Þjóðviljinn - 13.04.1989, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 13. aprfl 1989 70. tölublað 54. árgangur
ASÍ
Enga gengisfellingu
* *
Asmundur Stefánsson: Uti bláinn að viðgerum kröfu um gengisfellingar. Skýrsla sjávarútvegsnefndar
ASÍ erfráþvíí janúar. Leggjum höfuðáherslu á að kaupmáttur verði tryggður
„Ég held að það megi einfald-
lega slá því föstu að það stendur
ekkert til af okkar hálfu að gerast
talsmenn atvinnurekenda gagn-
vart ríkisvaldinu um gengisfell-
ingu, það er út í bláinn að við
tökum eitthvert slíkt hlutverk að
okkur. Sú skýrsla sjávarútvegs-
nefndar ASÍ sem Útvarpið hefur
verið að vitna í og segir að gengis-
fellingar sé þörf, hún er að stofni
til frá því í október á síðasta ári og
var fullunnin í janúar. Þannig að
hún er ekki nýtilkomin,“ sagði
Ásmundur Stefánsson, forseti ASI
í samtali við Þjóðviljann í gær.
Sagði Ásmundur að atvinnu-
rekendur neituðu frekari við-
ræðum við ASÍ fyrr en Þjóð-
hagsstofnun hefði svarað tiltekn-
um spurningum atvinnurekenda
um mat á samningum BSRB,
hver áhrif það hefði, ef greiðslum
verði hætt úr verðjöfnunarsjóði
sjávarútvegsins og fleira. Búist
væri við að svör lægju fyrir nú á
föstudag. „Það er hins vegar ljóst
að það er fyrst núna að samningar
stærstu félaga okkar eru lausir
eða frá mánudeginum að telja. Ef
ekki fást skýr svör frá atvinnurek-
endum í næstu viku blasir við að
félögin muni afla sér verkfalls-
heimilda. Við horfum fyrst og
fremst á niðurstöðu samninga
varðandi kaupmátt en einblínum
ekki á krónutölur. Ríkisstjórnin
hefur í dag engin loforð gefið
hvorki um gengi né verðlag. Við
munum að sjálfsögðu hlutast til
um að verðhækkunum verði
haldið í lágmarki,“ sagði Ás-
mundur Stefánsson.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans búast ASÍ menn við erfið-
um samningum við VSÍ og þung-
um. Krafa atvinnurekenda og
sérstaklega útflutningsfyrirtækj a
um gengisfellingu er þung. Hefur
verið talað um að ef samningar
BSRB verði yfirfærðir á ASÍ- fé-
laga kalli það á um 2% gengisfell-
ingu og önnur 5% komi til þegar
greiðslum úr verðjöfnunarsjóði
sjávarútvegsins verði hætt í júlí.
Þá er miðað við að aðstæður eins
og fiskverð erlendis haldist
óbreytt frá þvf sem nú er.
phh
Hafnarfjörður
Maður fórst við
hafnarmynnið
Dráttarbátur með dýpkunarpramma
sökk
Maður á sextugsaldri fórst er dráttarbáturinn Björn
sökk rétt utan við Suðurgarðinn í Hafnarfirði um tvöleytið
í gær. Annar maður sem var um borð í pramma sem
dráttarbáturinn var að fara með út fyrir hafnargarðana,
reyndi að bjarga þeim sem var um borð í dráttarbátnum en
tókst ekki og synti þá upp að hafnargarðinum.
Dráttarbáturinn var í eigu Dýpkunarfélagsins hf, sem
hefur unnið við dýpkun í Hafnarfjarðarhöfn nær óslitið
síðan í desember. Báturinn var að fara með pramma fullan
af botnleðju út fyrir hafnarmynnið til þess að losa hann.
Að sögn Eðvards Ólafssonar rannsóknarlögreglumanns
er aðdragandinn að slysinu enn óljós. Báturinn hafi lagst
skyndilega á hliðina og sá er var á prammanum kastað sér
til sunds og reynt að opna brúarhurðina en ekki tekist.
Þegar slysið átti sér stað, var varðskip nýkomið í Hafn-
arfjarðarhöfn. Fóru kafarar þaðan þegar á slysstað og
köfuðu niður að dráttarbátnum, en fundu skipverjann
ekki.
