Alþýðublaðið - 03.06.1987, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 03.06.1987, Blaðsíða 1
Stjórnarmyndunartilraunirnar: JONI BALDVIN FALIÐ FRUMKVÆÐI Dræm svör Alþýðubandalagsins og Kvennalistans við málaleitan Alþýðuflokks um málefnagrundvöll. — Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Alþýðuflokks þrautalendingin? „Forseti Islands hefur falið mér frumkvæði að stjórnarmyndunar- tilraun. Ég hef orðið við því,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson formað- ur Alþýðuflokksins við Alþýðu- blaðið laust eftir kl. 14.00 í gær þeg- ar hann kom af fundi Vigdísar Finnbogadóttur. „Mitt fyrsta verk verður að hafa samband við for- ystumenn annarra flokka og heyra þeirra mat á þeim kostum sem fyrir eru. Að þeim samtölum loknum mun ég skipuleggja framhald að frekari viðræðum." Um helgina hefur þingflokkur Alþýðuflokksins og forystumenn flokksins þingað stíft og haft sam- band við forystu annarra flokka í því hléi sem myndaðist eftir að Þor- steinn Pálsson formaður Sjálfstæð- isflokksins skilaði af sér umboðinu Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, kemur af fundi forseta íslands slðdegis I gær, eftir að Vig- dls Finnbogadóttir fól honum frumkvæðiö að tilraun til stjórnarmyndunar. í fyrstu umferð mun formaður Alþýðu- flokksins hafa samband við forystumenn allra flokka og heyra mat þeirra á kostunum 1 stöðunni. A-mynd/Róbert s.l. föstudag. Meðal annars hafði Alþýðu- flokkurinn samband við forystu Alþýðubandalagsins og Kvenna- lista og sendi drög að málefna- grundvelli og óskaði svara um hugs- anlegan grundvöll að samstarfi. í gær fundaði framkvæmdastjórn og þingflokkur Alþýðubandalagsins sameiginlega og hafnaði fundurinn að fara í viðræður við Alþýðu- flokkinn á grundvelli stjórnar- myndunar við þriðja aðila. Sam- kvæmt heimildum Alþýðublaðsins tók Kvennalistinn vel í málaleitan Alþýðuflokksins en kvað málefna- legt bil milli Kvennalista og Sjálf- stæðisflokks það stórt að ekki yrði um viðræður á þessu stigi að ræða sem miðuðu að myndun þriggja flokka ríkisstjórnar þessara flokka. Á fundi Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur á Hótel Sögu í fyrra- kvöld kom fram sú skoðun forystu Alþýðuflokksins, að staðan væri orðin sú að eina hugsanlega mynst- ur ríkisstjórnar með aðild Alþýðu- flokksins væri samsteypustjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar- flokks og Alþýðuflokks. Jón Bald- vin Hannibalsson ítrekaði á þeim fundi að Alþýðuflokkurinn yrði ekki þriðja hjól undir vagni fráfar- andi ríkisstjórnar. „Við höfum hins vegar aldrei hafnað viðræðum við Framsóknarflokkinn frekar en við aðra flokka. Við höfum sagt: Það yrðu þá umræður á nýjum grund- velli, um ný málefni, um verkskipt- ingu milli flokkanna og opið mál um stjórnarforystuí* Formaður Al- þýðuflokksins undirstrikaði enn- fremur og taldi ennfremur upp nokkur þeirra málefna sem hann taldi ófrávíkjanleg í málefnasamn- ingi nýrrar ríkisstjórnar og nefndi þar á meðal nýtt skatta- og fjár- málakerfi, einn lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn, nýjan fjárhags- grundvöll fyrir húsnæðislánakerf- ið, lög um kaupleiguíbúðir og fram- kvæmd þeirra og bætt kjör hinna tekjulægstu. Búist er við að línur skýrist í dag og á morgun hverjir þeir flokkar verða sem Jón Baldvin Hannibals- son freistar viðræðna við til mynd- unar ríkisstjórnar. Studningsskilyrði Stefánsmanna: Kindakjötskaup og hafnarmannvirki Viðræöur ASI, VSI og VMS: Vinnuveitendur hræðast skatta Eru ekki tilbúnir að ræða endurskoðun samnjnga meðan óvissa ríkir um efnahagsstefnu stjórnvalda. — ASÍ telur hins vegar mikla hættu á launaskriðsöldu sem bitni mest á þeim sem síst skyldi. ASÍ telur því að niðurstaða verði að finnast hvað sem stjórnarmyndun líður. Efnislegt samkomulag náðist ekki í viðræðum ASÍ, VSI og VMS á fundi í gærmorgun um kröfu Al- þýðusambandsins um endurskoðun desembersamninganna. „Meðan þessi óvissa ríkir um efnahags- stefnu stjórnvalda, þá getum við náttúrlega ekkert rætt'um endur- skoðun á samningum eða samninga til lengri tíma“, sagði Gunnar J. Friðriksson, formaður Vinnuveit- endasambands