Alþýðublaðið - 16.12.1983, Blaðsíða 1
1
alþýöu-
Uppsagnir 230 starfsmanna ísbjarnarins í gildi í dag:
Mjög alvarlegt
ástand að skapast
Þórður Ólafsson, forstöðumaður Bankaeftirlitsins:
Oheppilegt að innleiða
kreditkort á þessum tíma
Eru kortin notuð til að ná gjaldfresti fram yfir jólahátíðina?
„Það er enginn vafi á því að þetta
er mjög óheppilegur tími til að vera
að koma kreditkortum í umferð.
Ráðstöfunartekjur eru nú í lág-
marki og örugglega verður það í
einhverjum tilvikum að fólk not-
færi sér þessa leið til að geta keypt
inn fyrir jólin. Þörfin fyrir peninga
hef ur alltaf verið fyrir hendi um jól,
en örugglega meiri nú. Ég vil ekki
segja að fólkið muni ekki ráða við
þetía þegar að uppgjöri kemur, en
það verður vaf alaust eitthvað um að
það reisi sér hurðarás um öxl,“ sagði
Þórður Olafsson, forstöðumaður
Bankaeftirlitsins, í samtali við Al-
þýðublaðið í gær.
Mikill fjöldi manna hefur nú
fengið kreditkort og bíða margir
eftir kortum. Telja má öruggt að í
mörgum tilfellum sé hér um að
ræða fólk sem vantar tilfinnanlega
ráðstöfunarfé fyrir jólin og sjái í
kreditkortunum tæki til að ná á-
kveðnum gjaldfresti, því greiðslur
eru ekki innheimtar fyrr en að með-
altali mánuði eftir notkun.
„Ef það hendir sig að fófk getur
ekki borgað þegar að greiðsludegi
kemur þá lendir það á kreditkorta-
fyrirtækjunum sjálfum. Kaup-
menn og aðrir sem taka við kredit-
kortagreiðslum fá örugglega sína
peninga, þeim er lofað uppgjöri
skilyrðislaust og sjá sér hag í þessu.
Vanskilin lenda hjá kreditkortafyr-
irtækjunum og þau þurfa að standa
í innheimtunniþ sagði Þórður.
Þannig að þau súpa kannski mest
seyðið af því ef vanskil hrúgast upp?
„Ég hef ekki orðið var við að þau
telji sig hafa innleitt þetta á vitlaus-
um tíma. En undir þessum kring-
umstæðum verður þáttur lánastarf-
seminnar númer eitt í þessu, en það
er ekki megintilgangurinn. Ég vil
halda því fram að það sé útspekúl-
erað hjá þessum fyrirtækjum að
koma með þetta akkúrat núna, það
þarf ákveðinn fjöldi korta að vera í
umferð til að skapa þá veltu sem
færir tekjur svo fyrirtækin geti
staðið undir sér. Þannig var það til
dæmis í Bandaríkjunum að slík fyr-
irtæki tóku upp á því að senda kort-
in til fólks í pósti. Það gaf mjög
slæma raun og var síðan bannað.
Aðalatriðið í þessu er .að ná velt-
unniþ
Er hætta á stórfelldri misnotkun
kortanna?
„Það er nú svo í sambandi við
þessi viðskipti, að þeir sem taka við
kortunum, í verslunum og annars
staðar, eiga að ganga úr skugga um
að viðkomandi sé sá sami og er
skrifaður fyrir kortinu. Á þeim eru
undirskriftir viðkomandi og þær á
að bera saman. Þannig að ég tel að
minni hætta sé á fölsunum en tíðk-
ast með tékkaviðskiptin. En við get-
um aldrei útilokað misnotkun kort-
hafanna sjálfra, þó hættan sé minni
fyrir það að almennt er gengið frá
tryggingum fyrir afhendingu og
þeir aðilar sem itrekað fara langt
umfram heimild eru þá sviptir kort-
unumþ sagði Þórður.
„Þetta er mjög alvarlegt ástand
sem er að skapast. Það er enga
vinnu að fá fyrir þessar konur á
vinnumarkaðinum í dag. Það er
staðreynd að þegar fer að kreppa
að, þá eru það konurnar sem fyrstar
eru látnar fara“ sagði Ragna Berg-
mann, formaður verkakvennafé-
lagsins Framsókn í samtali við Al-
þýðublaðið.
