Alþýðublaðið - 19.01.1988, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 19.01.1988, Blaðsíða 1
Fjármálaráðherra svarar árásum Alþýðubandalags og Kvennalista fullum hálsi: „ÞAÐ VERDUR HLEGIÐ AÐ ÞESSU UÐI“ Nýtt tekjuöflunarkerfi grunnur að velferðarríkinu. Jón Baldvin boðar sölu- skattseftirlit í verslunum. Varar við verkföllum og átökum á vinnumarkaði. Krefst að ríkisstjórnin heimti lœgri nafnvexti af Seðlabankanum. Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra og formaður Alþýðuflokksins sagði á flokksstjórnarfundi Alþýðu- flokksins sem haldinn var á Hótel Sögu um helgina, að árangur hinna miklu skatt- kerfisbreytinga myndu ráðast á næstu dögum og vikum, og það ylti á miklu að rikis- stjórninni tækist að veita skattkerfisbreytingunni fram- gang og tryggja að vörulækk- anir kæmust til neytenda. Fjármálaráðherra lagði á það mikla áherslu að nýtt tekjuöflunarkerfi væri for- sendan fyrir velferðarríkinu, og fór hörðum orðum um þá gagnrýni sem Alþýðuflokkur- inn hefur legið undir að undanförnu. „Það er uggur í brjósti margra núna, að í skjóli skattkerfisbreytingarinnar muni kaupmenn í ýmsum greinum nota tækifærið og efna til meiri verðhækkana en skattkerfisbreytingin gef- ur nokkuö tilefni til, en rétt- læta þær verðhækkanir með visan til skattkerfisbreyting- arinnar," sagði fjármálaráð- herra. Jón Baldvin Hannibalsson fór víða (rúmlega klukku- stundar langri ræðu sinni. Hann sagði að ýmsar vöru- hækkanir í verslunum væru óeðlilegar og að rikisstjórnin yrði að tryggja að verðlækk- un í kjölfar lækkunar tolla og vörugjalds skiluðu sértil neytenda. Meðal ráöstafana sem tjármálaráðherra netndi i þessu sambandi, er að senda eftirlitssveitir í verslanir til að fylgjast með söluskattsinn- heimtu og uppgjöri. Smá- söluverslunum verður enn- fremur gert skylt að nota við- urkennda, innsiglaða versl- unarkassa. Fjármálaráðherra nefndi einnig að hugsanlegt væri að Verðlagsráð beitti ákveðnum reglum til að tryggja rétt vöruverð og nefndi í því sambandi há- marksálagningu eða verð- stöðvun. Fjármálaráðherra sagði einnig í ræðu sinni að til athugunar væri að færa til skiladaga verslana varðandi söluskatt með tilliti til mikill- ar notkunar greiöslukorta. „Við munum skoða það mjög vandlega og taka ákvörðun um það bráðlega, hvort við færum til skiladag- setningar í söluskatti til að tryggja það, að bankakerfi og kreditkortafyrirtæki verði ekki þess valdandi að verslunin telji sig tilneydda til þess að krefjast jafnvel hærri álagn- ingarog velta þessum kostn- aði út i verðlagið," sagði fjár- málaráðherra. Jón Baldvin Hannibalsson ræddi árangur Alþýðuflokks- ins I ríkisstjórnarsamstarfinu og taldi upp fjölmörg mál sem að flokkurinn hafi hrund- ið i framkvæmd. Aðaláherslu lagði fjármálaráðherra á endurreisn tekjuöflunarkerfis rikissjóðs þar sem smugum Jón Baldvin Hannibalsson: Stefnubreytingin felst í þvi að afla tekna af hinum betur settu til að greiða út og koma til skila til hinna sem þurfa fyrst og fremst á að- stoð að halda. hefði verið lokað og undan- þágur felldar niður í því skyni að treysta öflugt tekjuöfl- unarkerfi sem