íslands, í samtali við Alþýðublaðið eftir fundinn. VSÍ mun verða tilbúið að ræða samning sem gildi til ársins '88, eftir að mál fara frekar að skýrast. Á fundinum samþykktu vinnuveit- endur hins vegar að hefja þegar við- ræður við einstaka hópa og sam- bönd um endurskoðun. „Við ítrekuðum það sem við höf- um áður sagt, um að samningarnir verði endurskoðaðir strax. Vinnu- veitendasambandið og Vinnumála- sambandið, voru hins vegar ekki sammála um að ganga til mikilla efnislegra viðræðna meðan ekki er ljóst hvað gerist á vettvangi stjórn- málanna á næstunni“, sagði Ás- mundur Stefánsson. Gunnar J. Friðriksson sagði að verið væri að gera því skóna að gripið yrði til víðtækrar skatt- heimtu, meiri en verið hefur. Hann sagði mikilvægt að vita í hvaða formi slíkt yrði áður en gengið yrði til heildarendurskoðunar. Ásmund- ur Stefánsson sagði hins vegar að hvað sem stjórnarmyndunarvið- ræðum liði yrði að finnast niður- staða í endurskoðun samninga, því ella muni bresta á alda launaskriðs: „Slíkt mundi færa okkur í öfuga átt, þ.e.a.s. auka bilið á milli þess sem er raunverulega greitt og þeirra taxta sem samningarnir kveða á um. Þeir hópar sem síst skyldi yrðu auðvitað útundan í slíkri öldu“ Ásmundur sagði aðspurður alltaf erfitt að tilgreina nákvæm- lega einstaka hópa sem þyrftu brýn- ustu endurskoðun. „Það er nánast hægt að fara með endalausar nafn- giftir á hópum. Fiskvinnslan er hins vegar stærsti hópurinn og ekki var gert ráð fyrir fastlaunasamningum hjá þeim hópi í desembersamning- unum. Það er óhjákvæmilegt að það mál verði tekið upp“, sagði Ás- rnundur. Ekki hefur verið boðað til annars formlegs fundar, en viðræður vinnuveitenda og einstakra sam- banda munu fljótlega fara í gang. Stefán Valgeirsson og hans menn munu setja fram ákveðnar kröfur um framgang ýmissa máia, ef til þess kemur að Stefán verði stuðn- ingsmaður áframhaldandi stjórn- arsamstarfs núverandi stjórnar- flokka. Helstu kröfur Stefáns- inanna eru að ákvæði um hugsan- lega endurskoðun á landbúnaðar- samningnum verði ekki nýtt til lækkunar, þeim sem keyptu ibúðir á misgengisárunum verði boðið upp á lán með þeim kjörum sem nú tíðkast og að auknu fjármagni verði veitt i hafnarmannvirki á ýms- um stöðum í Norðurlandskjör- dæmi eystra. Þetta eru í sem stystu máli þær kröfur sem Stefánsmenn hyggjast setja á oddinn ef til þess kemur að af alvöru verði leitað eftir stuðningi Stefáns við áframhaldandi stjórn- arsamstarf. Með stuðningi Stefáns hefði núverandi ríkisstjórn áfram meirihluta í sameinuðu þingi og annarri deildinni. Séra Pétur Þórarinsson á Möðru- völlum í Hörgárdal, sem skipaði annað sætið á J-listanum fyrir kosningarnar í vor, sagði í samtali við Alþýðublaðið í gær að það væri raunar á misskilningi byggt, sem fram kom í fréttum útvarpsins í fyrrakvöld að Steingrímur Her- mannsson hefði boðið Stefáni Val- geirssyni inngöngu í Framsóknar- flokkinn á ný. Steingrímur hefði einungis verið að leita eftir því hvaða kröfur Stefán og menn hans myndu gera í sambandi við áfram- haldandi stuðning við ríkisstjórn- ina. Pétur sagði ennfremur að meðal þess sem sett yrði á oddinn, væri að svokallaðri 80%-regIu í landbúnað- arsamningum yrði ekki beitt. Þessi regla felur í sér að fari kindakjöts- neysla niður fyrir 80% af því sem samningurinn gerir ráð fyrir, komi kaup ríkisins á þessum afurðum til endurskoðunar. Pétur nefndi einnig að J-lista- menn myndu setja fram þá kröfu að því fólki sem keypti íbúðarhúsnæði á árunum 1981—1985 yrði boðið upp á lánakjör eins og þau sem nú tíðkast hjá Húsnæðisstofnun. Þá sagði hann að veita þyrfti auknu fé til hafnarmannvirkja í kjördæm- inu, og nefndi sem dæmi slæmt ástand hafnarmála á Raufarhöfn. Að öðru leyti sagði Pétur að að- standendur J-listans teldu mikil- vægt að fjármagnið héldist á lands- byggðinni, þar sem það verður til og nefndi í því sambandi að margir fylgismenn J-listans teldu sig kannski ekkert síður eiga samleið með Þjóðarflokknum. „Hver veit nema gott samstarf eigi eftir að tak- ast með okkur og Þjóðarflokkn- um“ sagði Pétur Þórarinsson á Möðruvöllum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.