Alþýðublaðið - 30.11.1978, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 30.11.1978, Blaðsíða 1
alþýóu- Fimmtudagur 30. nóvember 1978 —227. tbl. 59. árg. Jafnaðaraienn Gerízt áskrifendur að málgagni ykkar — Alþýðublaðinu, strax í dag Um 70% menntunar - en aðeins um fjórðungur karla I síðasta blaði var nokkuð rætt um starfs- vettvang kvenna í þeim fjórum kaupstöðum, sem jafnréttiskönnun sú, sem nú ertil umf jöllunar, náði til. Kom þar m.a. í Ijós, að iðnlært verkafólk svo- kallað var sjaldhitt meðal kvenna á þessum f jórum stöðum, en sú starfsstétt er langsamlega stærsti undirf lokkur D — stéttar meðal karla. Þetta skýr- ist þegar litið er á mennt- un karla og kvenna. Menntun karla t skýrslunni um jafnréttis- könnunina er menntun skipt i 3 flokka, ,„A” er ,,án sérmennt- unar”. ,,B” er sérnám, minna en háskólanám, en C er sér- menntun á eða við háskólastig. Meðal karla i bæjunum f jórum er höfuðflokkur B alls staðar fjölmennasti flokkur menntun- ar, með og yfir um 58% karla i Garðabæ, Hafnarfirði og Kópa- vogi, en rúmelga 52% þeirra á Neskaupstaö. Langflestir karl- anna i þessum flokki eru i undir- flokknum B-2, „Verkmenntun”, frá tæplega 42% i tæplega 49% þeirra. Næstur i röðinni að stærð meöal karlanna er höfuöflokk- urinn A, „án sérmenntunar”. Stærstur er hann á Neskaup- stað, með um 36% karla þar, með um 29% karla I Hafnarfiröi, um 25% karla i KÓpavogi og loks minnstur I Garöabæ, eins og vænta mátti, með um 21% karla þar. Karlar i höfuöflokki C „sér- menntun á eöa við háskólastig’,’ eruhlutfallslega flestir í Garða- bæ, rilm 18%, I honum eru um 15% i Kópavogi og 10% i Kópa- vogi, en aðeins um 5% karla á Norðfirði. Menntun kvenna Meðal kvenna i bæjunum fjór- um er nokkuð annað uppi á ten- ingnum. Þá er höfuðflokkur- inn „A”, án sérmenntunar, alls staðar fjölmennasti flokkurinn, með heil 80% á Neskaupstað, 73% i Hafnarfiröi, 66% i Kópa- vogi og um 65% I Garöabæ. Fjölmennasti undirflokkur A — flokksins meðal kvenna i öllum bæjunum er A — 4, gagnfræða- prófeðalandspróf, meðum 30% allra kvenna i bæjunum. i flokki B, sérnám minna en háskólanám, en þar til telst að allega menntaskólanám, verk- menntun,. heilsugæslu- og fóstrumenntun, verslunar og kennaramenntun, eru mjög kvenna án sér- Mikiil meirihluti kvenna hefur ekki notiö neinnar sérmenntunar og þvf eru útivinnandi konur fjölmenn astar i láglaunasiéttunum. mismargar konur á stöðunum 4. I Garðabænum eru um 27% kvenna I þessum flokki, en að- eins um 9% á Neskaupstaö. I Kópavogi eru um 25% kvenna I þessum flokki, og um 20% I Hafnarfirði. Verslunar- og ■ kennaramenntun er alls staöar algengasta menntunin i þessum flokki, nema á Neskaupstað, þar sem heilsugæslu- og fóstru- menntun er algengari, enda eru þar hlutfallslega langflest dag- vistarpláss eins og siöar verður um rætt. Aöeins örfáar konur hafa not- iö sérnáms á eða við háskóla- stig, hlutfallslega flestar i Kópavogi, um 5%, um 4% kvenna I Garðabæ, og um 3% kvenna i Hafnarfiröi og á Nes- kaupstaö. Kynbundinn munur menntunarmöguleika Það að aöeins milli þriðjungur og fjóröungur kvenna hefur hlotiö einhverja sérmenntun, meðan aðeins milli fjóröungur og þriöjungur karla er án allrar sérmenntunar, sýnir svo ekki veröur um villst kynbundinn mismun menntunarmöguleika, þvi að sjálfsögðu verður þessi mikli munur á menntun karla og kvenna ekki rakinn til hæfi- leikaskorts hinna siöarnefndu. Dregið verði úr örri fjárfestingu— Rafiðnaðarmenn krefjast efnahagskerfið tekið föstum tökum tryggingar kaupmáttar segir í ályktun frá B.S.R.B. Svofdid ályktunver gerö á fundi stjórnar B.S.R.B. i dag með atk- væðum allra fundarmanna: Vegna fram komins stjórnar- frumvarps um timabundnar ráö- stafanir til viðnáms vegna verö- bólgu, mótmælir stjórn B.S.R.B. þvi eindregið, að gildandi kjara- samningum sé ennþá breytt með lögum og þannig skertur umsam- inn kaupmáttur launa. Stjórnvöld viröast ekki sjá önn- ur ráö til aö draga úr óðaverö- bólgu en minnka kaupmátt launa. Stjórn B.S.R.B. telur, að ráðstaf- anir af þessu tagi hafi þó alltaf reynst skammgóður vermir og ekki dugað til lækningar verð- bólgunnar. Stjórn B.S.R.B. bendir á þá staðreynd, aö Islenska þjóöin hef- ur á nokkrum áratugum endur- byggt svo til allan húsakost landsmanna og byggt upp flest atvinnutæki sin og orkuver. Þessi gifurlega fjárfesting hefur skapaö auknar