Dagblaðið - 27.04.1981, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 27.04.1981, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1981. [C íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Þeir Prakash Padukone (nær) og Ray Stevens eiga hér f höggi við þá Brodda Krist- jánsson og Guðmund Adolfsson i tvfliðaleiknum á laugardag. DB-mynd S. RISAKAST VESTEINS - þriðji bezti árangur íslendings í kringlukasti frá upphafi Vésteinn Hafsteinsson, hinn stór- efnilegi tvftugi kastari, náði þriðja bezta árangri lslendings frá upphafl i kringlukasti er hann kastaði kringl- unnl 56,54 metra á móti nú um helg- ina. Bezti árangur Vésteins fyrir þetta | var 54,60 metrar þannig að framfar- irnar eru miklar. Aðeins þeir Óskar Jakobsson og Erlendur Valdimarsson hafa kastað kringlu lengra en hann. íslandsmet Erlendár 64,32 metrar og I sett fyrir þó nokkrum árum. Bróðir Vésteins, Þráinn, hefur einnig kastað kringlunni yfir 50 metrana og hefur að undanförnu verið að kasta upp undir þá vegalengd. -SSv. Teitur með mark —skoraði annað marka Öster í 2-1 sigri yf ir Gautaborg. Lék sinn 80. Allsvenskan leik fyrir félagið Teltur Þórðarson skoraði annað marka öster f 2—1 sigri liðsins gegn Gautaborg i Vaxjö i fyrrakvöld. Þetta var annar sigur öster f jafnmörgum leikjum f Allsvenskan svo ekkl er hægt að segja annað en meistararnir fari vel af stað. „Já, þetta hefur gengið ffnt hjá okkur núna framan af,” sagði Teitur er DB ræddi við hann. „Við vorum reyndar 0—1 undir þar til um miðjan siðari hálfleikinn gegn Gautaborg, en tókst þá að skora tvívegis með 7 mín- útna millibili. Fyrst jafnaði ég og svo skoraði Jan Mattson sigurmarkið.” Broddi náði að vinna eina lotu af Stevens — en Prakash Padukone var íalgerum sérflokki „Þetta var ákaflega vel heppnuð heimsókn fyrir okkur að öllu leyti, held ég megi segja, Og geysilega miklll feng- ur að þeim Padukone og Stevens,” sagði Sigfús Ægir Árnason hjá TBR við DB i gærkvöld eftlr að þeir félagar höfðu sýnt listir sfnar gegn islenzkum badmintonmönnum, svo og i innbyrð- isleikjum. Á laugardag léku þeir Padukone og Stevens nokkra sýningarleiki og höfðu betur í viðureignum sfnum við íslenzku spilarana í öllum tilvikum. Stevens sigr- aði Guðmund Adolfsson 15—5 og 15— 2 og sfðan vann Prakash Padukone Brodda Kristjánsson 15—5 og 15—4. Þeir Padukone og Stevens léku svo tví- liðaleik gegn þeim Brodda og Guð- mundi og sigruðu þar 15—6 og 15—9. Loks léku þeir tveir innbyrðis og þar sigraöi Padukone 17—14 og 15—3 í geysilega skemmtilegum leik. í gær var svo haldið mót i TBR-hús- inu og tóku 6 sterkustu íslendingarnir þátt í því. Fjórir og fjórir voru saman í riðli og að sjálfsögðu sinn útlendingur- inn i hvorum riðli. Prakash sigraði þá Sigfús Ægi, Sigurð Kolbeinsson og Guðmund alla næsta örugglega án þess að hafa ýkja mikið fyrir sigrum sfnum. Stevens lenti hins vegar i erfiðari bar- áttu og mátti sjá á bak einni lotu til Brodda Kristjánssonar, sem lék geysi- vel. Broddi vann fyrstu lotuna 18—15, en tapaði svo 6—15 og 