Vísir - 07.07.1975, Blaðsíða 9
Visir. Mánudagur 7. júli 1975.
Tilboðin streyma til
fyrirliða landsliðsins
— Jóhannes Eðvaldsson kom heim í gœr
Hollandi og Skotlandi upp ó vasann —
með tilboð frá Vestur-Þýzkalandi,
og fjölmörg frá Svíþjóð
„Ég er hálfþreyttur eftir
ferðalagið frá Hollandi, e‘n von-
ast til að verða búinn að ná mér
fyrir leikinn i kvöld”, sagði Jó-
hannes Eðvaldsson, fyrirliði
landsliðsins, er við töluðum við
hann á Hótel Valhöll á Þingvöll-
um i morgun, en þar var hann
ásamt öðrum úr landsliðshópn-
um að safna kröftum fyrir leik-
inn við Noreg.
,,Við lékum við Telstar i Hol-
landi á laugardaginn og töpuð-
um 3:1. Var sá leikur liður i
svokölluðum Toto Cúp sem
Holbæk tekur þátt i ásamt
mörgum öðrum liðum i Evrópu.
Ég held að ég hafi átt sæmi-
legan leik —a.m.k. töluðu menn
frá tveim félögum i Hollandi við
mig eftir hann og spurðu mig,
hvort ég hefði áhuga á að koma
til Hollands og leika með þeim.
Ég gef ekkert út á það enda
liggur ekkert á að svara þessu.
Fyrir utan þessi tilboð hef ég
fengið þó nokkur önnur, bæði frá
Hollandi, Vestur-Þýzkalandi og
frá Celtic i Skotlandi. Auk þess
get ég valið úr tilboðum i
Svlþjóð en þar hafa mörg félög
rætt við mig.
Ég ætla að athuga minn gang
betur i þessu máli, enda á ég
eftir að kynna mér tilboðin
gaumgæfilega. Það má vel vera
að það komi’ lika eitthvað enn
betra, a.m.k. er ekki annað að
sjá og heyra eftir lætin nú sið-
ustu daga.
En nú er það ekkert nema
landsleikurinn i kvöld, sem
skiptir máli, og erum við strák-
arnir ákveðnir i að standa okkur
vel eins og i siðustu landsleikj-
um okkar.
— klp —
SOS vonn SAAB bikarinn
Sigmundur O. Steinarsson —
SOS á Tlmanum — varð yfir-
burðasigurvegari i hinni árlegu
golfkeppni tþróttafréttamanna,
sem háð var á Nesvellinum á
föstudaginn. Varhann 12 höggum
á undan næsta manni, sem var
Jón Birgir Pétursson frá Visi og
iþróttablaðinu.
Sagt var, að Sigmundur hefði
sézt á ótrúlegustu stöðum með
golfkylfurnar fyrir keppnina og
æft sig þá af kappi við að hitta
boltann — enda gerði hann það
oftast nær í keppninni.
Hann lék 9 holurnar á 48 högg-
um. Jón Birgir lék á 60 höggum en
siðan komu þeir jafnir i þriðja
sæti — Jón Hermannsson, Sjón-
varpinu og Friðþjófur Helgason
ljósmyndari á Morgunblaðinu.
Urðu þeir að heyja aukakeppni
um 3ju verðlaunin og var það
hörðog mikil „púttkeppni”, sem
lauk með þvi að Jón kvikmynda-
tökumaður sigraði.
Þeir félagar voru á 64 höggum
en sfðan kom Ágúst Jónsson
Morgunblaðinu á 66 höggum. Eft-
ir það fóru tölurnar ört hækkandi,
og þær siðustu dönsuðu yfir „100
högga markið”...... Þeir sem
komu á eftir voru: Gylfi Krist-
jánsson Morgunblaðinu, Hallur
Helgason Alþýðublaðinu, Björn
Blöndal Alþýðublaðinu, Gunnar
Andrésson Tfmanum, Þorleifur
Ólafsson Morgunblaðinu, Gunnar
Steinn Þjóðviljanum, Bjarni
Felixson Sjónvarpinu og Bjarn-
leifur Bjamleifsson Visi.
öll verðlaunin i keppnina gaf að
vanda Sveinn Björnsson forstjóri
SAAB-umboðsins hér á landi,
Fyrir hans hönd afhenti Kjartan
L. Pálsson — klp Visi — verð-
launin, en hann fékk ekki að
keppa, þar sem félagar hans
dæmdu hann atvinnumann i
iþróttinni — þvi hann tæki þátt i
alvörumótum!!!
