Alþýðublaðið - 08.11.1984, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 08.11.1984, Blaðsíða 1
Búsetamálið á Alþingi: Af skæruhernaði NT • NT heldur áfram skæruhernaði sínum á ríkisstjórnina. Sumar orra- hríðarnar hafa verið mjög opinská- ar og þar ekkert farið í grafgötur með álit skríbenta blaðsins á því að stjórnarsamstarfið er brostið og fátt annarra úrkosta en að slíta því. Nægir í því efni að benda á leiðara- skrif blaðsins, en þar hafa áhlaupin verið tíð að undanförnu og brönd- um brugðið hátt á loft. Steingrímur Hermannsson hefur reynt að gera litið úr þessum árásum og sagt að vitaskuld séu mismun- andi skoðanir á lofti í Framsóknar- flokknum og að leiðaraskrifin séu bara skoðanir leiðarahöfundar. Nú bregður svo við að þessi gagn- rýna rödd í leiðurum NT hefur þagnað og flýgur manni þá fyrst í hug að sett hafi verið niður í við höfundinn af forystumönnum flokksins. NT-menn eru samt ekki af baki dottnir við að draga fram í dagsljósið afhroð stjórnarsam- starfsins, þó nú sé gagnrýnin falin undir yfirborði fréttamennsku. Alexander neitar hrossakaupum Ragna Bergmann, fonn. Framsóknar: Ánægð og ekki ánægð „Það er náttúrlega allveg úti- lokað og raunar ósæmilegt af háttvirtum þingmanni að vera að halda því fram, að einhver Jón Helgason, form. Einingar: Onnur stefna en við ætluðum „Eg get endurtekið það sem ég sagði í samningaviðræðunum, að þaö var búið að hengja okkur á klafa sem við vildum síst hanga á. Þetta er allt önnur stefna en við ætluðum okkur, en miðaö við stöð- una eins og hún var og er þá mun ég mæla með þessum samningi,“ sagði Jón Helgason, formaður verkalýðs- félagsins Einingar í samtali við Al- þýðublaðið. „Eftir að BSRB var búið að semja varð Ijóst að ekki var um annað að ræða en að semja á svipuðum nótum, þó legið hafi fyr- ir hótanir um að þetta verði allt saman tekið aftur. Mér finnst verst við þennan samning að okkur tókst í raun ekki að færa því fólk björg í bú sem við höfðum alltaf ætlað okkur. í því sambandi vorum við að hanga á hálmstrái sem við höfum þurft að hanga á mörg undanfarin ár og það er alls ekki skemmtilegt. En það var sem sagt okkar stöðu- mat að við komumst ekki hjá því að semja á svipuðum nótum og aðrir. Hins vegar má segja að ég sé ánægður með að ekki hafi þurft að koma til átakaý sagði Jón. hrossakaup eða annað slíkt hafi átt sér stað í sambandi við með- ferð þessa máls á háttvirtu Al- þingi þegar lögin um Húsnæðis- málastofnun voru til meðferðar og samþykktar. Slíkt er alger fjarstæða og aldrei kom til neinnar umræðu milli stjórnar- flokkanna um þetta mál,“ sagði Alexander Stefánsson, félags- málaráðherra meðal annars í svari sínu við fyrirspurnum Jóns Baldvins Hannibalssonar um Búsetaréttaríbúðir. í fyrirspurnum sínum leitaði Jón eftir svörum við því hvenær væri að vænta frumvarps um stefnumörk- un um búsetaréttaríbúðir og fleira sem ráðherra boðaði síðasta vor að yrði lagt fyrir í byrjun yfirstandandi þings. Einnig spurði Jón, ráðherra að því hvort náðst hefði samkomu- lag stjórnarflokkanna á milli um tilverurétt búsetaréttaríbúða og hlut húsnteðissamvinnufélaga. Rifjaði Jón upp að á seinasta þingi urðu miklar deilur um þetta mál og að því hafi verið haldið fram að ríkisstjórnin hafi samið innbyrð- is að fjármálaráðherra félli frá áformum um skattlagningu á stór- fyrirtæki undir pólitískr.i vernd Framsóknarflokksins, gegn því að félagsmálaráðherra „seldi réttindi Búsetahreyfingarinnar fyrir þann