Þjóðviljinn - 01.02.1989, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 1. febrúar 1989 22. tölublað 54. órgangur
Utanríkismál
Jón farí til Túnis
SteingrímurJ. Sigfússon: ísland viðurkenniPalestínuríki. ísland verði
formlega lýst kjarnorkuvopnalaust svœði. Jón Baldvin Hannibalsson:
Hugsanlegt að halda friðarráðstefnu hér á landi
Jóni Baldvini Hannibalssyni
utanríkisráðherra hefur verið
boðið í opinbera heimsókn til Is-
raels í aprfl. Hann segist ekki hafa
tekið ákvörðun um það hvort
hann bjóði ísland sem stað til að
halda alþjóðlega ráðstefnu um
málefni ísraels og Palestínu, þó
slíkt geti vel komið til greina.
Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra segir sjálfsagt að
utanríkisráðherra heimsæki for-
ustumenn Palestínumanna í
framhaldi heimsóknar til ísraels
og að ísland viðurkenni Palestín-
uríki.
Utanríkisráðherra sagði á
fundi Kvennalistans um utan-
ríkismál á Hótel Borg á mánu-
dag, að ef Steingrímur Her-
mannsson þáverandi utanríkis-
ráðherra hefði heimsótt PLO í
Túnis í fyrra, hefði þeim mögu-
leika verið spillt að halda hér á
landi alþjóðlega ráðstefnu um
málefni Palestínu og ísraels. Jón
Baldvin sagði í gær, að það væri
ofmælt að segja að mikil vinna
væri í gangi í utanríkisráðuneyt-
inu til að fá slíkar ráðstefnur til
fslands. Það hefði þó verið boðið
í sambandi við lokafund Vínarr-
áðstefnunnar. Einnig hefði Grik-
kjum og Tyrkjum verið boðið að
funda um deilumál sín í Reykja-
vík.
Á sama fundi sagðist
Steingrímur vera tilbúinn til að
Ekki augljóst að ráðstefna um Miðausturlönd fari fram í grennd við
Norðurpólinn, segir Jón Baldvin. Mynd:Þóm.
lýsa því yfir að ísland væri kjarn-
orkuvopnaiaust svæði. Jón Bald-
vin sagði Steingrím hafa lýst
þessu yfir í sinni utanríkisráð-
herratíð, og sjálfur hefði hann
gefið sams konar yfirlýsingu í
ræðu hjá Sameinuðu þjóðunum í
haust. Hann treysti því að
fullveldi íslands væri virt í þess-
um efnum, þannig að kjarnorku-
vopn væru td. ekki um borð í
skipum sem kæmu til landsins.
Steingrímur J. Sigfússon sagðist
skilja orð forsætisráðherra þann-
ig, að ekkert væri því til fyrir-
stöðu að ísland yrði formlega lýst
kjarnorkuvopnalaust svæði.
Boð Jóns Baldvins til ísraels
hefur ekki verið rætt í ríkisstjórn-
inni, að sögn Steingríms J. Sigfús-
sonar. Hann telur hins vegar eðli-
legt að það verði gert, þar sem
um stórt mál sé að ræða, og um
leið verði afstaðan til Palestínu-
málsins rædd. Steingrímur sagð-
ist hafa talið það fullkomlega
eðlilegt að nafni hans Hermanns-
son færi til Túnis. „Við hefðum
kannski getað tekið þar frum-
kvæði og komið hreyfingu á þessi
mál fyrr en ella varð,“ sagði
Steingrímur. Sér væri hugsað til
þess frumkvæðis sem hin Norður-
Landsbankinn-SIS
Valur skiptir um starf
Segiraf sér stjórnarformennsku íSÍS, Samvinnutryggingum ogESSO
og lœtur afstarfi kaupfélagsstjóra KEA til að gerastLandsbankastjóri.
Olafur Sverrisson, GuðjónB. Ólafsson, Kristján Loftsson og Magnús
Gauti Gautason fylla skörðin
Valur Arnþórsson sest í sapti
bankastjóra Landsbanka Is-
lands í dag, enda hefur hann sagt
af sér þeim störfum sem hann hef-
ur gegnt fyrir Samvinnuhreyfíng-
una þar til í dag. Hefur Valur sent
bréf til þeirra Olafs Sverrissonar,
varastjórnarformanns SÍS sem
tekur við stjórnarformennsku frá
og með deginum í dag, Axels
Gíslasonar forstjóra Samvinnu-
trygginga og Vilhjálms Jóns-
Nýja tryggingafélagið
5.900 tillögur að nafni
„Við auglýstum eftir nafni á
nýja tryggingafélagið, og gáfum
almenningi stuttan frest, bara
þrjá daga. Samt fengum við alls
5.900 uppástungur! Við gætum
jafnvel sett upp nafnabanka fyrir
ný fyrirtæki,“ sagði Ingi R.
Helgason, forstjóri Brunabótafé-
lags Islands.
