Dagblaðið - 05.07.1976, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 05.07.1976, Blaðsíða 1
fiiálst, úháð dagUað 2. ARG. — MANUDAGUR 5. JÚLÍ 1976 — 144.TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, 4UGLVSINGAR OG AFGREIDSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022. NÝ LODNUSYÆÐI FUNDIN? GOD VEIÐ! TVEGGJA SKIPA „Þarna er talsverð loðna en spurningin til þessa hefur verið hvort hún væri í veiðanlegum torfum," sagði Jakob Jakobsson fiskifræðingur er hann var inntur eftir loðnufregnum. t fyrrinótt fókk Sigurður RE um 200 tonn norður af Siglu- firði. Tók hafrannsóknaskip smásýnishorn þar en ekki benti neitt til að þar væri um stórar torfur að ræða. í gærkveldi var Bjarni Sæmundsson staddur um 150 mtlur norður af Skagafirði þegar hann fann dálitið af torf- um. Þarna komu svo að Guð- mundur RE og Sigurður RE og veiddu hvor um sig tæplega 300 tonn. Afli þessi var að sögn Jakobs mjög sæntilegur og loðnan allvel útlítandi. Loðnuveiðar eru bannaðar fram lil 15. júlí þar sem loönan er yfirleitt mjög horuð á þessum árstíma. Veiðar þessara tveggja togara voru því meira tilraunaveiðar, en sérstakt leyfi þarf til loðnu- veiða fram til þess að bannið gengur úr gildi. i Jakob bjóst ekki við að skip myndu flykkjast þarna að, alla vega ekki fyrr en betur væri búió að rannsaka svæðið. Rannsóknaskipin munu væntanlega halda sig á þessum slóðum. I ÞESSARI KOS BEIÐ LEIFUR EIRIKSS0N Meðal atriða í hátíðahöldun- um í Bandaríkjunum á 200 ára afmælinu í gær voru tvær sigl- ingar upp Hudson-fljótið. 1 fyrri skipalestinni voru banda- rísk herskip en í þeirri siðari seglskip, þar á meðal tólf stærstu seglskip í heimi. Myndin er tekin skömmu áður en seglskipaflotinn fór af stað. Einhvers staðar í kösinni er íslenzka víkingaskipið Leifur Eiríksson og áhöfn þess. Seglskipin voru á þriðja hundrað í allt auk óteljandi smábáta sem fylgdust með. Mecking tók f orystu í Manila Hinn ungi skáksnillingur Brasilíu, Henrick Mecking, náði forystunni á millisvæða- skákmótinu í Manila er biðskákir voru tefldar og staðan varð ljós. Mecking tókst á snilldar- legan hátt að ná vinningi í biðskák gegn Uhlmann í 57. leik. í biðskák gegn Biyiasas samdist um jafntefli án frekari taflmennsku. Mecking hefur því 11.5 vinninga. Hort frá Tékkóslóvakíu átti engri skák ólokið en er í 2. sæti með 11 vinninga. Polugajevsky, sem stjórnaði hvítum mönnum. samdi um jafntefli við Spasský og er Polugajevsky í 3. sæti með 10 vinninga. Jafn honum er landi hans Czeskovsky sem vann báðar biðskákirnar, sem hann átti, gegn Harrandi frá íran og gegn Panno fró Argentinu. -ASt. VtflllY RATHNOV. -BALLETTEN laætaaaE •»^T^,~r^TTTTr PREBEN KAAS i . lil HÚN SÓLEY DANSAR iBakk”umik4n38ns Kaupmannahöfn — 18-19 Cargolux 21. stœrsta flugflutninga- fyrirtœkið — sjó bls. 9 Hvað getur borgin gert fyrir iðnaðinn? — Sjó kjallaragrein Sjörgvins Guðmunds- sonar bls. 10-11 Drópu alla skœruliðana í Uganda og fóru með gíslana heim Erl. fréttir ó bls. 6 • 7 Löggan hafði mikið ij að gera um helgina — sjó bls. 8

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.