Alþýðublaðið - 08.07.1988, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 08.07.1988, Blaðsíða 1
Jón Baldvin Hannibalsson 90 MILUÓNIR i NfflURGRflÐSLURNAR Ekki 160 milljónir. Kjarni málsins að unnið er að heildarendurskoðun á landbúnaðarkerfinu. Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra segir að samþykkt rikisstjórnarinnar varðandi niðurgreiðslur feli í sér að tekjuauki ríkissjoðs af söluskatti, vegna hækkunar á landbúnaðarverði 1. júní, renni til niðurgreiðslna að upphæð um 90 milljónir króna, en ekki 160 milljónir, eins og haldið hefur verið fram. Jón Baidvin segir kjarna málsins að landbúnað- arkerfið er til heildarendur- skoðunar. Sérstök nefnd stjórnarflokkanna vinnur að tillögum, sem miða að rót- tækum breytingum, i þá átt að nýta betur það fé sem rennur til landbúnaðarmál- anna. Talið er að nefndin Ijúki störfum á næstu vikum. „Það eina sem ríkisstjórnin samþykkti í lok júni var að tekjuauki ríkissjóös af sölu- skatti, vegna hækkunnar á landbúnaðarverði 1. júní, skyldi fara til aukinna niður- greiðslna að þessu sinni. Að öðru leyti er þess einfaldlega beðið að nefndin sem vinnur að endurskoðun í landbúnað- armálum komi með tillögur sínar,“ sagöi Jón Baldvin við Alþýðublaðið í gær. Meðal helstu atriða í þeirri endurskoðun er að hætta að verðbæta innan verðlagsárs- ins þær afurðir sem þegar hafa verió staögreiddar af afurðastöóvum. Breyta stjórn Framleiönisjóös og skoöa möguleika á að minnka þátt útflutningsbóta. Færa vaxta- og geymslukostnað inn í verðlagsgrundvöll, í stað þess að hækka niðurgreiðsl- ur sjálfkrafa. Endurskoða jarðræktar- og búfjárræktar- styrki, þannig að komið verði í veg fyrir sjálfvirka bakreikn- inga. Leita leiða til að draga úr millifærslum og öðrum út- gjöldum til þjónustustofnana landbúnaðarins á sama tíma og bændur taka á sig i vax- andi mæli auknar byrðar vegna minnkandi framleiöslu. Þá koma til álita, að sögn Jóns Baldvins, langvarandi kerfisbreytingar, t.d. að auka áherslu á svæðaskipulag í landbúnaði. Ennfremur tryggja að fjárveitingar til að græða örfoka land og stöðva gróðureyðingu komi að full- um notum, en veröi ekki étn- ar upp jafnóðum. Um markmið endurskoóun- arinnar er nánar fjallaö í fréttaskýringu á síðu 5. Ríkisstjórnin hefur styrkt undirstöður velferðanikisins. Hún á líka að endurskoða útgjöld ríkissjóðs til að vinna gegn verðbólgu. Hún á t.d. að taka heilbrigiskerfið í gegn. Eru læknar ofdekruð tœkjadellustétt? Hún á að krefjast þess að staðið sé við fjárlög svo flugstöðva- og riðukjötsreikningamönnum detti ekki einu sinni í hug að banka upp á í fjármálaráðuneytinu. Hún á að tefla bið- skákina um byggðastefnu og uppstokkun atvinnulífs, svo hœgt sé að byggja upp til framtíðar, segir m.a. í leiðaranum í dag. Verðbólgan tæp 50% Verðhækkanir siðustu 4ra mánaöa benda til þess að verðbólga sé tæp 50%. Þetta kemur fram í itarlegri verð- könnun Alþýðublaðsins, sem birtist í blaðinu á morgun. Kannað var verð í tveimur stórmörkuðum i Reykjavík og tveimur verslunum á Suöur- landi. Notast var við „vísitölu- pakka“ blaðsins en í horíum eru 47 vörutegundir. Hefur verð á pakkanum hækkað um 14% aö meðaltali síðan i marsbyrjun, er verð var kann- að. Það mælir 48% verð- hækkanir miðað við heilt ár.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.