Dagblaðið - 30.03.1979, Blaðsíða 26

Dagblaðið - 30.03.1979, Blaðsíða 26
30 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1979. Hver má klippa og hver greiða? Rakari kærður fyrir hárgreiöslu „Já, það er alveg rétt, það er búið að kæra mig. En ég veit ekki alveg fyrir hvað. Getur þú kannski sagt mér það,” sagði Villi Þór, rakari i Ármúlanum, þegar hann var spurður að því hvort hann hefði verið kærður fyrir að klippa og greiða kvenfólki. f>að er Hárgreiðslumeistarafélag íslands sem kærir Villa Þór. Formaöur þess félags er Arnfríður ísaksdóttir, eigandi hár- • greiðslustofunnar Permu. Hún sagði „hárgreiðsla er lögvernduð iðngrein og aðrir mega ekki stunda hana en þeir sem til hennar hafa lært. Það er alltaf að aukast að ófaglært fólk fáist við hárgreiðslu og spillir það mjög fyrir orðstir fagsins. Það var því samþykkt á fundi í félaginu að lögð yrði fram kæra. Á hvaða margar stofur vil ég ekkert um segja.” Á sama hátt og Arnfríður segir að í lögum standi að rakarar megi ekki greiða kvenfólki mega hárgreiðslu- meistarar ekki heldur klippa karlmenn. En það hefur færzt mjög í vöxt hin síðari ár að karlmenn létu klippa sig á hárgreiðslustofum. Var ekki eins ástæða til að kæra það? „Ja, þeir (rakarar) geta kært það ef þeir vilja. Ég skipti mér ekki af því. En ég hef margoft sagt við hár- greiðslumeistara að þeir ættu ekki að fara út fyrir sitt verksvið,” segir Arnfríður. Villi Þór vill hins vegar meina að ekkert meini honum að greiða kvenfólki. „Ég er með skjal upp á það að ég sé útskrifaður í hárskurðar- og rakaraiðn. Auk þess hef ég tekið námskeið í hárgreiðslu, lært hana alls í ár af einu og hálfu. Ég man lika ekki betur en hver einasta rakarastofa i bænum, eða minnsta kosti vel flestar, auglýsi með skiltum úti á götu, að þær klippi herra jafnt sem dömur. Þetta hefur verið gert síðan áður en ég fæddist. Og enginn hefur gert neitt fyrr en núna. Satt bezt að segja held ég að nú eigi að fara að nota mig sem eitthvert tilraunadýr með þessum mál- flutningi,” segir hann. Hann bendir einnig á að röksemd Arnfríðar um að ófaglært fólk á rakarastofum letji fólk frá frekari viðskiptum sé léttvæg þar sem sömu viðskiptavinirnir komi æ ofan í æ. Á meðan svo sé finnist sér fáránlegt að banna einum eða neinum rakara að fást við kvenfólk og eins að banna hárgreiðslustofum að klippa karlmenn, vilji þeir það heldur en að fara til rakara. s\mko;uiagið Hvað se&ia i ríkisstjornmm: ■ ■ w liV VVgJM verkalýðsleiðtogamir? Dagblaðið hafði samband við nokkra verkalýðsleiðtoga í gær og innti þá álits á því samkomulagi sem í gær virtist hafa tekizt í ríkisstjórninni en samkvæmt því mun minni kaupskerðing verða á launum undir 200 þúsund krónum á mánuði i dagvinnu en á öðrum launum. Fara svör þeirra hér á eftir. -GAJ- Vor f lofti Vor er í lofti og prófannir nálgast. fegin því er skóla lýkur. Þá tekur við Ekki verður betur séð en þessi unga sumarvinnan og afslöppun frá skóla- stúlka liti sumarið vonaraugum, setunni. DB-mynd RagnarTh. Dagurfærekkí Wt-. A|a|, ríkisstyrkinn fl I w Cil \J| U peningarnir? ,,Já, það er rétt, Dagur hefur aldrei fengið þann ríkisstyrk sem blaðið átti að fá árið 1978. Peningarnir virðast vera týndir i kerfinu,” sagði Erlingur Davíðsson ritstjóri Dags á Akureyri er hann var spurður að því hvort það gæti verið að Dagur hefði orðið útundan í styrkveitingum á síðasta ári. „Ég hef auglýst eftir þessum styrk og beðið þingmenn kjördæmisins að reyna að hafa upp á honum fyrir mig en það hefur enginn gefið sig fram. Kerfi rikisstyrkja er ákaflega flókið. Annars vegar er um að ræða styrki til dagblaða sem þau fá beint. Hins vegar er um að ræða styrki til svokallaðra landsmálablaða sem stjórnmála- flokkarnir fá og úthluta síðan. Dagur er landsmálablað en enginn virðist samt hafa tekið að sér að miðla peningum til blaðsins,” sagði