Alþýðublaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 1
Jón Baldvin gagnrýnir kröfugerð kaupmanna um hœrri álagningu: VÍTAVERÐ FRAMKOMA Opinber samtök þeirra um verðmyndun jaðra við að vera lagabrot. Jón Baldvin Hannibals- son fjármálaráðherra segir að ríkisstjórnin muni taka hart á því, ef kaupmenn ætli að misnota skatt- kerfisbreytingar til verð- hækkana. Þá segir fjár- málaráðherra að misbrest- ur hafi orðið hjá kaup- mönnum við álagningu og nú bindist þeir samtökum um að krefjast hærri álagningar: „Framkoma kaupmanna í þessu máli er að mínu viti vítaverð. Opinber samtök þeirra um verðmyndun jaðra við að vera lagabrot. Ríkisstjórn- in verður því að svara þessu af fullri hörku,“ sagði Jón Baldvin í sam- tali við Alþýðublaðið í gær. Ríkisstjórnin hefur beint þeim tilmælum til Verðalags- ráðs að tryggja með öllum löglegum ráðum að skatta- lækkanir skili sér að fullu í lækkun vöruverös til neyt- enda. Ennfremur segir Jón nauðsynlegt að Verðlags- stofnun birti viðmiðunartölur um verð svo hægt verði að virkja samkeppni á milli verslana. Einn megintilgangur með skattkerfisbreytingum ríkis- . stjórnarinnar var að útrýma skattsvikum. Jón Baldvin segir að sá árangur eigi eftir að koma í Ijós: „Söluskatts- kerfi sem gat ekki gert skil á skattskyldri aðferð og frjálsri var ónýtt. Með þessu kerfi er búið að skapa for- sendur fyrir því að hægt verði að beita eftirliti og árangursríkum skattskilum." Fjármálaráðherra segir að söluskattskyldir aðilar fái að kynnast því á næstu dögum og vikum hvaða aðferðum verði beitt í þessum tilgangi. í því sambandi er að sögn Jóns Baldvins í undirbúningi að skylda alla söluskatts- skylda aðila í smásöluverslun til að hafa innsiglaða versl- unarkassa. Þá verða eftirlits- menn gerðir út af örkinni til þess að fylgjast með í verslunar-og þjónustugreinum, Ennfremur koma fljótlega fram breytingar á bókhalds- lögum, sem boða hert viður- lög við bókhaldssvikum. „Menn verða að átta sig á þvl að þessi skattabylting í heild sinni boðar stefnubreyt- ingu. í stað þess að taka tillit til sérhópa með því að bora göt í skattkerfið, þá er farin sú leið að hafa skattkerfið einfalt og árangursríkt." Fjár- málaráðherra sagði að þeim hópum sem þurfa á aðstoð að halda væri bætt áhrif verðhækkana með beinum aðgerðum. Þess vegna hefur rúmum þremur milljörðum verið varið til þess að halda verðhækkunum i skefjum, með formi niðurgreiðslna. Ennfremur hefur 600 milljón- um verið varið til þess aö tryggja að lífeyrisþegar og barnmargar fjölskyldur, sér- stakleqa einstæðir foreldrar, fái að'fullu bætta 7% verð hækkun á almennri matvöru. Þá hækka skattfrelsismörk í tekjuskatti verulega upp fyrir lágmarkslaun. „Þegar við bætast barnabætur og barna- bótaauki mun koma á daginn að hagur slíkra fjölskyldna hefur verið tryggður. Hitt er Ijóst að menn fá ekki heildar- sýn yfir þessar breytingar fyrr Hvalabátarnir njóta verndar lögreglu, enda hefur Paul Watson hvalavinur boðaö komu sina til landsins. A-mynd/Róbert. en að nokkrum vikum, eða jafnvel mánuðum liðnum," sagði fjármálaráðherra. Þá sagði Jón Baldvin að þeir sem gagnrýndu þessar breytingar skatta hvað harð- ast, og kölluðu sig við Vinstr- ið, vissu hreinlega ekki hvað þeir væru að segja. „Við erum búnir að moka flórinn og styrkja grunninn undir vel- ferðarkerfið. Reisa grunn sem hægt verður að standa á í framtíðinni," sagði Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra. Hvalveiðiráðstefna: TVÆR ÞJÚÐIR AFBOÐA „Þetta er eins og verið hef- ur undanfarið," voru þau svör sem fengust hjá lögreglunni er Alþýðublaðið spurðist fyrir um hvort enn væri vakt við hvalbátana. Eins og kunnugt er hefur Paul Watson forsprakki Sea Shepherd boðað komu sína hingað til lands, en samtökin lýstu því yfir að þau hefðu sökkt hvalbátunum í fyrra. Fundur hvalveiðiþjóða verður haldinn í Reykjavík um helgina. Samkvæmt upplýs- ingum úr sjávarútvegsráðu- neytinu hafa tvær þjóðir úr þeim hópi sem á ráöstefnuna var boðið, afboðað komu sína. Svavar andmælir leiðara 4 Atvinna á Siglufirði í hættu? 3 Sprengja við bæjar- dyrnar 8

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.