Dagblaðið - 28.08.1976, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 28.08.1976, Blaðsíða 1
2. ÁRG. — LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1976 — 190.TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÓLA 12, SÍMI 83322. AUGLVSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SlMI K27022 Morðinginn fór út aðaldyramegin — út í umferðarþunga Miklubrautar ( - sjá bqksau ] Við leitina á Miklatúni í gær. Meðal þeirra sem þar voru var hinn frægi rannsóknarlögreglumaður Karl Schiitz. Einn lögreglumannanna heldur á fötunum sem fundust í kjarri á túninu (DB-mynd Sveinn Þormóðsson). *■ jg FJÖGUR MORÐ ÞAÐ SEM AF ER ÁRINU Morðið á Lovísu Kristjáns- dóttur er fjórða morðið sem framið er hérlendis frá ára- mótum. Öll fyrri morð hafa verið framan í hreinu og beinu tilgangsleysi og svo virðist einnig um þetta. 10. janúar í vetur var Baldur Jónsson úrsmiður myrtur í kjallaraherbergi á IJáteigsvegi í Reykjavík. Morðinginn fannst en reyndist ekki sakhæfur vegna andlegs ástands síns. 4. apríl var Guðbjörn Tryggvason skotinn til bana á götu á Akureyri. Morðinginn reyndist átján ára piltur sem „langaði að drepa einhvern,“ að eigin sögn. Hann er nú í geð- rannsókn og gæzluvarðhaldi. 6. júní myrtu tveir átján ára piltar Guðjón Atla Arnason í sandgryfju við Fífuhvammsveg í Kópavogi. Ástæðan var engin, en eftir að þeir höfðu barið hann í höfuðið með tómum flös- um þótti þeim réttara að ganga alveg frá honum. Þeir sæta nú geðrannsókn og sitja í gæzlu- varðhaldi. 26. ágúst finnst Lovísa Krist- jánsdóttir myrt á grimmdarleg- an hátt í íbúð við Miklubraut í Reykjavík. Morðinginn var ófundinn um kvöldmat í gær.ÓV fjárféstingarbankans: Norsk-íslenzka umsóknin kemur vel til greina — lánum aðeins stórlán Lánsumsókn tslenzka Járn- blendifélagsins og norska fyrir- tækisins Elkem Spigerverket til Norræna fjárfestingarbankans vegna málmblendiverksmiðj- unnar á Grundartanga, virðist koma vel heim við þau verkefni sem bankanum voru ætluð er hann'var stofnaður í vor, eftir því sem bankastjórinn, Bert Lindström,ságði á blaðamanna- fundi í Reykjavík í gær. Lindström virtist líta mjög jákvæðum augum á þessa um- I til langs tima sókn, en tók fram að það væri bankastjórnarinnar að ákveða nánar þar um. Er DB spurði hann hvort bankinn myndi hugsanlega lána allt að helmingi fram- kvæmdakostnaðar í heild, sagði hann að slíkt væri óráðið, al- gengt væri að fjárfestingar- bankar lánuðu allt að helmingi og norræni fjárfestingarbank- inn lánaði ekki nema stórlán og væri honum ekki ætlað að standa í samkeppni við al- menna viðskiptabanka. Komi til lánveitingar er af- greiðslutími óviss, en víst er að lánið yrði til langs tíma. Eins og kunnugt er, telja umsækjendur lánsins afgreiðslu þess eina mikilvægustu forsenduna fyrir fyrirtækinu. Tilgangur bankans er að veita lán og ábyrgðir til sam- norrænna fjárfestingarverk- efna og til þess að efla sam- eiginlega útflutningshagsmuni Norðurlandaþjóða. Til þess að lánsumsókn komi til greina þarf hún að varða hagsmuni a.m.k. tveggja norrænna þjóða. Stofnfé bankans, miðað við núverandi gildi ísl. krónunnar, er um 80 milljarðir, en þar af leggur ísland fram eitt prósent. Jón Sigurðsson, þjóðhagsstjóri og Þórhallur Ásgeirsson ráðu- neytisstjóri, sitja í stjórn bank- ans fyrir íslands hönd. — G.S. Bert Lindström, bankastjóri: tilgangur bankans m.a. að lána til orkufreks iðnaðar. (DB- myndÁrniPáll.) i Dœmi úr fjármálasögu íslands: Hœstaréttarlögmaður kœrður fyrir þjófnað og ávísanamisferli — grein Halldórs Halldórssonar birtist i Dagblaðinu á mánudaginn

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.