Dagblaðið - 15.11.1975, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 15.11.1975, Blaðsíða 1
frjálst, úháð dagblað sk Þarna eru krossqöturnar. sem Mosfellingar eru orðnir ærið þreyttir á, hreinasta slysagildra fyrir ibúa hreopsins og aðra, sem þarna eiga leið um. — DB-mynd Björgvin. I.árg.— Laugardagur 15. nóvember 1975 — 57. tbl. Ritstjórn Siðumúla 12, simi 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022 LOKA ÞEIR VESTURLANDSVEGI? — óánœgðir Mosfellingar hóta aðgerðum ef ekki verður farið að óskum þeirra Ekki er óliklegt, að Mosfell- ingar taki til sinna ráða i vegamálum, eitthvað svipað og Þorlákshafnarbúar hafa gert. Þar hefur verið mikil óánægja með tvöfaldar krossgötur, og þykir mörgum sem beðið sé eftir þvi að þar verði mjög al- varlegt slys. Krossgötur þessar liggja þvert yfir Vesturlandsveg, og er annars vegar farið upp i Reykjalund en hins vegar i nýju hverfin, sem kennd eru við Holt og Tanga. Meðfram' Vestur- landsvegi sjávarmegin, svo sem 20—30 metra frá, liggur annar vegur, sem nær frá kaupfélag- inu niður að Hlégarði. Þar myndast aðrar krossgötur, og eru þær þá orðnar með fárra billengda millibili. Umferð um Vesturlandsveg er mikil og óvægin, og ekki þyk- ir til bóta að hafa aðrar kross- götur, þar sem aðeins gildir al- mennur umferðarréttur, alveg ofan i krossgötunum á Vestur- landsveginum. Yfirvöld munu hafa látið i ljósi óánægju með þessa tilhögun, en ekki hefur verið hróflaðviðkrossgötunum, heldur voru þær oliumalbornar. Framfarafélag sveitarinnar, hreppsnefndin og fleiri hafa lát- ið til sin taka, án þess að breyt- ing yrði á gerð. Nú munu framundan fundahöld og fleira um þessar krossgötur, en ef ekkert raunhæft verður að gert, héfur hópur manna bundizt samtökum um að sýna svo ekki verður um villzt, að hugur fylgir máli, þegar farið er fram á lag- færingu á þessari vegalagningu. —JBP— Lögreglan kannar verksummerki á slysstaðnum i gærkvöldi. — HB-mynd Björgvin. 20 ÁREKSTRAR URÐU í GÆR OG TVÖ MINNI HÁTTAR SLYS Það stóð ekki lengi, slysa- lausa timabilið i umferðinni. 1 Reykjavik urðu 18 árekstrar i gær á timabilinu frá kl. 12.30 til kl. 19 i gærmorgun urðu tveir á- rekstrar kl. 7.30 og kl. 7.55. Tvö slys urðu á fólki i árekstr- um þessum. Kl. 13.30 varð á- rekstur á mótum Réttarholts- vegar og Bústaðavegar. Dreng- ur, sem var farþegi i öðrum bilnum, var fluttur i slysadeild en ekki talinn alvarlega meidd- ur. Kl. rúmlega sex i gær varð á- rekstur á mótum Grensásvegar og Fellsmúla. Okumaður ann- ars bilsins hruflaðist i andliti en var ekki talinn alvarlega meiddur. Kl. rúmlega sex i gær varð á- rekstur á mótum Grensásvegar og Fellsmúla. ökumaður ann- ars bilsins hruflaðist i andliti en var ekki talinn alvarlega meiddur. 1 allri þessari árekstrasúpu kom þó ekki til alvarlegs tjóns. Enginn bilanna var t.d. fluttur á brott með aðstoð krana. ASt. SAM- KOMU- LAG VIÐ ÞÝZKA AÐ FÆÐAST Viðræður islenzkra og vestur-þýzkra embættis- manna i Reykjavik að und- anförnu hafa aukið likurnar á samningum. Þær hafa leitt til þess, aö ákveðið hefur veriö, að islenzkir ráðherrar hitti vestur-þýzka starfs- bræður sina i Bonn á miðvikudaginn. Einar Agústsson fer og væntanlega einnig Gunnar Thoroddsen. Dagblaðið hefur það eftir áreiðanlegum heimildum, að embættismennirnir hafi i stórum dráttum náð saman i ýmsum atriðum. Aður hefur verið skýrt frá þvi, að Vestur-Þjóöverjar hafa fall- izt á, að frystitogarar þeirra fái ekki undanþágur i land- helginni. Deiluaðilar munu nú vera komnir nálægt sam- komulagi um verulegan samdrátt i aflakvóta Vestur- Þjóðverja. Það, sem nú ber helzt á milli, er, hvernig veiðisvæðum þeirra verði hagað. —HH NU FER ENGINN í JÓLA- KÖTTINN — baksíða um námslónin AÐ VAÐA UMFERÐAR- STRAUMINN í KLOF — Háaloft á bls. 8 HVAÐ SEGJA STJÖRNURNAR? — stjörnuspá fyrir sunnudag og mánudag á bls. 14 og 15 Bandaríkin: LÆKNAMYNDIR í SJÓNVARPI ORSÖK MÁLAFERLA - Sjá opnu

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.