Þjóðviljinn - 24.10.1991, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 24.10.1991, Blaðsíða 1
204. tölublað Fimmtudagur 24. október 1991 56. árgangur Samkeppnisstaða sjávarútvegsins batnar ekki vegna ríkisstyrkja EB Efta-ríkin skuldbinda sig til að beita ekki ríkisstyrkjum í sjávarútvegi í samningi um evrópskt efnahagssvæði. Evr- ópubandalagið getur hinsvegar bætt samkeppnisaðilum heimafyrir þær tollaívilnanir sem ísland hefur fengið með því að veita fyrirtækjunum ríkisstyrki sem þvi nemur, sagði Ól- afur Ragnar Grímsson, Abl., í umræðum um skýrslu utanríkis- ráðherra um EES- samninginn á Alþingi í gær. Hann sagði enn- fremur að þetta ákvæði hefði ekki verið utanríkisnefndarmönn- um Ijóst fyrr en þeir fengu plögg um samninginn í fyrrakvöld og bætti við að Jón Baldvin Hannibalsson hefði ekki getið þessa þeg- ar hann var að lýsa kostum samningsins í skýrslu sinni. Hann sagði að ekki mætti van- meta þann árangur sem hefði náðst með tollaívilnunum, en að það yrði að skoða í ljósi þess að EB getur beitt ríkisstyrkjum en Eftalöndin ekki og í ljósi þess að krafa Islands var fullt frelsi í sjávarútvegi sem hefi bannað ríkisstyrki EB. „Þetta hefur nú snúist algjöríega við,“ sagði Ólafur Ragnar. Stjómarandstaðan ítrekaði kröfu sína um þjóðaratkvæði um samninginn í umræðunum og lýsti furðu sinni á því að ríkisstjómin hafnaði því í upphafi umræðna um samninginn. Ólafur Ragnar sagði að til að tryggja fyrirvara um til dæmis landakaup útlendinga og orkulindir landsins þyrfti að setja lög til að trygja fyrirvarana. Talað er um slík lög sem girðingar. Hann sagði að nauðsynlegt væri að búið væri að setja öll slík lög áður en samning- urinn verður borinn undir atkvæði á Alþingi. Bæði hann og Steingrímur Hermannsson, Frfl., töldu ákvæði um fyrirvara í samningnum veik, sérstaklega hið almenna öryggis- ákvæði. Undir það tók Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kvl., sem benti á orðalag ákvæðisins þar sem ffam kemur að stórfelldur tilflutningur þurfi að koma til, áður en ákvæð- inu er beitt varðandi búsetu. Hún spurði hvað þetta þýddi nákvæm- lega. Jón Baldvin lýsti öllum kostum samningsins og því sem náðst hefði í síðustu lotu samninganna á svipaðan hátt og fyrir blaðamönn- um daginn áður, einsog kemur ffam í Þjóðviljanum í gær. Þá lýsti Steingrímur þvi sem varhugavert væri í samningnum. Hann setti spumingarmerki við landakaup, frelsi í búsetu- og atvinnurétti, skylduaðild að verkalýðsfélögum, þá staðreynd að nýsett lög um er- lenda fjárfestingu haldi sennilega ekki hvað varðar 25 prósenta há- mark eignaraðildar að bönkum og mörg önnur slík vamarákvæði í lögunum. Hann ræddi þann mögu- leika að útlendingar gætu eignast öll tryggingafélög í landinu og verslanir og sagði að menn yrðu að velta fyrir sér hagræðinu að því annarsvegar að lækka verð til neyt- enda og hinsvegar að hugsanlega missa allt foræði fyrirtækja úr höndum Islendinga. Bæði hami og Ólafur Ragnar vöraðu við því að ef hugmyndir ríkisstjómarinnar á einkavæðingu banka og orkufyrirtækja gengju eftir gætu útlendingar eignast þessi fyrirtæki með húð og hári. Ólafur Ragnar benti á að hugsanlega gætu útlendingar átt allar virkjanir á Is- landi áður en öldin er úti, þar sem ef orkufýrirtækjum verður breytt í almenn hlutafélög er gersamlega ómögulegt samkvæmt EES-samn- ingnum að banna útlendingum að kaupa þau hlutabréf. En að því stefnir ríkisstjómin, einsog kemur fram í hvítbókinni. Ólafur