Alþýðublaðið - 29.12.1984, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 29.12.1984, Blaðsíða 1
alþýðu blaöiö —— 7V m Laugardagur 29. desember 1984 228. tbl. 65. árg. Framtíðarmúsík handa hamingjusamri þjóð eftir Jón Baldvin Hannibalsson formann Alþýðuflokksins Bókaþjóðin • —Hvar er hún? Hafandi lesið nú um jólin eitt- hvað um tíu bækur þeirra höfunda, sem helzt eru vonir bundnar við, verð ég að játa, að ég hef nokkrar áhyggjur af framtíð bókarinnar og „bókaþjóðarinnar". Mér til mikilla vonbrigða var skáldskapurinn sem ég las mestan part andlaust föndur manna, sem liggur lítið á hjarta og kunna smátt til verka; eða hysterískir kveinstafir þjáðra sálna, sem kunnu ekkert til verka. Undantekningarnar voru fáar en vekja samt vonir. Besta skáldsagan var eftir korn- ungan ísfirðing (nemanda úr MÍ) — og hún var ekkert slor. Sagan er sprottin upp úr hörðu mannlífi sjávarplássins og ósvikin vegna lif- andi þekkingar höfundar á hugsun- arhætti og kjörum þess fólks, sem honum þykir vænt um -— með kost- um þess og göllum. Höfundurinn hefur til að bera hvort tveggja ást til mannfólksins og kunnáttu í skáld- verkinu. Ljóð Gunnars Dal eru annað dæmi um samspil mannvits, velvildar og verkkunnáttu sem gef- ur bókmenntum líf og gildi. Lífs- hlaup kvenna, sem gerðust braut- ryðjendur í nýrri grein atvinnulífs á íslandi, reyndist líka vera eftir- minnilegt og fagmannlegt verk. En bezta bókin sent ég las var eftir ungan sveitarstjóra norður á Skaga- strönd og fjallaði um sjávarútveg íslendinga af þekkingu, viti og ástríðu. Hvers vegna er svona fátt um fína drætti i andanum? Er allt talent þjóðarinnar saman komið í sjósókn og vísindum? Ekki er það í pólitík — svo mikið er víst. Og ekki í skáld- skap. Ætli það sé í tónlistinni og málverkinu? Enginn íslenzkur stjórnmálaflokkur hefur neina vit- ræna menningarpólitík fram að færa — minn flokkur ekki undan- skilinn. En mér sýnist einsýnt að við þurfum að taka skólakerfið til bæna og fjölmiðlafáríð sömuleiðis. Eftir 15 ára kennarareynslu og nokkurra ára fjölmiðlareynslu hef ég að vísu býsna mótaðar hug- myndir um, hvernig það skuli gert. En nánari útlistun á því verður að bíða betri tíma. 2Undirbúningur • kjarasamninga 1985 Það sem vinnandi fólk í landinu varðar um er kaupmáttur launa eft- ir skatt. Vegna almennrar efnahags- óstjórnar, sem m.a. lýsir sér í mis- gengi atvinnuvega, verður því að- eins unnt að tryggja vinnandi fólki óumflýjanlegar kjarabætur í ósvik- inni mynt á næsta ári, að ranglátt og hriplekt skattakerfi verði stokk- að upp. Það þarf m.ö.o. að færa til skattbyrðina frá hinum efnaminni til hinna efnameiri og beita tekju- jöfnunarkerfi ríkisins með öflugu átaki í þágu hinna efnaminni. Þetta þarf að gera, áður en kemur að kjarasamningum, til þess að þar verði gætt jafnvægis milli fram- færsluþarfar heimilanna og greiðslugetu atvinnuvega. Til þess að ná þessum markmiðum þarf að gera eftirfarandi ráðstafanir í tæka tíð: Framhald á bls. 3 SUNNUDAGSLEIÐARl ■■■—.. Um áramót Það er venja að fóik gerir upp sin má! um áramót. Þá hugar það að atburðarás liðins árs og reynir að gera sér í hugarlund hugsanlega þróun þess árs er I buröarliðnum er og móta sfn framtíðarverkefni með það að viömiði. Vitanlega er það mjög einstakl- ingsbundið, sem kemur upp í huga fólks um áramót. Persónubundnir atburöir, gleði- eða sorgarfréttir innan fjölskyldunnar og annað þvíumlíkt er vafa- laust ofarlega I hugum fólks á tímamótum á borð við áramót. Hitt er þó jafnöruggt að almenningur hér á landi hugar einnig að stööu sinni og möguleikum í lífsbaráttunni á slíkum stundum. Það spyr: Hverjir verða möguleikar mlnir á næsta ári til að framfleyta mér og minum sómasamlega? Þannig blandast óhjákvæmilega hin persónulegu mál einstaklinganna, þegar árið 1984 er gert upp hjá fólki, og svo aftur þróun mála á vettvangi stjórnmál- anna. Þetta tvennt verður aldrei aðskiljð. Hvort sem fólki líkar það betur eða verr, þá ræður stjórnmála- þróun miklu um örlög og möguleika hvers