baunadisk". Minnti Jón ráðherra á að þetta fólk biði nú eftir því að fá skýr svör. Félagsmálaráðherra afneitaði öllum hrossakaupum, en sagði að öðru leyti að nefnd væri í málinu og að hann hefði óskað eftir því að hún hraðaði störfum sínum. „Ég er bæði ánægð og ekki ánægð. Þaö náðust ýmsir góðir hlutir í gegn, en hræddust er ég við að þetta verði allt tekið strax aftur,“ sagði Ragna Bergmann, formaður Verkakvennafélagsins Framsóknar í samtali við Alþýðublaðið um samninga ASÍ og VSÍ. „Ég hygg að eftir atvikum hafi ekki verið hægt að fá meira fram af kröfum okkar. Það eru góðir hlutir að við sjáum fram á að eyða tvö- falda kerfinu á samningstímabilinu og bónusinn er orðinn föst tala. En ég býst við að það verði ekki allir jafn ánægðir með samninginný sagði Ragna. Á forsíðu NT í gær er því slegið upp áberandi við hlið blaðhaussins, að það stefni i 200% aukningu gjaldþrotamála í ár, miðað við síð- asta ár, sem þó var metár í þessu efni. í fréttinni segir að greiðslustaða fyrirtækja og einstaklinga sé mun verri nú en verið hefur undanfarin ár gagnvart hinu opinbera. „Okkur virðist sem það stefni í þreföldun gjaldþrotamála hjá embættinu frá síðasta áriý er haft eftir Markúsi Sigurbjörnssyni, borgarfógeta. í fréttinni kemur líka fram að skuld- irnar eru nú mun hærri en áður. Nú er þessi frétt ekkert nýmæli fyrir lesendur Alþýðublaðsins því blaðið hefur áður fjallað um þessi mál, og í þeirri umfjöllun hefur Franrþald á bls. 2 Tillögur Alþýðuflokksins um fíkniefnamál: 1 milljón í ríkissjóð Á síðasta Alþingi var samþykkt þingsályktunartillaga Jóhönnu Siguröardóttur og fleiri þing- inanna Alþýðuflokksins um fíkniefnamál. Við afgreiðslu fjár- laga fyrir yfirstandandi ár fengu Alþýðuflokksmenn því fram- gengt að heimilt yrði að ráðstafa upptækum hagnaði vegna fíkni- efnasölu til fyrirbyggjandi að- gerða vegna fíkniefnavandamáls- ins. í svari við fyrirspurnum Jó- hönnu Sigurðardóttur um fram- kvæmd þessara tillagna hefur Jón Helgason upplýst á þingi að ýmis verkefni væru nú í gangi í sam- ræmi við þessar tillögur og meðal þess markverðasta sem í svari dómsmálaráðherra kom fram má nefna að vegna heimildarinnar um ráðstöfun hagnaðarins á fíkniefnasölunni mun á þessu ári hafa komið inn í ríkissjóð tæplega 1 milljón kr. Þessar krónur verða til ráðstöfunar til verkefna i sam- ræmi við tillögurnar, eftir nánari fyrirmælum dóntsmálaráðuneyt- isins. Alþýðublaðið mun gera nánari grein fyrir þessum málum á næstunni, en meðal þess sem dómsmálaráðherra upplýsti er að í undirbúningi er að herða mjög viðurlög öll vegna fíkniefnasölu og neyslu. Asmundur Stefánsson, forseti ASI, um samningana: „Skynsamlegur kostur miðað við aðstæður“ „Ég held að sú stund komi seint, að ég geri samning, sem mér finnst vera góður samningur", sagði Ásmundur Stefánsson, for- seti ASÍ, þegar Alþýðublaðið spurði hann um það, hvort hann væri ánægður með þann samn- ing, sem ASÍ og VSÍ undirrituðu á þriðjudaginn. „Megingalli þessa samnings er það að í honum eru engin kaup- tryggingarákvæði og launaliðir samningsins geta ekki orðið lausir fyrr en 1. september á næsta ári. Þetta er ákaflega slæmt þegar sú óvissa sem ríkir nú er fyrir hendi, þegar efnahagsstefna ríkisstjórn- arinnar er jafn óljós og raun ber vitni og enginn veit hver fram- vinda gengismála verður. En mið- að við aðstæður tel ég að þessi samningur hafi vérið skynsamleg- ur kostur og það besta sem á varð kosið ef ekki átti að koma til á- taka á