6—15. I riðlin- um voru einnig þeir Víðir Bragason af Akranesi og Þorsteinn Páll Hængsson og vann Stevens þá báða án teljandi erfiðleika. í úrslitaleiknum á milli þeirra Padu- kone og Stevens hafði Indverjinn betur eins og fyrri daginn. Sigraði 15— 6, 12—5 og 15—7. Þeir Padukone og Stevens héldu af landi brott ( morgun eftir vel heppnaða för og vafalitið hafa íslenzkir spilarar lært heilmikið af þeim þennan tíma sem þeir dvöldu hér. -SSv. Mattson þessi er arftaki Teits f öster- liðinu og var keyptur í vetur frá Bayer Uerdingen. Heil umferð var leikin f Svíþjóð um helgina og uröu úrslit leikjanna sem hér segir: AIK—Norrköping 1—1 Brage—Malmö 1—0 Elfsborg—Hammarby 3—2 Sundsvall—Kalmar 4—1 Aatvidaberg—Halmstad 2—1 örgryte—Djurgaarden 3—1 öster—Gautaborg 2—1 Teitur leikur sinn sfðasta leik með öster þann 8. júní nk. og heldur þá til Frakklands þar sem hann hefur gert tveggja ára samning við Lens. Við spurðum hann hvort ekki væri kominn fiðringur í hann út af skiptunum. ,,Nei, það held ég ekki, a.m.k. er bezt að taka þessu rólega og biða bara og sjá hvað verða vill þegar þarna suöur er komið.” Hvað segirðu okkur af þeim Herði Hllmarssyni og Erni Óskarssyni? „öm fékk mjög góða dóma fyrir leik sinn um fyrri helgi er örgryte tap- aði 1 —2 úti fyrir Kalmar og ég held að örn hafi staöið sig mjög vel hjá félag- inu. Eitilharður baráttujaxl sem gefur aldrei eftir. Hins vegar hef ég ekkert frétt af Herði nokkuð lengi.” íslendingar eru nú hjá fjórum félög- um í Allsvenskan — auk áðurnefndra þriggja er Þorsteinn Ólafsson hjá Allt á afturfót- unum hjá Feyenoord Flest gengur nú á afturfótúnum hjá Feyenoord i Hollandi og i gæf tapaði liðlð, 0—1, fyrlr Den Haag á útivelli. Klaus Fischer aftur í v-þýzka hópinn! —en aðeins 4 leikmenn Bayem og Hamborgar í 16 manna hépnum gegn Austurríki Klaus Fischer, miðherjinn sterkl hjá Schalke 04, var á föstudagskvöld val- inn á ný f v-þýzka landsliðshóplnn eftir 14 mánaða fjarveru. Horst Hrubesch gat ekki geflð kost á sér vegna meiðsla og var Fischer valinn i hans stað. Klaus Fischer aftur i landsllðshópnunj eftlr 14 mánaða fjarveru. Jupp Derwall tilkynnti 16 manna hóp sinn fyrir leikinn mikilvæga gegn Austurrikismönnum á miðvikudag fyrir helgina og er hann þannig skipað- ur. Markverðir: Seike Immel (Dort- mund), Toni Schuhmacher (Köln). Varnarmenn: Bemd Dietz (Duisburg), Karl Heinz Förster (Stuttgart), Wilfreid Hannes (Gladbach), Manfred Kaltz (Hamborg), Uli Stielike (Real Madrid). Tengiliðir: Paul Breitner (Bayern Milnchen), Hans Peter Briegel(Kaisers- lautern), Felix Magath (Hamborg), Hansi MUller (Stuttgart), Bernd Schuster (Barcelona). Framherjar: Karl Allgöwer (Stutt- gart), Klaus Allofs (DUsseldorD, Klaus Fischer (Schalke 04), Karl Heinz Rummenigge (Bayern). Það vekur nokkra athygli að aöeins 4 leikmenn eru úr liðum Bayern og Ham- borgar. Tveir frá hvoru félagi. Stutt- gart á hins vegar flesta leikmenn, þrjá. Tveir koma frá Spáni. Liklegasta upp- stillingin er þessi: Schumacher, Dietz, Förster, Kaltz og