Lesbók Morgunblaðsins - 01.10.1961, Page 11

Lesbók Morgunblaðsins - 01.10.1961, Page 11
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 431 Presturinn var að skreyta kirkjuna fyrir jólin. Hér sést skipsklukkan, sem sjómenn gáfu kirkjunni Og meðan við stóðum við, sáum við stóran hóp hesta fara á spretti um fjallshlíðina, með fljúgandi föxum og töglum. Mér varð litið á Karin. Hún var brosandi og kjarkurinn skein út úr henni. Eg varð þá viss um, að hjá henni mundu rætast þeir draumar, sem knúðu foreldra hennar að leita til þessara eyðieya.---- Við sigldum til Academy Bay á eynni Indefatigable. Við höfðum meðferðis nokkra gjafakassa handa norskri fjölskyldu, sem á heima á þeirri ey á þeim stað, sem heitir Miramar. Þessi fjölskylda heitir Kastdalen. Þegar við komum í land hittum við Gus Angermeyer. Foreldrar hans höfðu flúið Þýzkaland rétt áður en seinni heimsstyrjöldin skall á, og farið til Galapgos með dreng- ina sína. Gus er risi að vexti og hann er kallaður „traktor“, vegna þess að hann leikur sér að því að draga stóreflis tré innan af eynni niður að strönd. Hann á heima í Academy Bay ásamt 60öðrumfrum herjum þar. Þeir eru af ýmsum ætt um, frá Ecuador, Þýzkalandi, Sviss, Noregi, Ítalíu og Tékkóslóvakíu, svo segja má að þar sé alþjóðlegt þorp. „Aurbleytan er hræðileg1*, sagði hann við mig. „Það hefir rignt meira inni á eynni en nokkuru sinni áður. Enginn maður hefir komizt hér á milli og efri byggð- arinnar í margar vikur“. Þrátt fyrir þessar slæmu frétt- ir vorum við ákveðin í því að heimsækja Kastdalen. Og svo lögðum við á stað. Fyrst í stað var vegurinn sæmilegur yfirferð- ar. En svo byrjaði aurbleytan og þá áttum við eftir 5 km. Það var erfiðast fyrst, með>an við reynd- um að stikla, en svo var ekki um annað að gera en gösla í gegn um ófærðina. Okkur skrikaði fót- ur og við duttum hvað eftir ann- að. Annar drengurinn okkar sökk á kaf upp að hné, og þegar hann dró fótinn upp, var skórinn horf- inn. Hann gerði sér þá hægt um hönd, kraflað'i niður í holuna og náði í skóinn. Öll vorum við forug upp á höfuð þegar við náðum áfangastað. Þar komu tíu fallegir hvolpar geltandi á móti okkur. Viðtökur húsráðenda voru ekki jafn háværar, en engu síður alúð- legar. Það var farið með okkur í gegnum garðinn og að húsabaki, og þar voru okkur fengnar marg- ar fötur fullar af rigningavatni, til þess að skola af okkur óhrein- indin. Kastdalen-fjölskyldan kom til Galapagos fyrir 18 árum. Kast- dalen var orðinn þreyttur á Ev- rópu og gauraganginum þar og fór hingað til þess að leita sér friðar. Fjölskyldan hafði ekki gert sér neinar gyllivonir um þennan stað, en var þó óviðbúin þeim erfiðleikum, sem fyrst var við að stríða. Fólkið varð að hafast við undir segli í steikjandi hita sum- arsins og skjálfandi af kulda um rigningatímann. Villisvín eyði- lögðu sáðgarða þess, og fyrsta ár- ið varð það að lifa á villtum bjúg- aldinum. „Það var sjö klukkustunda ferð héðan til næsta staðar þar sem bjúgaldin vaxa, og sjö stunda ferð heim aftur“, sagði Kastdalen. „Einu sinni var það, er við kom- um úr slíkum 14 klukkustunda leiðangri og áttum örskammt eft- ir, að múlasnanum skrikaði fótur í aurleðjunni. Hann datt og kramdi öll bjúgaldinin. Þá var ekki um annað að gera en snúa við og sækja aðra bagga. En mik- ið hjálpaði hann okkur sá bless- aður múlasni, og oft hugsuðum við hlýtt til hans þegar við vor- um að snæða steikt bjúgaldin, bjúgaldinakássu eða bjúgaldinin eins og þau koma frá náttúrunni**.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.