Vísir - 23.04.1971, Blaðsíða 5
VI SIR. Föstudagur 23. apríi 1951
Hauknrnir komu á
óvurt í Keflavík
Lið Hauka mætti til leiks
fyrir Hafnfirðinga í Litlu
bikarkeppninni í Keflavík
á sumardaginn fyrsta og
tókst að ná jafntefli við
ÍBK. Ekkert mark var skor
að í leiknum.
Halldór Guðbjörnsson,
hinn kunni hlaupari úr
KR, sigraði í 57. Víða-
vangshlaupi ÍR á sumar-
daginn fyrsta eftir mjög
harða keppni við ungan
ÍR-ing, Ágúst Ásgeirs-
son og þar var ekki fyrr
en 20—30 m. frá loka-
markinu, sem Halldóri
tókst að sigra annað ár-
ið í röð í hlaupinu. — í
fyrra vann hann Sigfús
Jónsson, ÍR, á marklín-
unni, en báðir fengu
sama tíma. Sigfús gat
nú ekki keppt vegna
meiðsla.
Metþátttaka var nú t hlaup
inu 61 og þar á meðal voru 3
stúlkur og nokkrir trimmarar og
tveir norskir stúdentar viö Há-
skóla íslands, sem kepptu sem
gestir. Það voru fimm menn í
hóp, sem komu saman út úr
Hljómskálagarðinum og hörku-
keppni var Fríkirkjuveginn að
lokamarkinu við gamla barna-
skólann. Ágúst var fyrstur meg
inhluta — Halldór komst aðeins
framúr honum um tíma — en
Ágúst náði svo aftur forustu og
það var ekki fyrrr en á loka-
metrunum, sem Halldóri tókst
að tryggja sér sigur. Norski
stúdentinn Kari Olov Idland
kom svo örfáum metrum á eft-
ir hinum tveimur fyrstu í mark
iö.
Vegalengdin er um 3250 m
og tími sigurvegarans var
10,52,2 min. Ágúst, hinn ungi
ÍR-ingur, hljóp á 10:53,6 og Id-
land á 10r55.6 mín. Fjórði varð
Sigvaldi Júlíusson, hinn efni-
legi hlaupari úr Eyjafirði á
10:56,2 mVn. Fimmti Jón H. Sig
urðsson, HSK. á 10:57.6 mín. og
sjötti hinn 16 ára hlaupari úr
Kópavogi, Einar Óskarsson á
11:06,0 mín. Ungu stúlkurnar
voru léttar í spori, þegar þær
komu í markið og fyrst þeirra
var Lilja Guðmundsdóttir —
nokkru á undan trimmurunum
Gunnlaugi Þörðarsynj og Leifi
Sveinssyni.
í 3ja manna sveitakeppni bar
sveit Breiðabliks úr býtum sig-
ur, hiaut 23 stig. I öðru sæti
varð UMSE með 23 stig. Þriðja
sveit H'SK með 25 stig og s-veit
KR fjórða með 26 stig, svo að
keppni var þar mjög jöfn. í 5
manna sveitakeppnj sigraði KR,
hiaut 4'5 stig, önnur varð
sveit UBK með 47 stig og
þriðja sveit HSK með 54 stig.
I 10 manna sveitakeppni sigr-
aði UMK með 100 stig, en HSK
var meö 110 stig.
Óknyttastrákar fóru illa meö
Halldór Guðbjörnsson, KR, keniur i mark sem sigurvegari, en margir fylgja fafit á eftir. Ljósm. BB.
starfsmenn hlaupsins. Brautin
var merkt veifum kl. 11.30 fyrir
hádegi, en kl. 12 var búið að
..stela þeim öllurp.,-- svo að segja
að baki starfsmánna. Nú, þeir
fóru af staö aftur og merktu
brautina, en þegar þeir komu
úr mat kl. eitt voru flestar
veifurnar horfnar. Og í þriðja
sinn varð því að merkja braut-
ina. Af 22 veifum og stöngum
sem útbúnar voru daginn áður
voru aðeins átta eftir, þegar
hlaupinu lauk loks.
Jafntefli
á Akranesi
Akranes og Breiðablik mætt
ust á malarvellinum á Akranesi á
sumardaginn fyrsta í Litlu bikar-
keppninni og lauk leiknum með
jafntefi 1—1. Talsverö gola var,
þegar leikurinn var háöur, sem stóð
beint á annað markið. Lið Breiöa-
bliks lék undan vindinum f fyrri
hálfleik og strax á 4 mín. tókst
Þór Hreiöarssyni að skalla knöttinn
í mark eftir fyrirgjöf Magnúsar
Steinþórssonar.
