Dagblaðið - 25.01.1980, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 25.01.1980, Blaðsíða 1
t 6. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 25. JAN. 1980 - 21. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022. VINSTRISTJÓRN AÐ TJALDABAKI? ' * — menn í fnmstu víglínu vinstri fíokkanna ræða stjómarmyndun bak við tjöidin — viðræðumar auðvdda ekki stjómarmyndunar- tilraunir Benedikts Á bak við tjöldin standa nú yfir viðræður áhrifamanna Alþýðu- flokks, Alþýðubandalags og Fram- sóknarflokks um stjórnarmyndun þessara flokka. 1 þessum viðræðum eru menn í fremstu víglinu sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum. Rætur þessara viðræðna standa miklu dýpra en þær, sem hingað til hefur verið byggt á í þeim opinberu tilraunum, sem fram hafa farið um slika stjórnarmyndun. Gæti svo farið, að baktjaldamenn stæðu fyrr en varir framar á sviðinu en þeir sem nú eru í tilraunum með Stefaníu. Þessar viðræður auðvelda ekki tilraunir undir forystu Benedikts Gröndal. Hafa þær farið svo leynt, að þær eru jafnvel ekki á vitorði sumra fremstu flokksoddanna með neinni vissu. Talið er að Steingrímur Hermannsson hafi þó veður at viðræðum þessum. Séu þær ekki illa séðar af honum, enda þótt hann komi ekki nærri þeim sjálfur. Þrátt fyrir að í gangi séu nú viðræður um myndun stjórnar Alþýðuflokks, Framsóknárflokks og Sjálfstæðisflokks, og ekki sé útilokað, að þær beri árangur, sem leiði til stjórnarmyndunar, þá er hitt alveg víst, að mjög sterkir áhrifa- menn vinstri flokkanna ræða annan möguleika í fullri alvöru. Geðþóttaákvörð- un ráðuneytis hvemig kflómetragjald hækkar Hækkanir hjá stóru bílunum virka eins og nýr skattur á dreif- býlisfólk - sjá bls. 9 Dómstaálaráðherra um ólöglegar leigumiðlanir: Skrif DB vöktu athygli réttra aðila á málinu — sjá bls. 8 Saksóknari lét tímamæla leiðina til Keflavíkur á nýjan leik — sjá bls. 9 Carter býður Kínverjum vopn en Chrysler 50 dollara til hvers kaupanda — sjá erl. fréttir bls. 6 og 7 Saga vetrar- ólympíuleikanna — sjá íþróttir bls. 12 Bóndadagurinn er I dag — fyrsti dagur Iþorra — og Pálsmessa. Þessi dagur er búinn að skipa sér fastan sess í lifi landsmanna með þvi að þá byrja menn gjarnan á að snœða hinn gómsœta þorramat sem endist mörgum út allan þorrann. — Þessir matar- legu menn á myndinni eru matreiðslumenn / Múlakaffi er hefúr á undanförnum árum séðþúsundum Reykvlkinga fyrirþorramat. Þeir eru f.v. Þórður Þorgeirsson, Stefán Stefánsson, Diðrik Ölafsson og Lárus Loftsson. DB-mynd Bjarnleifur. Sjá nánar um þorramatinn á bls. 4 og 5. ÞORRINN BYRJAR í DAG Útvegsmenn um nýja fiskverðið: „Með þvi að leggja útgerðinni rekstrargrundvöll sem byggir á sama aflamagni og 1979, teljum við að hið opinbera hafi þegar tekið ákvöröun ,um að veiða svipað af þorski og í fyrra, 345 þúsund tonn,” sagði Kristján Ragnarsson, framkvæmda- stjóri Landssambands islenzkra út- Þýðir 45 þús. tonn umfram tillögur fiskifræðinganna vegsmanna i viötali við DB i morgun eftiraðnýtt fiskverð lá fyrir. ,,Við ákvörðun ftskverðs nú lágu fyrir útreikningar um afkomu út- gerðarinnar miðað við núverandi rekstrarskilyrði og aflamagn i fyrra og er þessi ályktun dregin af samanburði þeirra talna og nýs fisk- verðs. Ætla ég að sjómenn taki i sama streng og við, án þcss að hafa sérstaklega kannað það,” sagði Kristján. Fiskifræðingar leggja til 300 þúsund tonna þorskafla, eða 45 þús. tonna minni afla en i fyrra og a.m.k. i upphaflegum tillögum stjórnvalda var miðað að þvi að halda fast við það mark. Ekki náðist i morgun að bcra þctta ntál undir sjávarútvegs- ráðherra eða forsvarsmenn sjómanna. -GS. A

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.