstjórnarinnar. Þorsteinn

sagði að hluti efnahagsvandans

fælist í því að einkaneyslan væri

of mikil og það þyrfti að slá á

hana. Einkaneyslan í heild þyrfti

að minnka en engin útfærsla lægi

fyrir um það hvernig dregið yrði

úr henni.

Fljótlega eftir komuna til

landsins í gær kallaði Þorsteinn

fulltrúa forstjóranefndarinnar á

fund ráðherra Sjálfstæðisflokks-

ins og efnahagsnefndar flokksins.

Forstjóranefndin skilar tillögum

sínUm formlega í dag. Nefndin

mun leggja til að niðurfærslu-

leiðin verði fatín en hún felur í sér

víðtækakjaraskerðingu. Kaupog

verðlag á að lækka en mönnum

ber saman um að auðveldara sé

að lækka kaupið en almennt

verðlag.

Ásmundur Stefánsson forseti

ASÍ átti fund með forsætisráð-

herra í gærmorgun og ítrekaði

hann fyrri yfirlýsingar ASÍ um að

kjaraskerðing væri engin lausn á

efnahagsvandanum.

Ásmundur sagði að fólk myndi

ekki sætta sig við neina kjara-

skerðingu og varaði hann einnig

við öllum hugmýndum um hækk-

un vaxta á húsnæðislánum.

Þingflokkar stjórnarflokkanna

funduðu allir í gær og eru menn

nú að reyna að koma sér saman

um hliðarráðstafanir með kjara-'

ráninu. Forsætisráðherra mun

stefna að því að stjórnin komist

að niðurstöðu í þeim efnum um

eða eftir næstu helgi.

Fjármagnsmarkaðurinn

Heilbrigðisskoðun

er nauðsynleg

EfnahagsnefndAlþýðubandalagsins:Sendir

viðskiptaráðherra bréfog krefsttafarlausra

aðgerða. Bankaeftirlitinu verðigertkleiftað

fara ofan íreksturfjármögnunarfyrirtœkja

Efnahagsnefnd Alþýðubanda-

lagsins hefur farið fram á það við

Jón Sigurðsson viðskiptaráð-

herra, að þegar í stað verði gerð-

ar ráðstafanir til að bankaeftir-

litið geti farið ofan í rekstur

fjármögnunarfyrirtækja. Leggur

nefndin til að bráðabirgðalög

verði sett í þessum tilgangi því

hættulegt sé að bíða eftir nýjum

lögum í marga mánuði

Efnahagsnefndin leggur til að

að       fjármögnunarfyrirtækjum

verði bannað að safna með

beinum eða óbeinum hætti eign-

araðild í öðrum og óskyldum at-

vinnurekstri. Undirbúningi að

víðtækri löggjöf um starfsemi

fjármögnunarfyrirtækja verði

hraðað og sett verði á fót ráðgjaf-

arþjónusta við einstaklinga og

fyrirtæki sem orðið hafa fyrir

barðinu á okurlánastarfsemi.

Sjá síður 2 og 4

Alfreð Gíslason er hér á fleygiferð og skorar í tapleiknum geqn Sviss.

Mynd: E. 01.

lþróttir

Skellur gegn Sviss

Óvenju margt var á seyði á

íþróttasviðinu um helgina. Flug-

leiðamótið í handknattleik stend-

ur nú sem hæst og töpuðu íslend-

ingar óvænt gegn Svisslendingum

á sunnudag en unnu Tékka

auðveldlega daginn áður.

Þá stóðu íslendigar sig vel á

Norðurlandamótinu í golfi auk

þess sem heil umferð var í 1.

deildinni í knattspyrnu og margt

fleira.

Sjásíður9-11

Landsbankinn

Innréttað

fyrir tugi

milljóna

Landsbanki íslands hefur þeg-

ar kostað um 60-70 miljónum

króna til að innrétta upp á nýtt

fyrrum húsnæði Seðlabanka ís-

lands að Hafnarstræti 10 fyrir

sjálfan sig og hafa framkvæmd-

irnar staðið yfir hátt á annað ár.

Að sögn Ólafs Ragnars Gríms-

sonar er þetta hneykslanlegt og

dæmi um hvernig vaxtastuldi

bankans sé sóað. Olafur Ragnar

segir greinilegt að skrifstofur

þeirra Jóhannesar Nordals og

Geirs Hallgrímssonar hafi ekki

þótt nógu fínar fyrir bankastjóra

Landsbankans.

Sjá síðu 3

null