Liðið sótti mun meira ailan
fyrri hálfleikinn, en tókst ekki að
skora fleiri mörk og Skagamenn
áttu ekkj einu sinni hættulegt upp
hlaup þá. t s'iðari hálfleiknum
snerist þetta við, nú voru það
Skagamenn, sem sóttu og Eyleifur
Hafsteinsson fékk þá nokkur góð
tækifæri, sem hann misnotaði. Það
var ekki fyrr en 10 mín. voru eftir
að heimamenn jöfnuðu. Þá var tek
in hornspyrna — Andrés náði
knettinum og gaf strax til Har-
a]ds Sturlaugssonar, sem skoraði
viðstöðulaust með þrumuskoti. t
lið Akraness vantaði Teit, Benedikt
og .Matthias en hjá Breiðabliki
vantaði Guðmund Þórðarson og
Harald Ellertsson. Staðan í keppn
inni er nú þannig:
Akranes 2 1 1 0 6:1 3
Keflavik 2 1 1 0 3:2 3
Kópavogur 2 0 11 3:4 1
Hafnarfjöröur 2 0 11 <L5 1
Framlína Keflvíkinga var bitlaus
: leiknum og áttí ekkert einasta
hættulegt upphlaup í leiknum. Það
var rétt undir lokin að liðinu skild
ist. að ekki sé hægt að vinna leik
nema skora mörk og slðasta stund
aríjórðung sóttu Keflvíkingar tals
vert, en áttn þó ekki eitt einasta
ásot á mark — en hins vegar nokk
ur framhjá.
^Seöur var hið bezta meðan leik
urinn fór fram og malarvöllurinn
var skínandi góöur. Lið KRH
(Knat'tspymuráös Hafnarfjarðar, en
FH og Haukar skiptast á um aö
leíka í keppninni) kom talsvert á ó-
vart og hefði hæglega getað sigr-
aö. Miðherja liðsins, Lofti Eyjólfs
syni, tókst í fyrri bálfleik að kom
ast innfyrir Þorstein markvörð IBK
en í sta-ð þess að senda knöttinn í
autt markið. skeði eitt af þessum
óskiljanlegu atvikum í knattspyrn
unni — Lotfur stöðvaöi knöttinn og
slíkt tækifæri lét Þorsteinn ekki
ganga sér úr greipum.
Vörn og markvörður ÍBK var
sterk að venju og tveir ungir piltar
Gísli Torfason og Ingimundur
Hilmarsson, bakvörður, virðast á
góðri leið meö að tryggja sér fastar
stöður í liðinu. Lið Hauka kom á
óvart og það er sýnilegt aö Sverrir
Kjærnested er á réttri leið með lið
— það var taktískara en lið ÍBK.
Þetta eru mest ungir strákar, þótt
Jóhann Larsen og Sigurður Jóa-
kimsson séu enn helztu máttarstólp
amir. Pálmi Sveinbjörnsson virð
ist efnilegur svo og Loftur „hinn
óheppni'“ — þaö býr margt í hon-
um. Mjög góður dómari í leiknum
var Kristbjörn Albertsson. —emm
England vann
Grikkland
Á miövikudag léku England o-g
Grikkland á Wembley-leikvangin-
um í Lundúnum í Evrópukeppni
landslíða. Aðeins 55 þúsund áhorf
endursáu ieikinn og urðu þeir fyrir
miklum vonbrigðum með enska
liöið, þótj. það sigraði með 3—0,
en tvö síðustu mörkin voru skoruð
rétt fyrir lok leiksins.
Gríska iiðið, sem lék án sex leik
manna úr liði Ferenc Puskas, en
það leikur síðari leik sinn í Evrópu
keppnínni á miðvikudag, kom tals
vert á óvart og vörn þess var
sterk, lengi vel.
Enska liðið hafði þó tögl og hagld
ir í leiknum og strax á 22 mín.
tókst Martin Ghivers að skora. En
liðið fór illa með góð tækifæri og
það var ekki fyrr en síðasta stund
arfjórðunginn, sem það sýnd; veru-
lega góðan leik. Alan Ball var þá
kippt út af og Ralph Coates, Burn
ley, kom í hans stað. Það voru góð
skipti og Coates sýndi ágætan leik.
Og þá loks fór vörn Grikkja að
riðlast. Þegar 10 mín. voru eftir
til leikslolsa skoraðj Geoff Hurst
og nokkru síðar Francis Lée með
skálla eftir góðan undirbúning ný-
liðans í liðinu, Peter Storey, Arsen
al, en hann var einn bezti maður
liðsins. Bohby Moore lék að venju
vel og f framlínunni var það eink
um Lee, sem lét að sér kveða.
Hörð keppni í Víðavangs-
hlaupi ÍR og metþátttaka