Meira Leita Titlar Greinar Fréttir Um vefinn Algengar spurningar
skrá inn Íslenska Føroyskt Kalaallisut Dansk English

Þjóðviljinn


og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 . . .



Skoða síðu í nýjum glugga  Skoða texta í nýjum glugga  Skoða hágæðaútgáfu í nýjum glugga  Beinn tengill á þessa síðu
Innskráðir notendur geta bætt einstaka síðum við vinnusvæði sitt:
Bæta síðu við bókamerki








þú þarft að vera með Adobe Reader Plugin til að skoða þessa síðu


get Adobe Reader



Þjóðviljinn

					Verðbréfamarkaðurinn

Avöxtun í erfiðleikum

lnnlausnarbeiðnir

fyrir fjórðungi sjóðanna

Viðskiptavinir Ávöxtunar sf hafa á undangenginni viku tekið

út eða farið fram á að fá að taka út, fjórðung þess heildarfjár-

magns sem sjóðir fyrirtækisins ráða yfir. Tífölduðust innlausnir

í Verðbréfasjóði Ávöxtunar hf og Rekstrarsjóði Ávöxtunar hf í

síðustu viku. Hefur þetta leitt til mikilla lausafjárerfiðleika hjá

sjóðunum, sem hafa verið fjarri því að geta staðið við það

fyrirheit að innlausn geti farið fram samdægurs. Þess í stað

skiptir innlausnartími bréfa í sjóðunum nú vikum ef ekki mán-

uðum. Viðlíka ástand á sér vart hliðstæðu í íslenskri fjármála-

sögu.

Forráðamenn Ávöxtunar leggja þó áherslu á að hrina

innlausnarbeiðna sé yfirstaðin og að allir fjármunir í sjóðum

Ávöxtunar séu tryggir og baktryggingar í lagi. Sjóðirnir hafi

ekki orðið fyrir umtalsverðu tapi og Ávöxtun sf. muni því halda

sínu striki.

Sjá síðu 3

á svip í gær. Mynd - ARI

Kveldúlfshúsið mélað niður

I gær byrjuðu vinnuflokkar að méla niður eitt sterkbyggðasta hús sem reist hefur verið hér á landi til að Eimskipafélagið geti byggt lúxushótel á

lóðinni. Það var Thor Jensen sem byggði húsið fyrir fiskverkun á öðrum áratug þessarar aldar en Jón Þorláksson verkfræðingur og fyrsti for-

maður Sjálfstæðisflokksins teiknaði það. Þegar húsið veröur farið hefur frjálshyggjuliðið í Sjálfstæðisflokknum endanlega brotið mélinu smærra

allt það sem minnir á forna frægð á þeim bæ. Mynd: Ari.

Grandi hf

„Fáranlegt verð"

Skrifað undirkaupsamning viðEngeyjarœttina

í gœr. Kaupverðið 500 milljónir

Sigurjón Pétursson borgar-

fulltrúi Alþýðubandalagsins segir

að kaupverð Engeyjarættarinnar

á hlutabréfum borgarsjóðs í

Granda hf. sem undirritað var í

gær sé fáránlegt og að hann muni

greiða atkvæði gegn samningnum

á fundi borgarráðs í dag.

Sigurjón segir jafnframt að

þegar búið sé að bjarga fisk-

vinnslunni úr núverandi kröggum

verði Grandi hf. eitt öflugasta

fyrirtæki sinnar tegundar hér-

lendis sem kaupendur hafi fengið

á 500 milljónir sem sé hreint gjaf-

verð.

Samkvæmt kaupsamningnum

fer framsal hlutabréfanna fram 5.

október nk. en ljóst er að salan

kemur til kasta borgarráðs á

fyrsta fundi þess eftir sumarfrí 15.

september nk.

Sjá síðu 3

Alþýðubandalagið

Þinghald strax

- Við þessar óvissuaðstæður

og með hliðsjón af líklegum efna-

hagsráðstöfunum er það að mati

þingflokksins skýlaus, lýðræðis-

leg og þingræðisleg skylda að

kalla nú saman Alþingi þegar í

stað, segir í bréfi sem þingflokkur

Alþýðubandalagsins sendi Þor-

steini Pálssyni forsætisráðherra í

gær.

Með því að kalla Alþingi sam-

an yrði tryggt að þjóðin fengi

réttar upplýsingar um ástand

efnahagsmála og afleiðingar

hinna ýmsu ráðstafana, segir í

bréfi þingflokksins.

Sjá síðu 2

Ólafsfjörður

Enn

hættu-

ástand

Tug miljóna tjón af

völdum úrkomu og

skriðufalla. Háttí200

íbúar urðu aðyfirgefa

70hús. Spáðstormi

og úrkomu

Gríðarlegt úrfelli gekk yfir Ól-

afsfjörð sl. sunnudag og varð það

til þess að amk. sjö auskriður

féllu úr Tindaöxl og þar af tvær

sem féllu á íbúðahverfi auk ótal-

inna skriða sem féllu í Ólafsfjarð-

armúla og er vegurinn nánast

horfinn með öllu Ólafsfjarðar-

megin. Engin slys hafa orðið á

fólki þrátt fyrir að litlu hafi mátt

muna þegar ástandið var einna

verst.

Almannavarnir lýstu yfir hætt-

uástandi í bænum á sunnudag og

hefur því ekki enn verið aflýst.

Hátt í 200 manns urðu að yfirgefa

um 70 hús efst í bænum vegna

hættu á frekari skriðuföllum. Yfir

30 cm djúpt vatn var á götum

bæjarins þegar verst var og flóði

vatn inn í kjallara og olli miklum

skemmdum. Spáð er stormi og

úrkomu á Norðurlandi

Sjá síðu 3

null