einstakl- ings. Stjómmál eru ekki eitthvað, sem fólk getur að- eins fordæmt og sagt að komi sérhreint ekki við, þvi að sjálfsögóu ræður pólitíkin miklu um lifsham- ingju hvers og eins. Hverjir möguleikarnir eru til að brauðfæða sig og sina og hafa þak yfir höfuöiö. Hverjir möguleikarnir eru til mannsæmandi llfsaf- komu. Og vissulega horfir launafólk með talsverðum ugg til framtlðarinnar i Ijósi þeirrar reynslu sem það hef- ur upplifaö á árinu 1984. íslenskur almenningur hef- ur séð það og fundið, hvernig misvitrir stjórnmála- menn geta meó fávislegum ákvörðunum haft gífur- leg áhrif á lif og hamingju tugþúsunda islenskra launamanna. Möguleikar þorra launafólks til ham- ingjuríks lífs hafa stórum verió skertir vegna skammsýnna og fjandsamlegra stjórnvalda. Það getur enginn fundið hamingju og frið í sálu sinni á sama tima og hið efnahagslega óöryggi er sifeilt til staðar. Sá launamaður, sem þarf sífellt aö hafa ótta af morgundeginum í efnahagslegu tilliti, erófrjáls. Og þeir islenskir launamenn sem geta ekki um frjálst höfuð strokiö i þessu tilliti, heldur hafa eilífar áhyggjur af föllnum víxlum, ógreiddum reikningum i stórum bunkum, tómum buddum og rýrum launa- umslögum, skipta þúsundum og aftur þúsundum. Þegar núverandi rikisstjórn tók við völdum i lok maímánaðar á árínu 1983, var það helsta loforö hennar, að skikk yrði komið á efnahagsmálin og langþráðu jafnvægi og stöðugleika yrði náö á þvi sviði. Ríkisstjórnin er lengra frá þessu markmiði slnu nú, en hún var fyrir hálfu öðru ári, þegar sjálf- umglaðir oddvitar hennar settust á ráðherrastóla. Ef horft er fram til ársins 1985, þá er sú ósk vafa- laust í brjósti fjölmargra íslendinga, aó skipt verði um skipstjóra og aðra yfirmenn þjóðar- skútunnar. Margir hafa spáð þvf að ríkisstjórnin komist ekki hjáþviánæstaári að leggjaverk sín fyr- irdóm kjósendaialmennum kosningum. Vitaðerað krafan um kosningaráekki aðeins hljómgrunn með- al stjórnarandstööuflokkanna og mikils meirihluta kjósenda, heldur og í æðstu stjórnum núverandi stjórnarflokka. Timinn einn mun þó leióa í Ijós hvort fólki verði að ósk sinni og möguleikar gefist til að gefa rikisstjórninni þá einkunn, sem henni ber [ al- mennum kosningum. Ymislegt bendir þó til þess að rikisstjórnin komist ekki hjá því að mæta sívaxandi pressu um nýjar kosningar. Allt að einu, þá er skiljanlegur uggur i launafólki. Það hefur reynslu ársins 1984 á borðinu. Fátt bendir til þess aö betri tið með blóm i haga sé framundan fyrir almenning miðað við óbreytta stjórnarstefnu. En það styttir æviniega upp um siðir. Og það kemur að því að úr rætist. Til þess að svo megi verða, þá þarf ýmsu að breyta, þá þarf ýmislegt að færa til betri vegar. Slikt er ekki á færi núverandi stjórn- valda. íslenskir launamenn sýndu mátt sinn og meg- in og þá samstöðu sem allt yfirvinnur í erfióum deil- um á vinnumarkaðnum nú I haust. Sú samstaða er enn til staöar. Og með það að bakgrunni veit nú is- lenskt launafólk að þaö þarf ekki að láta kúga sig og traðka á sér. Það getur i krafti samstöðunnar risið upp og sagt: Hingaö og ekki lengra! — Vist er að slíkt mun gerast, ef ekki verður tekið á vanda ís- lenskra launamanna hið allra fyrsta. Alþýðublaðið hafnar þvi að ísland sé með ómarkvissum stjórnar- ákvörðunum gert aö láglaunasvæði til framtfðar. Langflestir launamenn hljóta aö taka undir þessi viðhorf blaðsins. Meðsamstilltu átaki ásamt von og viljaverða fjöll færð úr stað. Það er hægt að færa mál til betri vegar hér á landi. Að því skulu allir sannir félagshyggju- menn starfa. Jöfnuður, frelsi, réttlæti og samhjálp verða að fá að ríkja. Þessi göfugu markmið hafa ver- ið fótum troðin af (slenskum valdhöfum á árinu 1984. Strengjum þess heit að færa þau til vegs og viröingar, færa þau til framkvæmda, á næsta ári, ár- inu 1985. Með þeim orðum flytur Alþýöublaðið lesendum sínum og landsmönnum öllum hugheilar áramóta- kveðjur með von um gott og farsælt nýtt ár. —GÁS.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.