Tillögumar bera með sér hvað
almenningur hefur góðan orða-
forða, sagði Ingi, og beitir honum
af mikilli hugkvæmni. Menn
leika sér með málið af ótrúlegri
fjölbreytni og þarna em jafnvel
orð sem ekki eru til í orðabókum.
Það verður ekki leikur einn
fyrir dómnefndina að velja úr
þeiSum fjölda, en í henni sitja
auk Inga þeir Axel Gíslason og
Jónas Kristjánsson handritafræð-
ingur.
SA
sonar, forstjóra Olíufélagsins
hf.-ESSO þess efnis að hann segi
af sér stjórnarformennsku í þess-
um fyrirtækjum. Þá segir Valur
af sér sem kaupfélagsstjóri KEA
frá gærdeginum að tclja.
Ólafur Sverrisson, fyrrum
kaupfélagsstjóri í Borgarnesi og
varaformaður stjórnar SÍS tekur
við stjórnarformennsku frá og
með deginum í dag og fram að
næsta aðalfundi SÍS sem verður í
júní. Hann sagði að ætlunin hefði
verið að halda stjórnarfund í
sambandi við afsögn Vals en því
hefði ekki verið við komið vegna
veðurs. Hins vegar ætti hann von
á því að stjórnin héldi Val kveðj-
ukvöldverð innan skamms.
Ólafur sagði að hann þyrði ekki
að segja um hvort hann sæti
áfram sem stjórnarformaður eftir
aðalfundinn í júní og hann bygg-
ist ekki við neinum stómm
breytingum eftir að hann tæki við
löndin hefðu tekið undanfarna
mánuði í þessum málum.
Úr því að Jón Baidvin taldi
ekki rétt af Steingrími Her-
mannssyni að fara til Túnis, þar
sem hann gæfi þannig öðrum að-
ilanum undir fótinn, fer hann
varla til ísraels án þess að fara
einnig til Túnis, að sögn Stein-
gríms J. Sigfússonar. Annarsværi
Jón Baldvin að gera það sama og
hann sagði Steingrím ætla að
gera, bara á hinn veginn.
Þó Jón Baldvin segði ísland vel
koma til greina sem ráðstefnu-
stað, sagði hann það ekki liggja í
augum uppi að ráðstefna um
deilumál í Miðausturlöndum yrði
haldin í grennd við Norðurpól-
inn -hmp
stjórnarformennsku, nær væri að
tala um blæbrigðamun.
Það verður Kristján Loftsson
hjá Hval hf., sem tekur við
stjórnarformennsku af Val í
ESSO, enda hefur Kristján setið
þar sem varaformaður stjórnar.
Ný stjórn verður kosin á næsta
aðalfundi sem verður sennilega
haldinn seinnihluta aprílmánað-
ar. Vilhjálmur Jónsson, forstjóri
sagðist hafa móttekið afsagnar-
bréf Vals og stjórnarfundur yrði
haldinn í dag. „Víð munum senda
tilkynningu um þessar breytingar
í stjórn til Hlutafélagaskrár og til
Lögbirtings strax á morgun. Við
gleymum því ekki,“ sagði Vil-
hjálmur.
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri
SÍS mun sem varaformaður Sam-
vinnutrygginga taka við stjóm-
arformennsku í fyrirtækinu.
phh
Reykjavík
Sameinuð
stjómar-
andstaða
Stjórnarandstöðu-
flokkar í borgarstjórn
sameinast um nýja
fjárhagsáœtlun fyrir
Reykjavíkurborg. Til-
lögur kynntar í dag
Borgarfulltrúar stjórnarand-
stöðuflokkanna í borgarstjórn,
Alþýðubandalags, Alþýðuflokks,
Framsóknarflokks og Kvenna-
framboðs munu í dag kynna sam-
eiginlega tillögu að nýrri fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar.
Þetta er í þriðja sinn á þessu
kjörtímabili sem stjórnarand-
stöðuflokkarnir sameinast um al-
veg nýja fjárhagsáætlun gegn til-
lögum og frumvarpi borgarstjóra
og Sjálfstæðismanna.
Frumvarp stjómarandstöð-
unnar gerir samkvæmt heimild-
um Þjóðviljans ráð fyrir meiri
tekjum borgarsjóðs en frumvarp
Sjálfstæðismeirihlutans auk þess
sem gert er ráð fyrir meiri arð-
semi frá fyrirtækjum borgarinn-
ar. Megininntak fmmvarps
stjórnarandstöðunnar er hins
vegar tilfærsla á fjármagni frá
skrautbyggingum í borginni yfir í
félagslega þjónustu.
í þætti Alþýðubandalagsins á
útvarpi Rót í kvöld kl. 22.30 mun
Kristín Ólafsdóttir borgarfulltrúi
gera grein fyrir samstarfi stjóm-
arandstöðuflokkanna og frum-
varpi þeirra að fjárhagsáætlun
borgarinnar.
-•g.