í dag taka gildi uppsagnir 230
starfsmanna hraðfrystihúss ís-
bjarnarins. Stór hluti þessa fólks
er félagsbundnar konur í Fram-
sókn, sem nú bætast í hóp hinna 40
kvenna sem misstu vinnuna þegar
Hraðfrystistöðinni var lokað. Mikil
Framhald á 2. síðu
Kjartan Jóhannsson í
umrœðum um
fjárlagafrumvarpið:
„Ég tók eftir því i máli fjármála-
ráðherra að hann benti á, að hann
hefði í sumar sagt að það væri ó-
kleift að ná jafnvægi í ríkisfjármál-
um á þessu ári. Ríkissjóður væri
það illa staddur. En ég þykist líka
minnast þess, að hann hafi talað
um það í sömu andránni að það
væri nauðsynlegt að ná jafnvægi á
árinu 1984. Eins og fjárlagafrum-
varpið liggur fyrir núna, þá sér ekki
fyrir því jafnvægi", sagði Kjartan
Jóhannsson, formaður Alþýðu-
flokksins,á Alþingi við umræður
um fjárlagafrumvarpið þriðjudags-
kvöldið síðasta.
Kjartan sagði það því liggja fyrir
að það heit sem gefið var í sumar
um jafnvægi á árinu 1984 verði ekki
haldið.
„Það er athyglisvert í þessu sam-
bandi hvernig fjármálaráðherra
tekur á skuldunum við Seðlabank-
ann í þessu samhengi. Hann lætur
eins og vextirnir af skuldum við
Sér ekki fyrir
jafnvægi í
ríkisfjármálum
Kjartan Jóhannsson
Seðlabankann séu partur af samn-
ingum, þannig að þetta geti verið
vaxtalaust á árinu 1984 og þess
Bregðist vel við
ft S VTirilrií fnll/c hofnr hooor L nmiA ó fromlnfr hor ó hofo hnrict in no mnnn conHmtior
Nú eiga söfnunarbaukar Hjálp-
arstofnunarinnar ásamt fréttabréfi
og gíróseðli að vera komnir inn á öll
heimili landsmanna. Viðbrögð
fólks við söfnunarkalli kirjunnar
nú á jólaföstu eru mjög jákvæð.
Fjöldi fólks hefur þegar komið á
skrifstofu Hjálparstofnunarinnar
og afhent framlög, og söfnunar-
baukar eru farnir að berast í banka
og póstafgreiðslur, sem taka einnig
á móti framlögum með gírókerfi.
Sóknarprestar taka einnig á móti
söfnunarbaukum og framlögum.
Hjálparstofnuninni hafa borist
fréttir af því að fólk á vinnustöðum
hafi tekið sig saman um samskot og
hafa nokkur slík framlög þegar
borist. Þá hafa nokkur félög sent
framlög, þar á meðal hafa borist
framlög frá deildum Rauða kross
íslands.
Framleiðsla fisktaflnanna er haf-
in og munu sendingar hefjast núna
strax um helgina með flugi áleiðis
til Eþíópíu til dreifingar á neyðar-
Framh. á 2. síðu
Blekkingar með
skuldina við
Seðlabankann
vegna eigi sú upphæð ekki að koma
inn í fjárlagafrumvarpið. Þetta er
náttúrlega blekking. Þegar talað er
um að semja um þessar skuldir við
Seðlabankann, þá er það gert með
þeim hætti, að það er samið um það
á hvaða tíma þær eigi að greiðast.
Það er væntalega samið um það
líka hverjir vextirnir eigi að vera og
hvort sem þeir eru greiddir fyrr eða
síðar, þá gjaldfalla þeir í rauninni,
þeir reiknast á árinu 1984, svo að
jafnvel þetta vantar upp á það að
jafnvægi náist á því ári.
Ég saknaði þess líka í orðum fjár-
málaráðherra að hann skyldi ekki
víkja einu orði að því sem er sú
hækkun á bensíngjaldinu, sem
fyrirhuguð er á árinu 1984, upp á
milli 40-50% á sama tíma og menn
eru að tala um launahækkanir, sem
séu milli áranna væntanlega ein-
hvers staðar á bilinu 10-12-14%.
