Vísir - 17.03.1970, Blaðsíða 1

Vísir - 17.03.1970, Blaðsíða 1
80. árg. — Þriðjudagur 17. marz 1970. — 64. tbl. Verðmæti loðnuafurð- anna um 400 milliónir Verð á nær öllum sjávarafurðum á uppleið nema skreiðinni VIÐ íslendingar höfum ríka á- stæðu til aö vera kátir með lifið I og tilveruna þessa dagana. Verð á nær öllum sjávarafurðum nema skreið er á uppleið á heims markaði og mokafii er af loðnu. Verðið á fiskblokkinni á Banda- ríkjarnarkaði er nú komið f 27,6 cent fyrir pundið, en síðast þeg- ar Vfsir kannaði verðið á Banda- ríkjamarkaði var verðið þar í 26 centum. - Framleiðendur munu ekki vera á eitt sáttir um það, hvert verðið er á loðnuafurðum, en lítið hefur verið selt af þeim upp á síðkastið, enda áttu mikl- ar fyrirframsölur sér stað f janúar. Meðalverðið á loðnuafurðum, þegar hefur verið selt, er hins vegar mjög hagstætt okkur. Þann ig hafa um 20.000 tonn af loðnu- miöli verið seld fyrir um 25 shill- nróteineiningin en fyrir stuttu var selt nokkurt magn fyrir 27,6 — 28 shillinga, Á sama tíma í fyrra var verðið 18—19 shillingar. Þá hefur lýsistonnið verið selt fyrir um 80 sterlingspund að meðaltali, en verðið hefur farið alveg upp fyr- ir 90 sterlingspund. í fyrra var verðið í 47 sterlingspundum. Fram- leiðendur og kaupendur loðnuaf- urða halda nú nokkuð að sér hönd unum, en Perúmenn eru nú að fara af stað með sína ansjósu-ver- tið og Norðmenn hafa veitt mikið af loðnu. Allt getur þetta haft mik- il áhrif á verðið. Um 115 þúsund tonn af loðnu hafa nú veiðzt. Þrátt fyrir erfið skil yrði undanfarinn sólarhring, þung- an sjó og kalda á miðunum úti af Skaftárósum fengu 22 skip 4660 tonn. Láta mun nærri að útflutn- ingsverðmæti þessarar loðnu sé um 400 milljónir króna. Það mun- ar um minna. Ámi Friðriksson er nú staddur austur af landinu og er þar að kanna ókynþroska loðnu er kemst i gagnið næsta vetur. Að bví er Jakob Jakobsson sagði 1 viðtali við Vísi f morgun, hafa þeir begar fundið nokkuð magn af ó- kynþroska loðnu á svipuðum slóð- um og i fyrra, en vegna veðurs hafa þeir ekkj geta kannað enn hversu mikið magn er þarna á ferð inní. Það virðist þó óhætt að full- yrða, að allgott útlit er fyrir loðnu vertíðina næsta vetur. Einu sjávarafurðimir, sem við höf um ástæðu til að vera nokkuð daprir með er skreiðin. Um 3000 tonn af framleiðslu sl. árs er enn óseld og öll framleiðsla þessa árs. Sala á saltfisk ihefur hins vegar eengið ágætlega og má þvi búast við að fiskverkendur leggi aukna áherzlu á saltfiskverkun. -VJ- Hluti þeirra, sem sátu í „panelnum“ og héldu uppi samræðum á stúdentafundinum í gærkvöldi um eiturlyf og „stóðlíf“. Fr. v. Hilda Torfadóttir, Pálmi Frímannsson, Ágúst Þór Jónsson og Jónas R. Jónsson, söngvari í Náttúru, situr við hljóðnemann, en eindregin andstaða hans gegn hassis hlaut ekki góðar undirtektir sumra fundargesta. Kíló af hassi á 35 þús. kr. Sundurlausar umræður og litill fróðleikur á Stúdentafélagsfundi um stóðlif og eiturlyf # Eiturlyf og „stóðlíf“ (group sex) voru á dagskrá umræðufundar, sem Stúdentafélag Hí efndi til I Sigtúni í gær- kvöldi með stúdentum og nokkrum ungum hljómlistarmönnum. Rúmlega 300 stúdentar sóttu fundinn, sem var haldinn með frjálslegu fyrirkomulagi — nán- ast samræðum í stað ræðuflutn- ings, og 8 langborðsgesta (pan- els) sem héldu samræðum uppi, undir stjórn umræðustjóra í stað frummælenda. Fundur stóð frá kl. 9.45 fram undir miðnættj og snerust um- ræður að mestu um cannabis (hassis og marijuana) og notkun þeirra, en svo sundurlausar voru umræöurnar, að Iítils fróðleiks gætti í þeim — ef frá eru tekin stutt erindj tveggja stúdenta, Pálma Frímannssonar og Bald- urs Guðlaugssonar, sem ræddu um málefnið frá sjónarhóli lyfja- fræði og laga. Ungir hljómlistarmenn. sem gestir voru á stúdentafundinum, höfðu verið boðnir vegna hugs- anlegra kynna þeirra af hassis- neytendum, en þeir lögðu fátt nýtt til málanna, utan Karl Sig- hvatsson í Trúbroti, sem upp- lýsti, þegar umræður beindust að sölu og dreifingu hassis hér- lendis, aö einhvern tíma hefði hann heyrt á skotspónum, aö eitt kíló af hassis hefði verið selt hér innanlands á kr. 35.000. Tilgangur fundarboðenda með þessum