Dagblaðið - 01.10.1976, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 01.10.1976, Blaðsíða 1
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA* 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA. ÞVERHOUTI 2. SÍMI 27022 1 Kom bréfið fró borginni of „Hér er ekki um verkfall að ræða, heldur hreinlega uppsagnir úr starfi,“ sagði Þórunn Guðmundsdóttir, röntgentæfenir á Borgar- spítalanum í viðtali við frétta- mann Dagblaðsins. „Við höfum nú til meðferðar bréf borgar- stjóra, þar sem ætlunin er að framlengja uppsagnarfrest okkar um 3 mánuði. Við gerum okkur grein fyrir hvers konar vandræðaástand skapast af því, að röntgentæknar segja almennt upp störfum og hætta þeim. Við ætlum ekki að níðast á neinum enda þótt við neytum réttar okkar lögum sam- kvæmt,“ sagði Þórunn, „en við ætlumst til þess, að ekki sé níðzt á okkur." Röntegntæknar á fjórum stærstu sjúkrahúsum landsins sögðu upp stöðum sínum skriflega og var uppsögnin talin frá 20. ágúst sl. en uppsagnarfrestur er 3 mánuðir. Samkvæmt heimild í reglugerð um réttindi og skyldur starfsmanna Reykja- víkurborgar, getur borgin sem vinnuveitandi, framlengt uppsagnarfresti um 3 mánuði, ef sú heimild er notuð innan mánaðar frá uppsagnardegi. Samareglaeða svipuð gildir um ríkisstarfsmenn. Ekki er vitað til þess, að ríkið hafi í tæka tíð framlengt uppsagnarfrest hjá röntgentæknum á ríkis- spítölum. Sjúkrahúsin, sem röntgentæknar sögðu upp störfum hjá, eru Borgar- spítalinn í Reykjavík, Land- spítalinn, Landakotsspítalinn og Sjúkrahúsið á Akureyri. Vera má að bréfið frá borginni, þar sem uppsagnar- seint? frestur er framlengdur, hafi ekki verið ritað í tæka tíð, en ekjji er enn vitað hvernig við því verður brugðizt af hálfu röntgentækna. „Ef borgin sýnir okkur ein- hvern lit, þá erum við eins' og fyrr til viðræðu," sagði Þórunn Guðmundsdóttir, „en við teljum, að samningsvilji borg- arinnar hafi enn ekki komið fram í viðræðum." -BS. Reynslan erlendis segir: Eldgos ALMANNAVARNIR VIÐ ÖLLU BÚNAR „Það er bara að ýta á einn hnapp og þá fer allt í gang,“ sagði Guðjón Petersen, fram- kvæmdastjóri Almannavarna, í viðtali við fréttamann Dag- blaðsins, er hann spurðist fyrir um viðbúnað vegna síðustu fregna frá Kröflusvæðinu. „Allt kerfi Almannavarna er í viðbragðsstöðu," sagði Guðjón, „og stöðug-vakt er fyrir norðan og stöðvar opnar. Meira er ekki hægt að gera til að tr.vggja skjótan brottflutning og öryggi fólks, ef til tíðinda dregur vegna hugsanlegs eldgoss." Eysteinn Tryggvason, jarðfræðingúr. fór norður í gær til þess að fylgjast með breytingum, meðal annars gliðnun í Leirhnjúk. Þar hafa sprungur gliðnað og gæti það verið fyrirboði þess, að hraun- kvika leitaði þar upp. Samkvæmt reynslu erlendis t.d. á Hawaii, gæti fækkun jarðskjálfta bent tii eldgoss. Við Kröflu voru aðeins tveir merkjanlegir jarðskjálftar i nótt, en hvorugur þeirra mælanlegur, eða undir 2 stigum á Richterkvarða. Övissutímabil eftir svo öra fækkun hræringa getur varað í 1-2 vikur fyrir gos, ef úr því verður. Eysteinn Tryggvason jarðfræðingur rannsaknar nú alveg sérstaklega, hvort aukinn þrýstingur sé á afmörkuðum svæðum og einhverjar bungu- myndanir á yfirborði vegna hans. Fræðimenn eru ekki allir á einu máli um, hvort jarð- hræringarnar undanfarið bendi ákveðið til goss, en ljóst er, að ntenn eru sammála urn, að rétt sé að vera við öllu búnir. -BS. Krónan komin ó flot! Þá er islenzka krónan endan- lega komin á flot. Ilún birtist í dag almenningi í smækkaðri mvnd. og auk þess að hafa -DB-mynd Bj.Bj.— „grenn/.t" ntjög er hún niarg- falt léttari en fyrr, svo létt að hún flýtur hókstaflega ef hún er sett í vatn. Myndin svnir þetta raunar gjörla. Líklega þykir flestum þetta nokkur niðurheging fyrir grundvallar- einingu peningakerfisins. 72% aföll af krónunni i New York — baksiða Fimm gullhringjum og fjór- um silfurhringjum var stolið úr sýningarglugga hjá gullsmíða- stofu Hjálmars Torfasonar að Laugavegi 28 í nótt. Hringarnir eru 120—130 þúsund króna virði að söluverðmæti og hafa ekki fundizt enn. Á myndinni sést Hjálmar við brotinn glugg- ann. Hjá Gevafoto í Austurstræti var ennþá stærri rúða brotin og úr glugganum hirtar tvær Olympus myndavélar, sem eru 250 þúsund króna virði. Líklegt má telja að einhverjum verði boðnir til kaups hinir stolnu munir í dag eða á næstunni. —ASt. a

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.