— Var 12 höggum
á undan nœsta
manni í golfkeppni
íþróttafréttamanna,
enda œft í laumi
Kœruþefuiinn á iofli
eftir sigur Árnranns
Armenningar halda áfram að
hala inn stigin f 2. deild tslands-
mótsins f knattspyrnu. Á laugar-
daginn bættu þeir tveim stigum
viö safnið, er þeir sigruOu Hauka
4:1. Eru þeir þvf enn meö I bar-
áttunni um efsta sætiö, en aftur á
móti eru Haukarnir aö heltast úr
lestinni.
Ármenningar skoruðu aðeins
eitt mark i fyrri hálfleik — Sveinn
Guönason —en I þeim siðari kom
„súpan”. Þá bætti Smári Jónsson
öðru markinu við og siðan kom
Viggó Sigurðsson með tvö mörk á
skömmum tíma, þannig aö
staðan var orðin 4:0 og allt útlit
Sjóararnir fró Ár-
skógsströnd nóðu sér
í tvö stig á Húsavík
Sjóararnir frá Árskógsströnd
komu skemmtilega á óvart i 2.
deildinni á laugardaginn, er þeir
sigruðu Völsung á Húsavik meö
tveim mörkum gegn einu.
Völsungarnir bjuggust ekki viö
þessum nágrönnum sinum i
deildinni svona sterkum og áttuöu
sig ekki almennilega á hlutunum
fyrr en Reynismenn voru búnir að
senda boltann tvivegis i markiö
hjá þeim. Kom dugnaöur og harö-
fylgi þcirra þeim gjörsamlega á
óvart, og hrukku þeir af þeim eins
og flugur, enda flestir yngri og
minni vexti.
Völsungarnir fengu samt tvö
ágætis tækifæri snemma i leikn-
um — Magnús Torfason átti skot
sem markvörður Reynis varði
meistaralega með annarri hendi,
og siðan átti Magnús annaðskot i
þverslá.
Það var Felix Jósafatsson sem
skoraði fyrra mark Reynis eftir
að einn varnarmanna Völsunga
hafði ekki hitt boltann og komst
Felix fram hjá honum og renndi i
netið. Siðara markið skoraði svo
Björgvin Gunnlaugsson. Hann
komst inn i sendingu og skaut á
markið. Þar varði Ólafur
Magnússon markvörður
Völsunga, en missti boltann frá
sér og upp i loftið, þar sem Björg-
vin náði að skalla hann inn með
hnakkanum!!
Eina mark Völsunga skoraði
Magnús Torfason i siðari hálfleik,
og var það úr vitaspyrnu.
Völsungarnir voru allt annað en
ánægðir með úrslitin i þessum
leik, og heita að hefna á miðviku-
dagskvöldið, en þá mætast þessi
liðaftur á Húsavik i bikarkeppn-
inni.
Aftur á móti voru Reynismenn
yfir sig ánægðir og þeirra
stuðningsmenn og konur, en mik-
ill fjöldi fólks fylgdi liðinu austur
á Húsavik frá Árskógsströnd og
nágrenni og skemmti sér að sjálf-
sögðu konunglega.
fyrir stórsigur.
En Armenningarnir sluppu
ekki með hreint markiö, eins og
þeir voru að vona. Haukarnir
komu boltanum I netið hjá þeim
undir lok leiksins — og var Loftur
Eyjólfsson þar að verki.
Eftir þvi sem við fréttum eftir
leikinn, voru Haukarnir með þær
bollaleggingar að kæra hann
vegna formgalla á skýrslu Ar-
menninga sem dómarinn fékk
fyrir leikinn. Ekki var þó endan-
lega búið að ákveða hvað gera
ætti, þar sem Haukarnir voru
ekki á eitt sáttir, hvort kæra ætti
út af svona smámunum eða
ekki....
2. deild
Staöan i 2. deild eftir leikina um
helgina og þegar keppnin þar er
hálfnuð:
VikingurÓ.—Þróttur 0:2
Ármann—Ilaukar 4:1
Völsungur—Reynir A 1:2
Breiðablik—Seifoss 4:1
Breiðablik 7 6 0 1 30:5 12
Þróttur 7 5 1 1 14:6 11
Armann 7 4 2 1 13:6 10
Selfoss 7 3 2 2 14:10 8
Haukar 7 3 13 13:12 7
Völsungur 7 1 2 4 5:14 4
ReynirA 7 2 0 5 7:19 4
Vikingur Ó 7 0 0 7 4:28 0
Næstu leikir: Reynir—Haukar,
Völsungur—Þróttur og Viking-
ur—Selfoss á laugardaginn.
ír
Þykkar, þunnar,
einfaldar, samsettar,
Þar á meöal, ein
sem hæfir þér best.
fliT : (W
Vesturgötu 71 sími 24060
J