Ragnar og Steingrimur era báðir formenn sinna flokka og stóðu að gerð samningsins í sið- ustu ríkisstjóm, en vildu með þess- um málflutningi benda á að það skipti máli í sambandi við sam- þykkt samningsins hvemig rikis- stjóm tæki á fjölmörgum slíkum málum. Ingibjörg Sólrún benti þá á hví- líkt völundarhús stjómkerfi EES yrði þar sem EB talaði einni röddu og Efta annarri röddu. Hún sagði að um yrði að ræða málamiðlun á málamiðlun ofan þar sem fyrst þyrftu íslendingar að komast að samkomulagi innan Efta áður en hægt væri að tala einni röddu. -gpm Tekist á um varaformann VMSÍ Samstaða virtist ríkja meðal þingfulltrúa um að Björn Grétar Sveinsson, formaður Verkalýðsfélagsins Jökuls á Höfn í Hornafirði yrði næsti formaður sambandsins. Um Jón Karlsson sem varaformann ríkir ekki sama einingin, og hefur HrafnkeU A. Jónsson verið nefndur jafnt honum í það embætti. Á göngum Hótels Loftleiða, fara að líta í kringum sig og athuga þar sem 16. þing Verkamannasam- þessa hluti. bandsins fer fram, var kosning varaformannsins rædd í hveiju homi. Töluðu ýmsir um að kosn- ingar i stjóm sambandsins væra orðnar of pólitískar og sýndist sitt hveijum í því sambandi. Þegar Þjóðviljinn spurði einstaka þing- fulltrúa um afstöðu þeirra til nefndra manna í varaformanns- embættið varð ljóst að ef til kosn- inga kemur verður mjótt á munun- um., I þingsalnum snerist umræðan affur á móti um launakjör verka- fólks og ástandið í þjóðfélaginu, nú þegar samningar væra lausir. Guðmundur J. Guðmundsson sagði það einkennilegt að í allri tæknivæðingu nútímans, þar sem stöðugt fækkaði á vinnustöðum, væri það einkennilegt að ekki væri hægt að auka launin við þá sem eftir væra. Hann sagði og að vönt- un á starfsfólki í fiskvinnslu og í heilbrigðisþjónustunni, á sama tíma og atvinnuleysi mældist með mesta móti, vera alvarlegt. Þessar greinar ættu ekki að vera afgangs- stærðir í þjóðfélaginu. Fólk yrði að í ályktunum sem samþykktar hafa verið í einstökum aðildarfé- lögum Verkamannasambandsins og fulltrúar þeirra kynntu úr ræðu- stól er útlit fyrir að kjarasamningar verði erfiðir. Krafan um 75 þúsund króna lágmarkslaun, hækkun skatt- leysismarka og aukið atvinnuör- Á þingi Verkamanna- sambandsins verða nýr formaður og varaformaður kosnir. Frá vinstri eru Þórir Danfelsson, fram- kvæmdastjóri VMSÍ, Björn Grétar Sveins- son sem einna helst hefur verið nefndur I formannsembættið og Jón Karisson, sem gefur kost á sér f varaformannsemb- ættið. Mynd: Jim Smart. yggi var nefnt í flestum ályktan- anna. Einnig nefndu menn það sem vannst með þjóðarsáttinni og vora hræddir við endurkomu óstöðug- leikans í efnahagslífinu. Nánar er fjallað um þing Verkamannasambandsins á bls. 4. -sþ Friðrik telur Heklu-bíla hentuga fyrir ráðherra Friðrik Sophusson fjár- málaráðherra telur ástæðu þess að þrír ráðherrar Sjálf- stæðisflokksins hafa látið ríkið kaupa bíla af Heklu- umboðinu án útboðs vera þá að bílar frá því umboði henti vel til þeirra nota sem fýlgja ráðherrastarfinu. Þetta kom fram þegar ráð- herrann svaraði fyrirspum Kristins H. Gunnarssonar, Abl., um hversvegna ekki hefði farið fram útboð þegar keyptir vora nýir bílar fyrir þrjá ráðherra og hversvegna þeir hefðu allir verið keyptir af einu og sama umboðinu. Þá sagði Friðrik að unnið væri í neftid að endurskoðun á reglum um bílakaup ráðherra og að þar yrði útboðsleiðin at- huguð sem annað. -gpm

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.