Alþýðublaðið - 04.10.1972, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 04.10.1972, Blaðsíða 1
lalþýðu i n niiTrii ÚTGERÐIH ER HÁNAST ENGIN I DAG Ekki tókst Verðlagsráði sjávar- útvegsins að koma saman fisk- verði i gær, þrátt fyrir langa fundarsetu. Hefur nýr fundur verið boðaður i ráðinu i dag. Þá hefur engin hreyfing orðið á tryggingamálum bátaflotans, og halda langflestir útgerðarmenn skipum sinum i höfn. ,,Við vitum ekki með vissu hve mörg skip eru gerð út þessa stundina, en ljóst er að útgerð er m jög óveruleg i land- inu”, sagði Kristján Ragnarsson formaður Ltú i samtali við blaðiö i gærkvöldi. Blaðið innti Kristján eftir þvi hvort sildveiðibátarnir i Norður- sjónum yrðu kallaðir heim vegna ástandsins i tryggingamálum bátaflotans. Kristján kvað mjög erfitt að kalla bátana heim svona langa vegalengd. Hann sagði að Ltú hefði varað útgerðarmenn við þvi að gera út undir núverandi kringumstæðum, og skýrt fyrir þeim málið. Það væri svo undir þeim sjálfum kom- ið hvort þeir gerðu út eða ekki. Þeirsem teldu sig hafa aðstöðu til Framhald á 2. siðu. BREZK NEFND HINGAÐ I.DAG i dag kcmur til landsins brezk sendinefnd til viöræöna við lslendinga um landhelgismáliö. Verða viðræöufundirnir á fimmtudag og föstudag. Kormaður nefndarinnar er herra Keeble aöstoöarráöuneytisstjóri, en í sendinefndinni verður einnig forinaðut brezkra togaraeigenda. Pólverjar, Vestur-Þjóðverjar og Austur-Þjóöverjar hafa óskaö eftir viðræðum um landhelgismálið, og Norðmenn hafa einnig sýnt áhuga. Ekki er vitað hvenær viöræður hefjast viö þessar þjóöir. OG SÖGULOKIN ERU A ... 3. SIÐl t>Á FOR ÞETTA AÐ SKÁNA SÍÐAN RAUK í SUMA ... LOKS STÆKKAÐI BROSIO .. VOÐA .. . SÍS MEÐ AUKA- FUND UM FRYSTI- HÚSIN Stjórn Sambandsfrystihúsanna hefur boöaö fulltrúa allra frysti- húsa sinna til aukafundar i Reykjavik á föstudaginn. „Þaö eru fyrst og fremst rekstrarvandamálin, sem verða á dagskrá á þessum fundi", sagði Guöjón B. Olafsson, fram- kvæmdastjóri hjá StS, i samtali viö blaöið i gær. Kundurinn hefst i Hamragörö- um, fundahúsi Sambandsins viö Hringbraut, á föstudaginn klukk- an tvö. Er við þvl búist aö honum ljúki siðdegis á föstudag. Guðjón sagði, að framleiösla Sambandsfrystihúsanna '.10 væri ákaflega litil þessa stundina. Bæði væri hráefni til vinnslunnar litið, og auk þess væri erfitt aö fá starfsfólk. „Þetta er nú sá timi ársins, sem er minnst spennandi, og þetta hausl hefur verið óvenju dauft", sagði Guðjón B. Ólafsson. Austurriskur lagaprófessor ættaður frá lsracl var i fyrradug ásamt tveimur öðrum, áka>rður fyrir að hafa svikið u.þ.b. 450 milljónir islen/.kra króna út úr vestur-þýzka rikinu. Heninganna fékk prófessorinn sem skaðabætur fyrir listaverk sem nazistar áttu að hafa lagt hald á i Ungverjalandi á striðsárunum. Málverkin áttu svo að hafa veriö flutt til Munchen, en nú lialda vestur-þýzk yfirvöld þvi fram, að hér hafi verið brögð i tafli. MÁTUÐU BELGA lslendingar unnu Belgiumenn á Olympiuskákmótinu i gær meö 2 1/2 vinningi gegn 1 1/2. Eru ts- lendingar efstir i B-riðli ásamt Bretum eftir sex umerðir með 16 1/2 vinning. Kanadamenn eru i þriðja sæti i riðlinum með 16 vinninga, og Norðmenn og lsraelsmenn eru i 4. og 5. sæti með 15 vinninga. AFSÖGDtl NYJA HÚS- NÆDID HÁSKÚLANS Fulltr. nemtenda og kennara i al- mennum þjóðfélagsfræðum við Háskóla Islands hafa skrifað rektor skólans bréf, þar sem þvi er lýst yfir, að kennsla á öðru og þriðja ári geti ekki hafizt á tilsett- um tima, þar sem kennsluhús- næðið sé algjörlega óhæft til kennslu i þvi ástandi, sem það er nú. Hús það, sem hér um ræðir, er j gamla Loftskeytastöðin. Kennsla j i húsinu átti að hefjast næstkom- andi mánudag, en nemendur áttu | að mæta til viðtals i dag. Þeir sem tóku ákvörðun um að kennsla gæti ekki hafizt að sinni, I er ólafur Björnsson, prófessor, | Þorbjörn Broddason, lektor, | Ólafur Ragnar Grimsson, lektor og Hallgrimur Guðmundsson full- j trúi nemenda. Litazt um i Loftskeytastööinni, sem bæöi kennarar og nemendur I þjóö- félagsfræðum eru sammála um að sé óhæft kennsluhúsnæði f núver- andi ásigkomulagi. — Þorbjörn Broddason, lektor er á miðri myndinni, en til vinstri stendur Stefán Halldórsson, þjóðfélagsfræðinemi. Þessir menn eiga sæti i Náms- brautarstjórn og létu þeir frá sér fara eftirfarandi tilkynningu i gær: „Námsbrautarstjórn hefur i dag sent rektor háskólans ályktun þess efnis, að ekki sé hægt að hefja kennslu á 2. og 3. ári þar eð kennsluhúsnæðið, Loftskeyta- stööin, sé nú sem stendur algjör- lega óhæft til kennslu. Náms- brautarstjórn hefur ákveðið ,,að- biða eftir formlegri tilkynningu frá rektor um, aö það húsnæði, sem henni var lofað, sé orðið þannig úr garði gert, að hægt sé Framhald á 2. siðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.