Alþýðublaðið - 28.11.1989, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 28.11.1989, Blaðsíða 1
Virdisaukaskattur í uppnámi: Kratar berja í borðið Þingflokkur Alþýduflokksins telur ekki þingmeirihluta fyrir einu skattþrepi og fer fram á tillögur frá fjármálarádherra. Ólafur Ragn- ar segir enn möguleika á ad skatturinn taki gildi um áramótin. Alþýðuflokkurinn hef- ur heimtað skýrar línur í framkvæmd virðisauka- skattsins. í samþykkt sem þingflokkur Al- þýðuflokksins gerði i gærmorgun segir m.a. að virðisaukaskatti verður ekki komið á samkvæmt gerðu sam- komulagi og því fari þingflokkurinn fram á að fjármálaráðherra leggi fram tillögur sínar um tveggja þrepa virðis- aukaskatt sem haldið er fram að nái markmiðinu um meiri lækkun á verði matvæla án þess að til komi aukinn halli á ríkis- sjóði eða önnur skatt- lagning. A undanförn-^ um dögum og vikum hafa samstarfsflokkar Alþýðuflokksins í ríkis- stjórn sent frá sér álykt- anir og yfirlýsingar sem styðja hugmyndir um tveggja þrepa virðis- aukaskatt og ganga því gegn meginstefnu frum- varpsins. Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráð- herra gerir sér hins veg- ar enn vonir um að VSK-frumvarpið nái fram að ganga um ára- mótin. Samþykkt þingflokks Al- þýðuflokksins hefur valdið talsverðum titringi innan ríkisstjórnarinnar og á Al- þingi. Af því tilefni var haldin utandagskrárum- ræða um virðisaukaskatt- inn sem Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, fór fram á. Kvað hann fjármálaráðherra ófæran um að sjá um fram- kvæmd upptöku virðis- aukaskatts og kallaði eftir stefnu ríkisstjórnarinnar varðandi framkvæmd hans. Ólafur Ragnar sagði und- irbúning upptöku VSK hafa verið víðtækan og gengið vel. Hann taldi einsýnt að ekkert væri því til fyrir- stöðu að hann tæki gildi um næstu áramót, þá með einu skattþrepi eins og sam- komulag milli stjórnar- flokkanna kvæði á um. A næsta ári væri svo hægt að koma á öðru skattþrepi. Jón Baldvin taldi Ijóst að ekki væri lengur þingmeiri- Samþykkt þingflokks Alþýöuflokksins: Ólafur leggi fram tveggja þrepa dæmi Eftir að ljóst var að hugur samstarfsflokka Alþýðuflokksins í ríkis- stjórn stæði til að taka upp tveggja þrepa virðis- aukaskatt sendi þing- flokkur Alþýðuflokks- ins frá sér samþykkt þar sem hann felst á að könnuð verði áhrif þess að taka upp tvö skatt- þrep. Einsýnt virðist að Alþýðuflokkurinn vill ekki þvinga í gegn lög á Alþingi sem mikill meiri- hluti þingmanna og flokka hafa lýst sig and- víga. Alþýðuflokkurinn felst því á að kanna áhrif þess að tekin verði upp tvö skattþrep í virðis- aukaskatti. Fer sam- þykkt þingflokks Al- þýðuflokksins hér á eft- ir: Virðisaukaskattur hef- ur lengi verið á stefnuskrá Alþýðuflokksins til þess að bæta samkeppnisstöðu ís- lenskra atvinnuvega og tryggja bætt skattskil. Þingflokkur Alþýðu- flokksins er hins vegar þeirrar skoðunar að frum- varpi um meiriháttar skatt- kerfisbreytingu megi ekki fylgja yfirlýsingar stjórnar- flokka sem ganga gegn meginstefnu frumvarpsins og veikja traust á breyting- unni. Þingflokkurinn bendir á að nú hafa samstarfs- flokkarnir með samþykkt- um og yfirlýsingum horfið frá samkomulagi því um framkvæmd virðisauka- skatts um næstu áramót sem gert var með málefna- samningi ríkisstjórnarinn- ar og ítrekað við afgreiðslu fjárlagafrumvarps fyrir ár- ið 1990. í samkomulaginu var gert ráð fyrir einu skatt- hlutfalli en endurgreiðslu á hálfum skattinum af helstu matvælum. Fjármálaráðherra hef- ur áætlað að eins þreps virðisaukaskattur með endurgreiðslu skili 9—10% verðlækkun á mjólk, dilka- kjöti, fiski og fersku inn- lendu grænmeti og að heildaráhrifin til lækkunar á matvælaverði nemi um 2%. Samstarfsflokkarnir og forystumenn samtaka á vinnumarkaði og neyt- enda- og bændasamtaka hafa lýst því yfir að þeir telji að með tveggja þrepa virð- isaukaskatti megi ná meiri lækkun matvælaverðs en með samkomulaginu i