endurgreitt gæti tekjulitlum hópum og skjóta stoðum undir velferð- arríkið. „Með þessu móti höf- um við áhrif á jöfnun tekna í sígildum stíl jafnaðar- mennsku," sagði Jón Baldvin Hannibalsson. Fjármálaráðherra undir- strikaði einnig að þessar rót- tæku og víðamiklu breytingar á ríkisfjármálum hefðu verið framkvæmdar á stuttum tíma og mikil nauðsyn væri aö veita almenningi í landinu greiðar upplýsingar um hinar miklu umbætur. I því sam- bandi stendur nú til að gefa út „hvita bók“ um kerfisbreyt- ingarnar og dreifa á öll heimili í landinu. Fjármálaráðherra boðaði einnig að eftir þinghlé yrði lagt fram á Alþingi frumvarp um 22% virðisaukaskatt sem leysa á söluskattskerfið af hólmi. Fjármálaráðherra sagði að ástæðan fyrir því að söluskattsprósentustigið var ekki lækkað i þessari lotu, væri sú, að ríkisstjórnin hefði tekið við miklum hallarekstri fyrri ríkisstjórnar og miklar upphæðir — 2,2 milljarðar króna — hefur farið í niður- greiðslur. Hins vegar væri vaxandi skilningur innan stjórnarinnar á þvi, aó gera breytingar í ýmsum þáttum niðurgreiðslna eins og á bú- vörulögum og búvörusamn- ingnum. Fjármálaráðherra sagði að næstu skref í skattkerfis- breytingunni væru þau, að skattleggja fyrirtæki, fjár- magns — og eignatekjur og koma á virðisaukaskatti. Jón Baldvin benti á, að slæmar horfur væru fram- undan, samdráttur í þjóðar- tekjum, minnkandi afli og lækkandi gengi dollars en hins vegar væri „bullandi kaupmáttur í þjóðfélaginu." „Brýnasta verkefnin væru því að leiðrétta misgengið milli atvinnugreinanna, draga úr neyslufylleríinu og tryggja að kaupmátturinn ykist hjá þeim tekjulægstu." Hins vegar var- aði fjármálaráðherra eindreg- ið við verkföllum og átökum á vinnumarkaði og vísaði til ára langrar neikvæðrar reynslu af áhrifum slíkra átaka. Fjármálaráðherra sagði að um leið og kjarasamningar væru í sjónmáli muni ríkis- stjórnin heimta það frum- kvæði af Seðlabankanum að nafnvextir lækki til samræm- is við öruggar horfur um lækkandi verðbólgu. Um stöðu Alþýðuflokksins sagði Jón Baldvin Hannibals- son að flokkurinn væri gagn- rýndur og umdeildur þessa stundina en að forysta flokksins viki ekki af réttri leið og hvatti menn til að snúa vörn í sókn. Um stjórn- arandstöðuna og Alþýðu- bandalagið og Kvennalistann sérstaklega sagði formaður Alþýðuflokksins eftirfarandi: Stefnubreyting þessa skatt- kerfis felst í að alfa tekna af hinum betur settu til að greiöa út og koma til skila til hinna sem þurfa fyrst og fremst á aöstoð að halda. Svo rísa Alþýðubandalagiö og Kvennalistinn, þessi fram- tíðaröfl félagshyggjunnar, skilja ekki neitt, hvorki upp né niður, í einhverjum merk- ustu umbótum sem verið er að gera í þjóðfélaginu, nöldra í síbylju tóma vitleysu, dag og nótt. Vekja þjóöfélagið upp með andfælum sem heldur að það sé að gerast einhver ógurleg, skelfileg breyting í íhaldsátt. Eftir nokkur ár verður hlegið að þessu liði eins og köllunum sem komu ríðandi til Reykja- vikur til að mótmæla síman- um.“ Tekið til hendi í dómsmálum Gilda sér- lög fyrir Davíð? 5 Hverjir sleppa við skatta?

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.