Stielike. Breitner, Mílller og Schuster. Allorfs, Fischer og Rummenigge. Þessi uppstilling miðast við 4-3-3. Verði hins vegar leikin að- ferðin 4-4-2 dettur Fischer líkast til út og Magath kemur þá í hans stað. -SSv. Það sem annars vekur athygll er að AZ '67 virðist ekki lelka með sama öryggi og áður og tapaði nú stigi i markalausu jafntefli á heimavelli gegn Twente Enschede. Úrslitin í Hollandi urðu, sem hér segir: NAC Breda-Roda 1—0 PSV Eindhoven-Deventer 1 — 1 Den Haag-Feyenoord 1—0 AZ ’67-Twente 0—0 PEC Zwolle-Maastricht 0—1 NEC Nijmegen-Ajax 0—0 Sparta-Wageningen 3—0 Excelsior-Utrecht 2—2 Groningen-Willem 11 0—0 Staða efstu liðanna er nú þessi: AZ ’67 27 23 3 1 79-21 49 Feyenoord 28 16 7 5 58-31 39 Utrecht 28 15 8 5 67-28 38 Ajax 27 16 4 7 68-46 36 PSV Eindhoven 28 14 8 6 49-23 36 Skagamenn nældu sér íaukaleik! Akurneslngar tryggðu sér aukalelk vlð Breiðablik um slgurinn i Litlu bikarkeppninni er þeir sigruðu FH 4—0 á Akranesi f gær. Staðan var 2—0 i hálflelk. Leikurinn var í nokkru jafnvægi framan af en síðan tóku heimamenn smám saman völdin. Fyrsta markiö skoraði Kristján Olgeirsson um miðjan fyrri hálfleikinn eftir stungusendingu og rétt fyrir hlé bætti Árni Sveinsson öðru marki við úr vítaspymu. Guðjón Þórðarson, sem að þessu sinni lék á miðjunni, skoraði þriðja mark Skagamanna og það fjórða var gull af marki — eign Gunnars Jónsson- ar. Viðstöðulaus þrumufleygur eftir fyrirgjöf. Keflvíkingar sigruðu Hauka 3—2 í Litla bikarnum á laugardag. Lokastað- an varð þessi: Akranes Breiðablik FH Keflavfk Haukar 4 3 0 1 11 —5 6 4 2 2 0 10-7 6 4 2 0 2 4-9 4 4 112 7-7 3 4 0 1 3 6-10 1 se/SSv. Gautaborg en fótbrotnaði í vetur og hefur enn ekki náð sér á strik eftir þau meiðsl. Aðeins þrjú lið hafa unnið báða leiki sína í Allsvenskan til þessa. Sundsvall, Brage og öster. Brage kom geysilega á óvart í fyrra og hafnaði i 2. sæti á eftir öster, en liðið var í 2. deild fyrir tveim- ur árum. Sundsvall-liðið hefur komiö mjög á óvart nú í vor en menn hallast að því að liðið skorti reynslu til að halda út I toppbaráttunin lengi. -SSv. Teitur skoraöl mark fyrir öster i 80. Allsvenskan lelk sinum fyrir félagið. Hefur ekki misst leik úr á fjórða ár. Tapleikur HjáTulsa Chicago Sting sigraði Tulsa Rough- necks, liðið sem Jóhannes Eðvaldsson leikur með i amerisku knattspyrnunni, 1—0 á laugardag. Það er annar tap- leikur Tulsa-llðsins i keppninni. í öðrum leikjum urðu úrsllt þau, að Montreal Manic slgraði Dallas Tomado 3—1, San Dlego Sockers vann Los Angeles Aztecs 2—0, Vancouver Whitecaps vann Minnesota Kicks 1—0, Jacksonville Teamen vann Tampa Bay Rowdies 2—1 og Callfornla Surf vann Seattle Sounders 2—1. Stórskellur hjá Frömurum Framarar léku æfingaleik við KA á Akureyri á sumardaginn fyrsta og máttu þola stórt tap, 1—5. í bæði liðin vantaði lykllmenn, m.a. þá Elmar Geirsson, Gunnar Gislason og Jóhann Jakobsson hjá KA. öruggur sigur samt og greinilegt að KA verður erfltt heim að sækja i sumar.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.