Ekki orð um þetta. Ekki orð um
það að vísitöluskrúfan eigi að fá að
halda áfram á tekjuöflunarpósti, á
gjaldapósti til ríkissjóðs, ekki eitt
einasta orð“
Leigubílstjórinn sem missti af Dallas:
Aðframkominn Pamelu
aðdáandi hætt kominn
Hann var ekki lítið undrandi
farþeginn, sem hugðist taka sér
ljúfan bíltúr af einni leigubílastöð
í miðborginni á miðvikudags-
kvöld. Hann pantaði reiðskjót-
ann og beið drjúga stund. En ekki
kom bílstjórinn. Þegar kváð var
aftur eftir farinu birtist bílstjór-
inn að því er virtist þrútinn af
reiði.
„Hvað er þetta kona, veistu
ekki að það er Dallas í sjónvarp-
inu. Ég er að missa af Pamelu. Ég
er gersamlega eyðilagður að þurfa
að taka þennan túrí' Ekið var af
stað og farþeginn lá undir stöð-
ugri skothríð frá bílstjóranum.
Hann var að missa af Pamelu,
sem var uppáhaldið hans í Dallas-
þáttunum. Nú var Pamela að fá
kjörson og hafði neitað að fara á
geðveikrahælið og það var alveg
truflað að missa af þessum
þætti.... bílstjórinn blés út eftir
því, sem leið á hraðskreiða
martröð um miðborgina og upp í
Breiðholt. Ekki hafði verið pant-
að far í Breiðholtið. En mikið létti
konunni þegar hún losnaði úr
bílnum, sár og hrelld yfir að hafa
valdið öllum þessum leiðindum.
Heimilisfólkið var agndofa þegar
hún gekk inn í stofuna heima
nokkru síðar og slökkti á Dallas.
K-tilboð jafnhagstæð
og stórmarkaðir
— segir Gunnar Jónsson í Austurborg
„Vi6 teljum, að K-tiIboðin verði
jafnhagstæð og það, sem boðið er
upp á í stórmörkuðunum eða
jafnvel enn hagstæðari. Við bjóð-
um með þessum tilboðum mikinn
afslátt — allt að 40% — og telj-
um, að með þessu getum við boð-
ið stórmörkuðunum upp á raun-
hæfa samkeppni,“ sagði Gunnar
Jónsson í versluninni Austurborg
í samtali við Alþýðublaðið í gær.
Um fjörutíu kaupmenn „á horn-
inu“ hafa stofnað með sér samtök
um svokallað K-tilboð þar sem
þeir bjóða sameiginlega upp á
lækkað verð á ákveðnum vöruteg-
undum í tíu til fjórtán daga í senn.
„Þetta verður örugglega hjálp
fyrir fólk í dýrtíðinni,“ sagði
Gunnar. Afsláttur verður þó ekki
veittur af landbúnaðarvörum.
Fjörutíu kaupmenn hafa þegar
gerst félagar í samtökunum og bú-
ist er við að nokkur fjöldi bætist
við á næstu dögum. Samstarf K-
Stórmarkaðir
greiða niður sykur
til að ná
viðskiptavinum
kaupmannanna byggist á því, að
þeir skila inn sameiginlegum
pöntunum og síðan er pantað
stórt og þannig fenginn fram af-
sláttur. En einnig slá kaupmenn-
irnir nokkuð af sinni álagningu.
„Við sjáum, að þessi tilboð okkar
eru þegar farin að hafa áhrif,“
sagði Gunnar. T.d. auglýsti Hag-
kaup í gær verð á klementínum,
þar sem farið var niður fyrir okk-
ar verð. Verðið er nú komið niður
í 34 krónur en leyft verð á þessari
vöru er 63,50 „það er mjög vax-
andi samkeppni í versluninni nú
og það kemur neytandanum til
góðaþ sagði Gunnar.
■ Stórmarkaðirnir á Reykjavík-
ursvæðinu eru farnir að greiða
niður ákveðnar vörutegundir til
að ná til sín viðskiptavinum.
Þannig hefur verð á sykri lækkað
„ótrúlega" mikið síðustu vikur.
Verðið var fyrir fáeinum vikum
yfir 20 krónur, en nú er það komið
niður í 13.50 í sumum markað-
anna. Kaupmenn, sem Alþýðu-
blaðið hafði samband við i gær,
sögðu að þetta væri augljóslega
niðurgreitt af verslunum sjálfum.
Sykur hefði lækkað í innkaupi, en
Framhald á 2. síðu