þjóðartekj- ur og bættan þjóöarhag, en jafn- framt leitt af sér óðaverðbólgu og fjármálameinsemdir, sem nauð- synlegt er að snúast gegn. Þjóðin á nú um það að velja að draga um sinn úr hinni öru fjár- festingu og taka allt efnahags- kerfiö föstum tökum eða slaka á eðlilegum kröfum um sambærileg lifskjör og fólk býr við i ná- grannalöndum okkar. Launafólk krefst þess, aö stjórnvöld velji fyrri kostinn. Þvi skorar stjórn B.S.R.B. á rikisstjórn og Alþingi að hefjast þegar handa um áætlunargerð til lengri tima, er hafi það markmið aödraga úr verðbólgu, tryggja- kaupmátt launa og forgangsverk- efni I framkvæmdum, er ekki þola bið. Verði ekki brugöiö skjótt við um breytingu á islensku e&ia- hagslifi, þá munu bráðabirgða- ráðstafanir þær, sem i frv. felast, reynast haldlitlar og ný verðbólguvandamál hlaðast upp. 5. þing Rafiönaöarsam- bands Islands fór fram í Reykjavíkdagana 24.-27. nóvember s.l. og sátu þingiö 60 fulltrúar frá öli- um aðildarfélögum sam- bandsins/ en þau eru 8 með rösklega 1000 félagsmenn. Helstu mál þingsins voru kjara- mál, atvinnumál, menntamál og skipulagsmál rafiðna. Þá var og fjallaö itarlega um lifeyrisstjóös- • mál og flutti Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Sambands al- mennra lifeyrissjóða, erindi um þau mál á þinginu. Þingið gerði ályktanir I öllum málaflokkum sem á dagskrá voru. I mjög Itarlegri ályktun þingsins um kjaramál, þar sem rakin er þróun þeirra undanfarin ár og m.a. bent á hve laun rafiön- aðarmanna hafa skerst miöað við ýmsa aöra iðnaðarmenn og opin- bera starfsmenn, segir m.a. svo um viöhorf þingsins til þess á- stands sem nú blasir við I kjara- málum: „5. þing Rafiðnaöarsambands Islands mótmælir öllum hug- myndum um að leysa yfirstana- andi efnahagsvanda á kostnaö verkafólks og krefst þess aö kaupmáttur launa verði tryggö- ur. Þingið lýsir andstöðu við öll á- form um breytingar á ákvæðum gildandi kjarasamninga um verð- tryggingu launa. Jafnframt varar þingiö alvar- lega viö þeim fyrirætlunum rikis- valdsins aö framkvæma stór- felldan samdrátt I fjárfestinga- málum svo sem við virkjun fall- vatna og dreifikerfi rafveitna, sem hljóta að leiða til verulegs at- vinnuleysis meðal rafiðnaðar- manna. Augljóst er, aö verkalýöshreyf- ingin verður nú sem fyrr, aö vera viö þvi búin að heyja baráttu til varnar lifskjörum. Þaö er skoðun þignsins að við núverandi aðstæð- ur koml ekki ti) greina að fram lengja samninga og hvetur þvi Framhald á bls. 3 Auðvaldið beri sjálft kreppu sína segja iðnnemar Vegna fyrirhugaðra efnahags- ráðstafana 1. des. n.k. ályktar framkvæmdastjórn Iðnnema- sambands Islands. Framkvæmdastjórn Iðnnema- sambands tslands telur brýnt að tekist verði af alvöru á við verð- bólguvandann, þvl slik verðbólga, sem hér á landi hefur geisað, skerðir fyrst og fremst afkomu- möguleika launafólks. Bendir stjórnin á, að launafólk á ekki sök á verðbólgunni heldur peninga- valdið I landinu. Þetta verður að hafa I huga er ráðist er gegn verð- bólgunni og að þeir sem á henni bera ábyrgð beri þær álögur sem til þarf að ráða niðurlögum henn- ar. Auðvaldið beri sjálft kreppu sina. Framkvæmdastjórnin leggur áherslu á, að ekki megi skerða kaupmátt launa og telur að ráö- stafanir þær, sem koma eiga I stað beinna krónutöluhækkana á laun, ráðstafanir sem lækka framfærslukostnað launafólks, verði fyllilega að tryggja kaup- máttinn. Vegna þeirrar umræðu sem átt hefur sér staö um endurskoðun visitölunnar, þá varar fram- kvæmdastjórnin við breytingum i þá átt, aö visitalan mæli ekki fyllilega hækkun framfærslu- kostnaðar. Bendir stjórnin á, að verötrygging launa er samnings- atriði milli launþega og atvinnu- rekenda og hvetur verkalýös- hreyfinguna til aö standa fast á rétti sinum og ljá ekki máls á skerðingu á visitölunni, og berj- ast af krafti gegn öllum slikum tilhneigingum. Framkvæmdastjórnin telur, að marka verði efnahagsstefnu til langs tima til lausnar á verö- bólguvandanum, en ekki að til langframa séu gerðar bráða- birgðaráðstafanir á þriggja mánaða fresti, sem meira og minna skerði kaupmátt launa. Slik efnahagsstefna verður að tryggja félagleg réttindi launa- fólks, kaupmátt launa og fulla at- vinnu. Hvetur stjórnin verkalýðs- hreyfinguna til haröra aögeröa gegn öllum áformum um árásir á kjör og réttindi verkafólks.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.