Dýpkunarskipið Reynir kom síðan á slysstað og tókst að
ná dráttarbátnum upp með gröfu. Hinn látni fannst í brú
skipsins. Ekki er hægt að greina frá nafni hans að svo
stöddu.
-Sáf
Kafarar komu köðlum utan um dráttarbátinn í
gröfuna á dýpkunarskipinu og þannig náðist bát-
urinn upp. Mynd Jim Smart.
BHMR
Alltí
hnút
Óvíst um fundahöld ídag.
Ríkistilboði hafnað
Mikil óvissa er um fundahöld í
deilu BHMR og ríkisins í dag,
viku eftir að verkfall skall á.
Samninganefnd BHMR hafnaði í
gær tilboði ríkisins, en felldi þess í
stað fyrri kröfugerð sína inn í til-
boðið.
f tilboði ríkisins var lagt til að
samið yrði út þetta ár um launa-
hækkanir sambærilegar og í
BSRB-samningnum en samið um
önnur sératriði til þriggja ára.
Ríkissáttasemjari hefur boðað
deiluaðila til sín árdegis í dag en
óvíst er um frekari fundahöld.
Siglóleigan
Skiptaréttur beittur þrýstingi
Þrotabú Sigló hf. á ekkertnema hússkrokkinn um verksmiðjuna. Flestfram-
Svo virðist sem forráðamenn
Sigluness hf. og fyrrum eigendur
Sigló hf. hafi beitt skiptarétti í
Siglufirði miklum þrýstingi í því
skyni að fá réttinn til að fallast á
að leigja þeim þrotabúið til 7
mánaða, sama dag og Sigló hf,
var úrskurðað gjaldþrota.
Þennan dag 6. aprfl um hádeg-
isbil komu forráðamenn Siglun-
ess hf. og þáverandi eigendur
Sigló hf. og Guðmundur Krist-
jánsson bústjóri þrotabúsins til
Siglufjarðar og um þrjúleytið var
Sigló hf. úrskurðað gjaldþrota.
Þremur tímum seinna var búið að
ieigja Siglunesi þrotabúið.
leiðslutœkin íeigu nori
Að sögn Erlings Óskarssonar
bæjarfógeta í Siglufirði lá for-
ráðamönnum Sigluness afar
mikið á að skiptarétturinn gengi
að tilboði þeirra um leigusamn-
ing og gekk rétturinn að því. Ella
hefðu þeir dregið tilboðið til
baka. Erlingur vildi ekki gefa upp
hver leiguupphæðin væri og sagði
aðeins að þetta væri góður leigu-
samningur fyrir búið og tryggði
hagsmuni þess, enda allt topp-
tryggt. Aðspurður afhverju bréfi
heimamanna um ósk um við-
ræður við skiptaráðanda um leigu
hafi ekki verið sinnt sagði Er-
lingur að það hefði borist of seint.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
ns kaupleigufyrirtœkis.
viljans réð það baggamuninn í af-
stöðu skiptaréttarins til leigu-
samningsins við Sigluness hf. að
þrotabúið á í raun og veru ekkert
annað en hússkrokkinn um
verksmiðjuna en vel flest fram-
leiðslutækin er í eigu Sven Linner
sem er norrænt kaupleigufyrir-
tæki. Áður en Sigló hf. var úr-
skurðað gjaldþrota höfðu
eigendur þess gert 7 mánaða
samning við kaupleigufyrirtækið
sem þeir lögðu fram við skipta-
réttinn! Að sögn Jóns Guðlaugs
Magnússonar aðaleiganda Sigl-
uness hf. og framkvæmdastjóra
Marbakka hf. í Kópavogi var
kaupleigufyrirtækið inní málinu
allan tímann og gaf ma. út viljayf-
irlýsingu í janúar um að það stæði
með þáverandi eigendum Sigló
hf. í hverju sem væri.
í vikunni verður auglýst eftir
kröfum í þrotabú Sigió hf. í Lög-
birtingarblaðinu en kröfuhafar
hafa 2 mánuði til að leggja þær
fram. Vegna réttarhlés í sumar er
ekki búist við að fyrsti skipta-
fundur verði fyrr en seint í sumar
eða í haust.
Á morgun föstudag verður
fjallað nánar um Siglóleiguna í
fréttaskýringu í Nýja Heigarblað-
inu.
-grh