umræðum mun hafa ver- ið sá, að leiða saman og heyra skoðanir hinna ólíku hópa ung- menna um notkun lyfja eins og hassis, og svo afstöðu þessa fólks til ,,stóðlífs“. eins og stúd- entar nefna hópkynferðislíf, en áður en umræður kæmust svo langt, að hið seinna kæmist til umræðu, var langt liðið á fundar tímann og komu fram aðeins nokkrar athugasemdir um „kommúnulíf" sem þekkjast dæmi um i borginni, án þess að nokkur áþreifanleg nýmæli kæmu þar fram. Að loknum umræðum var stiginn dans við undirleik Trú- brots og Náttúru, en þeirra meðlimir höfðu setið umræðu- fundinn. — GP. 100 þúsund í boði Hálfur vinningur skilur Larsen og Friðrik Það er enginn smáskildingur í boði yrir að sigra á móti eins og stórmeistaraskákmótinu í Lug- ano, þar sem Friðrik heldur enn í við Larsen i baráttunni um fyrsta sætið. Kunnugir segja, að 1. verðlaun á slfku móti séu ekki undir 100 þús. krónum, og önn- ur verðlaun einnig vel sæmandi. Á alþjóðlega skákmótinu hér i Reykjavík í vetur voru 1. verð- laun 500 dalir (44 þúsund krón- ur), sem þótti lítið og varla boð- legt á alþjóðamóti. Það er því til mikils að vinna, þótt skák- heiðurinn Sé væntanlega mikil- vægastur. Friðrik og Larsen gerðu jafntefli í gær, og Larsen tapað; biðskák sinni við Gligoric. Jafntefli gerðu einnig Byme og Kavalek, Gligoric og Unzicker og Donner og Szabo. Skák Friðriks og Larsen varð „stórmeistarajafntefli" í aðeins 18 leikjum. Tvær umferöir eru eftir, og á Friðrik eftir að tefla við þá Gli- goric og Byrne. Röðin er þessi eftir 12 umferðir: 1. Larsen 8, 2. Friðrik 7i/2, 3.-4. Gligoric og Unzicker 6 !/>, 5. Byme 6 og biðskák, 6. Szabo 4V2 og bið- skák, 7. Kavalek \* l/2 og 8. Donner 3y2.' - HH. Fannsf látinn Sextugs manns var leitað i Njarðvík og Keflavík i gærdag, en hann hafði farið að heiman í fyrra- kvöld, og kom ekki fram, fyrr en menn gengu fram á hann látinn, þar sem hann lá á Hólmsbjargi, en þangað vandi hann gönguferðir sín> ar. Enga áverka var á líkinu að sjá, en breiddur ofan á það var jakki mannsins, eins og hann hefði lagzt til svefns Börnum á bamaheimiim gefíS fíuor innan skamms Heimilisfriðnum borgið fyrir „útvarpsþefurum“ Með þvi er verið að vinna gegn hinum ógn- vekjandi tannskemmdum i b'órnum á Islandi Margir hafa kvartað vfir ágengni „útvarpsþefara“ sem hafa ruðzt inn á heimili manna f leit að útvarps- og sjónvarpstækjum, sem ekki hafa verið greidd afnotagjöld af. 1 frumvarpi rikisstjómarinnar til út- varpslaga er gert ráð fyrir, að felld verði niður heimild starfsmanna Ríkisútvarpsins til að fara inn á heimili manna til að líta eftir út- varpsnotum fólks. Munu lögtök, sem innheimtustjóri útvarpsins framkvæmir hér eftir einnig fara eftir almennum reglum lögtakslaga. Innheimtustjóranum verður nú veitt almenn heimild til framkvæma lögtök fyrlr afnotagjöldum, hvar sem er á landinu. Verður þá ekki þörf að skipa hann fulitrúa við sér- stök dómaraembætti, en það hefur tíðkazt síðustu árin til að auðvelda iögtaksgerð. — HH. „Eftir að skólayfirtannlæknir inn í Reykjavík skrifaði okkur bréf, þar sem lagt var til að hafin yrði fluortöflugjöf á barnaheimiluni borgarinnar, tók Sumargjöf ákvörðun um aö hrinda málinu i framkvæmd og nú bíðum viö bara eftir töflun- um“ — sagði Bogi Sigurðsson framkvæmdastjóri Sumargjafar í viðtali viö blaðið í morgun. Heilbrigðisyfirvöld borgarinn- ar munu greiða töflurnar, sem gefnar verða börnum á aldrin- um 3—6 ára. Hafa nú veriö sendir pésar með upplýsingum um fluor á barnaheimili borgar- innar, en þeim verður síðan dreift til foreldra. Eins og flest um mun kunnugt, er fluor talið áhrifaríkasta efni, sem fundið hefur verið til varnar tann- skemmdum, og er það ýmist gefið í töfluformi, í tnatvælum eða blandað í drykkjarvatn, en það er gért mjög víða erlendis. „Fóstrumar munu sjá um að gefa börnunum töflurnar á hverjum degi og við erum til- búin að hefja töflugjöfina, stpax og töflurnar koma til okkar“ — sagði Bogi ennfremur. Fluortöflur munu fást í lyfja búðum hérlendis, en aðeins gegn lyfseðli. Erlendis fást töfl urnar hins vegar án þess að framvísa þurfi lyfseðli. -ÞS- Sjá nánar bls. 9

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.