Alþýðublaðið - 03.03.1973, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 03.03.1973, Blaðsíða 1
GUÐMUNDUR G.ÞORARINS. FÉKK VÍTUR VIÐLAGASJÓÐS Alþýðublaðið hef- ur áreiðanlegar heimildir fyrir því, að á fundi Viðlaga- sjóðs, sem var hald- inn í fyrradag, hafi Guðmundur G. Þór- arinsson verið víttur fyrir að láta hafa eftir sér í Tímanum þann sama dag upp- lýsingar um hús þau sem verksmiðjur á Norðurlöndunum hafa boðizt til að gefa Vestmannaey- ingum, áður en hann gaf nefndinni skýrslu um þau. Eins og kunnugt er héldu þeir Guð- mundur, Bárður Daníelsson bruna- málastjóri, Jóhann Friðfinnsson kaup- maður í Eyjum og Hafsteinn Stefáns- son skipasmiður f Eyjum, til Norður- landa alþýðu ílRmW íslenzkur markaður tapar máli gegn Ferðaskrifstofu ríkisins Þurfa að borga 5 milljónir Islenzkur markaöur hf. tapaöi fyrir héraösdómi málinu, sem Feröaskrif- stofa rikisins fór f til aö ná greiöslum á feröamenn, sem á leiö út úr landinu eiga möguleika á aö verzla hjá tslenzkum markaöi. Dómkrafan hljóöaöi upp á tæpar 3 milljónir króna, en siöan hún var sett fram eru liönir einir 10 mánuöir, sem gætu þýtt um 2 milljónir i viöbót. Feröaskrifstofa rikisins haföi I ein 20 ár rekiö verzlun á Keflavikurflug- velli, þegar Islenzkur markaöur hf. tók þar viö á árinu 1970. Samningar tókust um, aö Feröaskrif- stofan fengi 21 krónu af hverjum farþega, sem um völlinn færi. Dómsmáliö kom til vegna þess, aö Is- lenzkur markaöur taldi sig ekki eiga aö greiöa af öör- um farþegum en þeim, sem kæmu og færu sam- dægurs. Dóminn kvað upp Ólafur Hannesson, fulltrúi hjá lögreglustjóraembættinu á Keflavikurflugvelli. Fyrir Feröaskrifstofu rik- isins flutti Öttar Yngvason máliö og Páll S. Pálsson fyrir Islenzkan markaö. SENNILEGA BARA GRÓÐI AF HEIMS- MEISTARAEINVÍGI „Við erum alveg orðnir ofan á f járhags- lega í sambandi við heimsmeistaraeinvíg- ið", sagði Hilmar Viggósson, gjaldkeri Skáksambandsins, er við töluðum við hann í gær í tilefni af því, að nú er síðasta ein- takið af minjapeningunum selt. Eins og kunnugt er, voru gefnar út 400 seriur af gull-, silfur- og eirpeningum til viðbótar þeim, sem áðurvoru gerðar. Hver seria var seld á kr. 19.500,00, og eins og áður segir, eru þær allar seldar. Kvaðst Hilmar þó vilja taka fram, að ekki lægju allir liðir endanlega fyrir, eins og greiðslur til FIDE, kostnaður við bóka- útgáfuna i Bandarikjunum og lögfræði- kostnaður þar. Færi um þessa þætti, eins og Skáksambandið gerði sér vonir um, ættu endar að ná saman. Tveir sjó- menn farast Sannaö þykir aö Islend- ingur hafi brotnaö I spón i grennd viö Dritvík á Snæ- fellsnesi. Tveir ungir menn fórust meö bátnum. Hétu eir ólafur Þór Ketils- son, Álfaskeiöi 94, Hafnar- firöi, 30 ára gamall, og Theodór Guöjónsson, Hvammstanga, 29 ára gamall. Olafur lætur eftir sig konu og fjögur börn á aldrinum 2-9 ára, en Theo- dór lætur eftir sig unnustu. Tómur gúmbátur frá Is- lendingi HU 16 fannst rek- inn á fjöru I Beruvik á Snæfellsnesi skömmu eftir hádegi I gær. Aöur haföi brak, m.a. úr bol og inn- viöum skipsins, og bjarg- hringar frá Islendingi fundizt á reki viö fjörur I Dritvik, nokkru vestar en gúmbáturinn fannst siöar. BLAUTT Gins og þessar myndir ■* bera meö sér voru götur ■ borgarinnar heldur blaut- ■ ar i gær og sumar liktust ■ reyndar fremur stórfijót- m um en brautum fyrir bila. ■ Þegar viö vorum aö m leggja siöustu hönd á ■ blaöiö I gærkvöldi var m komin hundslappadrifa ■ og samkvæmt veöur- a spánni má svo búast viö ■ nokkru frosti. Þaö er þvi J vissara fyrir ökumenn aö m fara hægtisakirnar Idag. JJ BJARNI REKINN FRJALSLYNDUM FRA Tveir formenn í félaginu A fjölmennum fundi, sem haldinn var I Félagi frjálslyndra I Reykjavik i fyrrakvöld var samþykkt tillaga, sem m.a. felur I sér brottvikningu Bjarna Guönasonar úr formanns- sæti I félaginu og úr félaginu sjálfu. Gerir til- iagan, sem samþykkt var, ráö fyrir þvl, aö varafor- maöur félagsins, Guömundur Bergsson, taki viö formennskunni af Bjarna og gegni henni fram til næsta aöalfundar. Tiliaga þessi var sam- bvkkt I fundarlokin meö öllum griddum atkvæöum gegn fjórum. Bjarni hvatti sina menn til þess aö greiöa ekki atkvæöi og gekk hann af fundi ásamt nokkrum sinna stuönings- manna. Var þá séö, aö hann væri i minnihluta á fundinum. Áöur en Bjarni gekk af fundi og um leiö og hann hvatti stuöningsmenn slna til þess aö greiöa ekki at- kvæöi um framangreinda tillögu, lýsti hann þvl yfir, aö hann teldi fundinn ekki hafa vald tii þess aö setja sig úr formannssæti I Félagi frjálslyndra I Reykjavik né vlkja sér úr féiaginu og myndi hann þvi áfram telja sig félags- mann og félagsformann. Viöurkennir Bjarni þvf ekki meirihlutaafgreiöslu félagsfundarins frá I gær og eru þvl um þessar mundir tveir starfandi formenn I félaginu — Bjarni Guönason, sem neitar aö samþykkja frá- vikningu slna, og Guömundur Bergsson, en á honum var ekkiannaö aö skilja I gær, en aö hann samþykkti fyrir sitt leyti afgreiöslu fundarins og tæki þar meö aö sér aö gegna formennsku I Félagi frjálslyndra I Reykjavik fram til næsta aöalfundar. Fundurinn I Félagi frjálslyndra, sem haldinn var I fyrrakvöld, átti sér langan og strangan aö- draganda. Andstæöingar Bjarna Guönasonar I félaginu höföu þráfaldlega óskaö eftir þvi viö hann sem formann félagsins, aö hann boöaöi til fundar I félaginu um brotthvarf hans úr þingflokki Sam- 3. SIÐA

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.