Meira Leita Titlar Greinar Fréttir Um vefinn Algengar spurningar
skrá inn Íslenska Føroyskt Kalaallisut Dansk English

Þjóðviljinn


og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 . . .



Skoða síðu í nýjum glugga  Skoða texta í nýjum glugga  Skoða hágæðaútgáfu í nýjum glugga  Beinn tengill á þessa síðu
Innskráðir notendur geta bætt einstaka síðum við vinnusvæði sitt:
Bæta síðu við bókamerki








þú þarft að vera með Adobe Reader Plugin til að skoða þessa síðu


get Adobe Reader



Þjóðviljinn

					Efnahagsaðgerðir

Alþýðubandalagið boðar

algera kerfisbreytingu

EfnahagsnefndAB:„Millifœrsla"fránýríkum fjármagnseigendumtillaunafólksog

atvinnufyrirtœkja. Villlœkka raunvextiogkoma vaxtamun í3-4%

ubanda-   mistekist oe íslendinear hafi ekki     þeear það vaknar á morenana.        þekkist    í    nágrannalöndun

Efnahagsnefnd Alþýðubanda-

lagsins segir ljóst af efnahagstil-

lögum ríkisstjórnarinnar að

launafólk eigi áfram að bera

herkostnaðinn af mistökum og

óstjórn síðustu ára. Nefndin

leggur til að farin verði leið kerf-

isbreytingar og millifærslu þar

sem nýrík stétt fjármagnseigenda

beri kostnaðinn með skatti af

fjármagnstekjum sem hingað til

hafa verið skattfrjálsar.

Ólafur Ragnar Grímsson for-

maður Alþýðubandalagsins sagði

á blaðamannafundi í gær, að

spurningin væri ekki hvort niður-

færslan gengi eða gengi ekki. Al-

þýðubandalagið væri á móti

henni þar sem hún fæli í sér

skerðingu launa. Ólíklegt væri að

það tækist að fylgja eftir verð-

lækkunum og yfirborganir héldu

áfram. Niðurfærslan bitnaði því

eingöngu á launafólki á lægstu

töxtum og opinberum starfs-

mönnum.

Hækkun raunvaxta á undan-

förnum árum úr 2,5% í 10% hafa

valdið allt að tvöföldun á

greiðslubirgði lána, að sögn

Svavars Gestssonar. Hann segir

sannað að sú frjálshyggjutilraun

sem staðið hafi yfir í landinu hafi

mistekist og íslendingar hafi ekki

efni á frekari tilraunum. Til

marks um þetta sé að Verslunar-

ráð byrji á því að telja gjaldþrotin

þegar það vaknar á morgnana.

Efnahagsnefndin leggur til að

vextir verði færðir niður og að

vaxtamunur verði ekki meiri en

þekkist í nágrannalöndunum.

Lánskjaravísitala verði lögð nið-

ur og tekin upp viðmiðun

kaupgjaldsvísitölu. Til að hægt

verði að fylgja eftir tillögum

nefndarinnar, verði að skipa nýja

bankastjórn í Seðlabankanum og

núverandi stjórn að víkja.

Smábátar

Aukin

skulda-

SÖfnUn    Ungu konurnar

burt

Efnahagsnefnd Alþýðubandalagsins á blaöamannafundi í gær. Frá  vinstri:SteingrímurJ.Sigfússon,SvanfríðurJónasdóttir,ÓlafurRagn-

ar Grímsson og Svavar Gestsson. Nefndin segir hugmyndir ríkisstjórnarinnar byggjast á frekara kjararáni.                           Mynd: Ari

Nordisk forum

Gæfta- og aflaleysi smábáta í ár

hefur komið afar illa við marga

sem fjárfestu í nýjum bátum á

síðasta ári og sérstaklega eiga

þeir í erfiðleikum sem keyptu

sína báta í gegnum kaupleigufyr-

irtæki, en þeir voru um 40.

Raunvextir hjá kaupleigufyr-

irtækjunum eru 16% og bátur

sem kostaði 6 miljónir í fyrra

verður kominn í 8,2 miljónir eftir

5 ár þegar kaupleigusamningur-

inn rennur út. Sé afborgun að 6

miljóna króna bát greidd einu

sinni á ári í vertíðarlok nemur

hún 1,6 miljónum króna.

Kaupleigufyrirtækin baktryggja

sig með veði í fasteign viðkom-

andi eigenda. Af þessum 40 smá-

bátum er aðeins vitað um 2 sem

teknar hafa verið aftur vegna

vanskila.

Sjá síðu 3

flýja

Vilborg Harðardóttir

skrifar

Strandbyggðir sem fyrst og

fremst byggja á sjávarútvegi eiga

alstaðar á Norðurlöndum við

vanda að stríða: einhæft atvinnu-

framboð, ótrygga fjárhagsaf-

komu, álag á heimilin. Þessar að-

stæður eiga mestan þátt í að búa

til einn vandann enn: ungu kon-

urnar leita burt...

Kvennaráðstefnan í Osló í júlí

lét sér fátt óviðkomandi og þar

var meðal annars fjallað um

strandbyggðir og sjávarútveg frá

sjónarhóli kvenna.^ Vilborg

Harðardóttir segir frá í fyrstu

grein sinni frá ráðstefnunni í.

Þjóðviljanum í dag.

Sjá síðu 9

Hernaður

Varavöllur

yrði herstöð

Það er barnaskapur að halda

að varaflugvöllur sem byggður

yrði fyrir fé úr mannvirkjasjóði

Nató yrði undir íslenskum yfir-

ráðum. Fé til slíks vallar mundi

miðast við hernaðarþarfir ein-

göngu, og hann yrði að standa

opinn hernaðarflugi dag og nótt,

bæði frá Bandaríkjunum og öðr-

um Natólöndum.

Slfkur varaflugvöllur yrði af

nákvæmlega sama tæi og Kefla-

víkurvöllur, - herstöð fyrst og

fremst -, sem íslendingar kynnu

að fá aðgang að á svipaðan hátt

og á Miðnesheiði, segir Vigfús

Geirdal í Þjóðviljanum í dag í

greininni „Vilja Þingeyingar her-

flugvöll?"

Sjá síðu 7

null