Alþýðublaðið - 09.06.1988, Blaðsíða 1
RÍKISBANKARNIR
FELLDU GENGID
Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra, segir að ef vitað
hefði verið að ríkisbankarnir áttu frumkvœði að og stœrstan
hlut í gjaldeyrisspákaupmennskunni „svarta miðvikudaginn“
hefði Alþýðuflokkurinn ekki samþykkt gengisfellingu
„Bráöabirgöalögin voru
sett í miklu timahraki og það
sem er verra er aö ef þaö
heföi legið fyrir daginn eftir
„svarta miövikudaginn“ aö
það voru ríkisbankarnir sjálfir
sem áttu frumkvæði að, og
kannski stærstan hlut í gjald-
eyrisspákaupmennskunni, þá
hefði þessi gengisfelling
aldrei verið samþykkt af okk-
ar hálfu,“ segir Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráð-
herra í viðtali sem birt er á
baksíðu Alþýðublaðsins í
dag. Segir ráðherra að ef
þessar upplýsingar um
hamstur ríkisbankanna hefði
legið fyrir þá, hefði verið
hægt aö halda vinnuáætlun
ríkisstjórnarinnar um að
grípa til aðgerða i siðari
hluta maí. Segir hann að hér
hafi tveir ríkisbankar aðallega
átt hlut að máli.
„Þetta er stóralvarlegt mál
og harður dómur um stjórnar-
far á íslandi ef forsvarsmenn
ríkisbanka eiga aö komast
upp með það óátalið og við-
urlagalaust að vera uppvísir
að slíkri hegðun," segir Jón
Baldvin Hannibalsson.
í viðtalinu segir ráðherra
að álverssamningarnir hafi
brotið ákvæði bráðabirgða-
laganna og að það komi úr
hörðustu átt að atvinnurek-
endur skuli ganga að slíkum
samningum eftir að hafa lýst
þvi yfir í vetur að atvinnuveg-
irnir þyldu ekki hærri samn-
inga en um var samið í vor
og hrópuðu á gengisfellingu
til aö bæta stöðu útflutnings
atvinnuveganna.
Fjármálaráðherra segir að
ef ríkisstjórnin samþykki að
greiða til landbúnaðar
umfram ramma fjárlaga sé
hún að brjóta eigin stefnu og
yfirlýsingar í kjölfar gengis-
fellingarinnar i mai. „Rikis-
stjórnin getur ekki kvartað
undan því að aðrir brjóti
stefnu hennar á bak aftur ef
hún stendur svo að því sjálf,“
segir hann.
Sjá viðtal á baksíðu.
Aðalfundur SÁÁ:
ARKITEKT OG YFIR-
LÆKNIR í FRAM-
BOÐI TIL FORMANNS
Pjetur Maack gefur ekki kost á sér til
endurkjörs.
Á aðalfundi SÁÁ sem hald-
inn verður í Kristalssal Hót-
els Loftleiða í kvöld gefa að
líkindum tveir menn kost á
sér til formennsku. Pjetur
Maack gefur ekki kost á sér
til endurkjörs, en þeir Þórar-
inn Tyrfingsson, yfirlæknir á
Vogi, og Ingimar Ingimars-
son, arkitekt, verða í kjöri.
í gær dró Þráinn Bertels-
son, kvikmyndagerðarmaður,
sitt framboð til baka, en
framboð Ingimars kom til í
framhaldi af þvi, samkvæmt
heimildum Alþýðublaðsins.
Þess má geta að Ingimar
teiknaði Vog, sjúkrastöö SÁÁ.
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, Guðmundur Hallvarðsson formaður Sjómannafélags Reykjavíkur
og Hólmgeir Jónsson framkvæmdastjóri Sjómannasambandsins.
Halldór Asgrímsson um Verðlagsráð:
M
„SE EKKI AÐ MENN FINNI BETRA F0RM“
„Aðalatriðið er að menn
ræði þessi mál og hlusti á
sjónarmið. Þaö verður á end-
anum að ná samkomulagi i
þessum málum, hvort sem
það er gert á vettvangi Verð-
lagsráðs eða einhverjum öðr-
um. Það verður að ákveða
fiskverð með einum eða öðr-
um hætti, þó ég sé ekki far-
inn að sjá að menn finni
betra form en Verðlagsráð,"
sagði Halldór Asgrímsson
sjávarútvegsráðherra viö Al-
þýðublaðið í gær.
Guðmundur Hallvarðsson
formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur og Hólmgeir
Jónsson framkvæmdastjóri
Sjómannasambands íslands
áttu f gær fund með sjávar-
útvegsráðherra þar sem þeir
kynntu honum sjónarmiö sjó-
manna varðandi kjaramáíin
og fiskverðsákvörðun. í sam-
tali við blaðið sögðust þeir
hafa óskað eftir fundinum til
þess að kynna ráðherra beint
sfna afstöðu, þar sem ráð-
herra væri nýkominn til
landsins eftir að hafa setið
fundi Hvalveiðiráðsins á Nýja
Sjálandi. „Við ætlum að vera
áfram f sambandi og ég mun
biðja mína lögfræðinga um
að líta á þau sjónarmið sem
komu fram hjá sjómönnum,"
sagði Halldór Ásgrímsson.
Bæði Sjómannasamband
íslands og Farmanna- og
fiskimannasambandið hafa
ákveðið að taka ekki þátt I
fundum Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins um sinn, vegna
óánægju með fiskverðs-
ákvörðun yfirnefndar á dög-
unum. Verðlagsráð og yfir-
nefndin eru því hálflömuð
meðan svo stendur á og hef-
ur fundi sem vera átti í Verð-
lagsráði um verð á rækju og
hörpudiski veriö frestað um
óákveöinn tíma. Sjómanna-
sambandið ætlar að taka
afstööu til áframhaldandi
setu í Verölagsráði á þingi
sambandsins í haust.