vinnumarkaðinum. En slík átök hefðu vafalaust orðið mjög hörð“, hélt Ásmundur áfram. — En eru þessir samningar svipaðir BSRB-samningunum? „Já, það má segja að þeir séu mjög sambærilegir. í BSRB- samningunum var megin línan mótuð“. — Nú segirðu að vöntun á kaupmáttartryggingarákvæði, sé megin galli samninganna. Var ai- veg vonlaust að fá slíkt ákvæði í samninginn? „Það var tómt mál að tala um það. Allt frá því að BSRB-samn- ingurinn var gerður var þetta efst á blaði hjá okkur og undir það síðasta tók þetta mestan tíma. Umræðurnar snérust síðustu vik- una fyrst og fremst um kaup- trygginguna. Um helgina gerðum við okkur hinsvegar grein fyrir því að þetta ákvæði fengist aldrei í samninginn nema með því að fara í harðar aðgerðir". — Eru þetta verðbólgusamn- ingar, einsog ýmsir láta í veðri vaka? „Það er algerlega undir við- brögðum stjórnvalda komið, hvort þeir hleypa þessum kaup- hækkunum beint út í verðlagið eða ekki. Kaupmátturinn er háð- ur aðgerðum ríkisstjórnarinnar og eigum við mikið undir við- brögðum hennar, en það er mjög óljóst hver þau verða. Það er því mjög slæmt að kauptryggingar- ákvæði náðist ekki i samningana. En þó þessi galli sé augljós þá töldum við þetta skynsamlegra en að fara í harðar aðgerðir“. — Var skattalækkunarleiðin algerlega út úr myndinni eftir að BSRB samdi? „Nei, ekki var það nú. Við héldum áfram að velta þeim kosti fyrir okkur. Hinsvegar er ljóst að forsendur allar breyttust við samning BSRB og því datt sú ieið upp fyrir. Nú eftir á sýnist mér, miðað við framkomu ríkisstjórn- arinnar, þá hafi hún alcjrei stefnt að því að fara skattalækkunar- leiðina. Þetta voru aldrei annað en orðin tóm og það er alveg ljóst af viðbrögðum ráðherranna að þessi leið var aldrei fyrir hendi. Forsætisráðherra var með eilífar yfirlýsingar, sem stönguðust hver á við aðra og var allur mjög flökt- andi í þessu máli og í samninga- viðræðunt ríkisstjórnarinnar og BSRB, kom þessi leið aldrei upp á borðið. Það er hinsvegar ekkert leynd- armál að innan okkar hóps var mikill áhugi á að fara skattalækk- unarleiðina og tryggja þannig kaupmátt fólksins, samtímis sem stjórnvöldum yrði veitt visst að- hald. Ef sú leið hefði verið farin hefðu atvinnurekendur verið fús- ari til að setja kauptryggingu inn í samningana og skilmála um hvernig ætti að bregðast við ef forsendur breyttust í þjóðfélag- inu“, — Nú voru skattalækkanireitt af loforðum sjálfstæðismanna fyrir síðustu kosningar. Kemur það ekki spánskl fyrir sjónir að eftir á sé farið að semja um þessi kosningaloforð? „Það fer allt eftir því hversu mikla trú menn hafa á kosninga- loforðum. Það verður hver og einn að gera upp við sjálfan sig hversu spánskt það kemur honum fyrir sjónir. Það er hinsvegar ekk- ert nýtt að skattabreytingar séu til umræðu í samningum. Arið 1974 var til dæmis samið um lækkun tekjuskatts og síðan hafa ýmsir samningar verið gerðir þar sem skattamálin hafa verið með í dæminu, t.d. var í febrúarsamn- ingnum samið upp á ákveðna kauphækkun gegn því að ríkis- stjórnin kæmi til móts við þá verst settu með ákveðnum uppbótum. Það er aftur á móti ljóst að þær breytingar, sem verið var að ræða nú voru mun umfangsmeiri en áð- ur“. — En heldurðu að þessi skattalækkunarleiö verði tekin aftur upp, þegar menn setjast næst við samningaborðið? „Það er engin leið að segja neitt um það í dag hvað verður upp á teningnum á næsta ári“, sagði Ás- mundur að lokum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.