Frjáls verslun - 01.05.1973, Blaðsíða 21
könnu. Sé skipt eftir aðal-
starfsemi, dreifast fyrirtæk-
in þannig á atvinnugreinar:
Þjónusta í víðtækri
merkingu: 23
Iðnaður: 13
Sjávarútvegur: 12
Landbúnaður: 2
Sérstaklega ber að gera
fyrirvara um, að kaupfél-
Ög:n eru hér talin til þjón-
ustu í víðtækri merkingu,
enda þótt mörg þeirra
sturdi jafnframt fistkvinn-
slu og kjötvinnslu. Þetta
þýðir því, að hlutur þjón-
ustu er hér ofmetinn að til-
tölu við aðrar greinar. Eigi
að síður er áberandi, að fyr-
irtæki, sem flytja boð milli
manna, vörur og fólk
skipa sér í efstu sætin
á listanum. Þetta endur-
speglar bæði þann kostnað
sem er við yfirbygginguna
í fámennu og strjálbýlu
landi og þau miklu við-
skipti, sem landið á við
umheiminn um flutning á
vörum og mönnum.
3) Sömuleiðis verður óhjá-
kvæmilega nokkur skörun,
ef flokka á fyrirtæki eftir
því, hvort þau starfa í
Reykjavík eða úti á landi.
Ef skipt er eftir því, hvar
aðalstöðvar fyrirtækis eru,
lenda 32 á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu, en 18 annars
staðar á landinu. Öllu raun-
hæfari skipting fæst senni-
lega með því að draga fyrir-
tækin í þrjár dilka eftir
dreifingu starfsemi þeirra.
Þá fæst, að starfsemi 18
fyrirtækjanna var næstum
einvörðungu bundin við
Stór-Reykjavík, starfsemi
14 fyrirtækja, sem höfðu
aðalstöðvar þar, var dreifð
víðsvegar um landið, en at-
hafnasvæði 18 var úti ó
landsbyggðinni.
Vestmannaeyj afy rirtækin
vekja sérstakan áhuga í
þessu sambandi, en sem sjá
má voru hin 4 öflugu fisk-
iðjuver þar meðal 50
stærstu fyrirtækja lands-
ins árið 1971.
3) Af 50 stærstu fyrirtækjun-
um árið 1971 voru 16 ríkis-
og bæjarfyrirtæki, en 32 í
eigu einkaaðilja og sam-
vinnufélaga. Þar við bætist
hlutur hins opinbera í
Slippstöðinni á Akureyri og
í Álafossi. Af þeim fyrr
nefndu voru % í eigu ríkis-
ins. — Af þeim síðar
töldu var um þriðjungur í
samvinnufélagsformi.
Ef sjúkrahús, elli-, barna-
og öryrkjaheimili væru talin
með, yrði hlutur ríkis og
sveitarfélaga meiri en hér
greinir.
I þessu sambandi má geta
athugunar, sem gerð var í
þann mund, er ísland gerðist
aðili að EFTA, áhlutdeild
stærsta fyrirtækis í nokkrum
iðngreinum. Er þá miðað við
framleiðslutekjur á tekjuviðri.
Hlutdeild stærsta fyrirtækis í
viðkomandi iðngrein var meiri
en 60% árið 1968 í sements-
framleiðslu, skógerð, pappírs-
vörugerð, sútun, leirmunagerð
og kemískum undirstöðuiðn-
aði (Áburðarverksmiðjan).
Hlutdeild stærsta fyrirtækis
var hins vegar minni en 15%
í fatagerð, húsgagnagerð, inn-
réttingarsmíði, gúmmíiðnaði,
raftækjasmíði og viðgerðum.
Væri mjög fróðlegt að kanna
þessi mál nánar, en það krefst
mikillar vinnu, vegna þess að
starfsemi margra fyrirtæki er
er svo dreifð, að erfitt er að
skipta þeim á tiltekinn bás.
At.hugun á stærðarhlutföll-
um fyrirtækja er áhugaverð
fyrir margra hluta sakir, þótt
ekki sé unnt að fara frekar í
þá sálma hér. Þannig mætti
athuga sambandið milli styrk-
leika fyrirtækjanna á mark-
aðnum og hegðunar á markaðn-
um, athuga hvaða áhrif fyrir-
tækin hafa á framleiðsluþátta,
verðmyndun o. fl.
Einnig væri fróðlegt að
gera samanburð við nágranna-
löndin.
50 stærstu
Röð skv.
vinnuaflsnotkun (öll starfsemi meðtalin):
1. Póstur og sími.
2. Loftleiðir hf. (erl. starfsmenn meðt.).
3. Eimskipafélag íslands hf.
4. Samband íslenzkra samvinnufélaga.
5. Kaupfélag Eyfirðinga.
6. Vegagerð ríkisins.
7. íslenzka álfélagið hf.
8. Landsbanki íslands.
9. Sláturfélag Suðurlands.
10. Flugfélag íslands (erl. starfsmenn meðt.).
11. Mjólkursamsalan.
12. Bæjarútgerð Reykjavíkur.
13. Rafmagnsveitur Reykjavíkur.
14. Útgerðarfélag Akureyrar hf.
15. Ríkisútvarpið.
16. Kaupfélag Árnesinga.
17. Haraldur Böðvarsson & Co., hf.
18. Olíufélagið hf.
19. Júpiter hf. og Marz hf.
20. Bæjarútgerð Hafnarfjarðar.
21. íslenzkir aðalverktakar sf.
22. Fiskiðjan hf., Vestmannaeyjum.
23. Olíufélag íslands hf.
24. Landsvirkjun sf.
25. Slippstöðin hf., Akureyri.
26. Strætisvagnar Reykjavíkur.
27. Olíufélagið Skeljungur.
fyrirtækin
28. Kaupfélag Borgfirðinga.
29. Gefjun, Akureyri.
30. Sjöstjarnan hf., Keflavík.
31. Útvegsbanki íslands.
32. Iðunn, Akureyri.
33. ísbjörninn hf.
34. Búnaðarbanki íslands.
35. Áburðarverksmiðjan.
36. Vélsmiðjan Héðinn hf.
37. Hraðfrystistöð Vestmannaeyja hf.
38. Álafoss hf.
39. Breiðholt hf.
40. íslenzkt verktak hf.
41. Sementsverksmiðja ríkisins.
42. Kaupfélag Austur-Skaftfellinga.
43. Vinnslustöðin hf., Vestmannaeyjum.
44. Síldarverksmiðjur ríkisins.
45. Hampiðjan hf.
46. Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins.
47. Kaupfélag Héraðsbúa.
48. Hótel Saga.
49. ísfélag Vestmannaeyja hf.
50. Meitillinn hf., Þorlákshöfn.
(51. Fataverksmiðjan Hekla, Akureyri).
(52. Árvakur hf.).
(53. Þorgeir og Ellert, Akranesi).
(54. Kassagerð Reykjavíkur hfó.
(55. Einar Guðfinnsson hf. og íshúsfélag
ungavíkur hf.).
FV 5 1973
13