Erlingur. En hvar eru þá peningar Dags? Eða átti hann yfírleitt að fá einhverja peninga? Svarthöfði Vísis sagði Tímann i Reykjavík hafa fengið hlut Dags. Það var borið undir Kristin Finnbogason, framkvæmdastjóra blaðsins. ,,Á síðasta ári fékk Tíminn ná- kvæmlega þrjár milljónir 175 þúsund krónur í ríkisstyrk. Úthlutað var 60 milljónum og þar af fóru 9 milljónir beint til landsmálablaðanna. Hvernig þær skiptust veit ég ekki en ég veit að Tíminn hefur ekkert fengið af því sem Dagur átti að fá.” Það er þingflokkur Framsóknar- flokksins sem dreifir því fé sem lands- málablöð eiga að fá. Kristján Bene- diktsson, starfsmaður þingflokksins, er sagður eini maðurinn sem veit um það hvar peningarnir gætu verið, hafi þeim verið úthlutað. Hann er ekki í bænum og ekki hægt að ná í hann. Gunnlaugur Sigmundsson afhendir peningana fyrir hönd fjármálaráðuneytis. Hanner ekki i bænum og ekki hægt að ná í hann. Hvað varð af hluta Dags af milljón- unum 9 er þvi óvíst ennþá. -DS. Jón Helgason. „Mundi greiða at- kvæði gegn þeim” — segir Benedikt Davíðsson, formaður Sambands byggingarmanna ,,Ég er mjög óhress yfir þeim hug- myndum, sem ég hef heyrt og þær eru mjög langt frá okkar hugmyndum,” sagði Benedikt Davíðsson, formaður Sambands byggingarmanna. „Það er fyrst og fremst þessi „princip”breyting á vísitölunni sem ég tel beinlínis vera brot á samningum og sérstaklega það að setja vísitöluna á hundað hverju sinni sem reiknað er. I öðru lagi að áfengis- og tóbaksliðnum sé breytt frá því sem gert var ráð fyrir og í þriðja lagi að bindiskylda við Seðlabankann sé aukin um 12—16%. Þetta er mjög þvert á þær hugmyndir sem við höfum gert okkur. Ef þetta Benedikt Davíðsson. gengur fram svona að þessi frestun á kjaraskerðingu um 2% til 1. des., ef hún á þá að koma til framkvæmda 1. des., þá finnst mér þetta mjög slæmir punktar og mundi hvar sem er greiða atkvæði gegn þeim.” -GAJ- Pétur Sigurösson. — segir Jon Helgason, formaður Einingar ,,Ég hef ekkert heyrt í hverju þetta samkomulag er fólgið. Ég hef verið það önnum kafinn að ég hef ekki haft fyrir því að hringja menn uppi en náttúrlega fagna ég því að þessir menn ná saman,” sagði Jón Helgason, for- maður Verkalýðsfélagsins Einingar á Akureyri. „Ég lít svo á að jafnvel þótt launin séu skert í bili þá eigum við að geta treyst þessum mönnum til að bæta það strax og hagur batnar. Ég hef alltaf vonaðaðþetta tækist áendanum, þótt það kostaði mikið stríð. Að öðru leyti vil ég ekki tjá mig nánar um þetta þar sem ég hef ekki séð þessar hugmyndir. Menn hafa gert of mikiö að því að segja hluti sem þeir hafa ekki getað staðið við.” -GAJ- Slóðin rakin Það voru heldur óþrifalegar af- urðir sem láku aftan af vörubílnum þeim arna. Hann var að flytja slóg á Skúlagötunni i fyrradag og allt frá Vitastig að Barónsstig mátti rekja slóðina. Auk þess sem bilstjórinn reyndi að hreinsa upp það mesta kom flokkur borgarstarfsmanna og sá um að koma Skúlagötunni aftur i viðun- andi horf. DB-mynd Sv. Þorm. „ Allir þurfa að herða sultarólina” — segir Pétur Sigurðsson, formaður Alþýðusambands Vestfjarða „Ég tel að þetta sé undirstrikun á þvi, og það held ég að allir séu sammála um, að eitthvað verði að gera og að allir þurfi að herða sultarólina til að komast út úr vandanum og ná niður verðbólgunni,” sagði Pétur Sigurðsson, formaður Alþýðusam- bands Vestfjarða. „Ég held þó að verðbólguskriðan sé ekki þeim að kenna sem eru á töxtum verkalýðsfélaganna. Ég held að þar hljóti fremur að koma til ofvöxtur annars staðar í þjóðfélaginu. Ég held að meirihluti verkafólks sé sammála um að þessi ríkisstjórn verði að halda áfram og verði að fá meiri tíma. Kannski stjórnarandstaðan vilji líka að hún sitji lengur í þeirri von að hún geri fleiri vitleysur.” -GAJ- „FAGNA ÞVÍ EF ÞEIR NÁ SAMAN”

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.