mál- efnasamningnum. Við þessar aðstæður verður virðisaukaskatti ekki kom- ið á samkvæmt gerðu sam- komulagi. Þingflokkur Alþýðu- flokksins fer því fram á að fjármálaráðherra leggi fram tillögur sínar um tveggja þrepa virðisauka- skatt sem haldið er fram að nái markmiðinu um meiri lækkun á verði matvæla án þess að til komi aukinn halli á ríkissjóði eða önnur skattlagning. Þingflokkurinn lýsir sig reiðubúinn til þess að skoða slíkar tillögur enda verði sýnt fram á að skatt- svik aukist ekki og lækkun matvælaverðs skili sér ör- ugglega til neytenda. Þingflokkur Alþýðu- flokksins minnir jafn- framt á tiilögur um undan- þágulausan virðisauka- skatt í einu þrepi með mun lægra skatthlutfalli en nú er gert ráð fyrir. Þennan kost þarf einnig að kanna. Eins og mál hafa þró- ast getur virðisauka- skattur ekki tekið gildi fyrr en þessum athugun- um er lokið og niður- stöður fengnar sem njóta stuðnings þing- meirihluta ríkisstjórnar- innar. Jón Baldvin Hannibalsson formaöur Alþýðuflokksins, Steingrimur Hermannsson rormaður Framsóknarflokksins og Ólafur Ragnar Grimsson formaður Alþýðubandalagsins stinga saman nefjum í utandagskrárumræðum á Alþingi í gær um virðisaukaskattinn. hluti fyrir upptöku VSK eins og samið hefði veriö um, þ.e. um eitt þrep með endurgreiðslu skattsins á helstu matvæli þannig að vægi hans yrði um helm- ingi lægra á þau en aðra vöru. Hann kvað þingflokk Alþýðuflokksins tilbúinn að skoða tillögu um tvö skattþrep og fallast á að því tilskildu að sýnt væri að það yrði til þess að verð á matvælum lækkaði og það leiddi ekki til aukins halla á ríkissjóði né leiddi af sér aðra skatta. Eitt þrep i VSK væri Alþýðuflokknum ekki trúaratriði og hann væri til- búinn til að fresta gildis- töku VSK til að kanna hvaö tvö þrep myndu leiða af sér. Steingrímur Hermanns- son forsætisráðherra sagði Framsóknarflokkinn standa við það sem í stjórn- arsáttmálanum segir, þ.e. um eitt skattþrep en sjálf- sagt sé að skoða hvort ekki sé rétt að taka upp tvö þrep síðar. Júlíus Sólnes sagðist alltaf hafa haft efasemdir um ágæti VSK en hafi kosiö að beygja sig undir vilja meirhluta Alþingis og at- vinnulífsins. Ýmsir fleiri tóku til máls og ítrekuðu þingmenn Sjálfstæðisflokksins að bullandi ágreiningur væri innan stjórnarinnar og ef ekki lægi fyrir innan ör- fárra dag hvernig fram- kvæmd VSK yrði væri ógerningur að koma henni á um áramót. Þorsteinn Pálsson sagði málið vera komið í það óefni að ríkis- stjórnin ætti að segja af sér. Talsmenn Kvennalista fögnuðu því að málið virtist komið í hnút. Jón Baldvin Hannibalsson um tveggja þrepa VSK: Hækkar matvælaverð! Jón Baldvin Hannibals- son formadur Alþýdu- blaðsins telur að tveggja þrepa virðisaukaskattur muni ekki lækka verð á matvöru, heldur þvert á móti hækka matvöruverð í landinu. Þetta segir Jón Baldvin í viðtali við Al- þýðublaðið í dag. „Þetta þýðir að þótt við hefðum 15% þrep á matvæl- um en yrðum um leið að tak- marka niðurgreiðslur myndu þessar hefðbundnu afurðir hækka i verði, samkvæmt flestum dæmum um 7—8%, þrátt fyrir lægra skattþrep. Vegna þess að í gamla kerf- inu var þetta allt niðurgreitt, en nú verða minni peningar til niðurgreiðslna og verða að duga yfir víðara svið." SJÁ BLS. 5 Vandi loödýrarœktarinnar: Samkomulag um tak- markaðar aðgerðir Samkomulag hefur tek- ist milli Alþýðuflokksins og iandbúnaðarráðherra um takmarkaðar aðgerðir til lausnar á þeim vanda sem loðdýrabændur eiga við að etja. Upprunalegum kröfum sérstakrar nefnd- ar um vanda þennan, sem fólu í sér mörg hundruð milljóna króna fjáraustur úr ríkissjóði hefur verið ýtt til hliðar og samþykkt- ar aðgerðir sem fela í sér aðeins 25 milljón króna út- gjöld. Eftir sérstakan fund Jóns Baldvins Hannibalssonar ut- anríkisráðherra, Sighvats Björgvinssonar formanns Fjárveitinganefndar og Stein- gríms J. Sigfússonar varð samkomulag í megindráttum um niðurstöðu sem takmark- ast við að varðveita þekkingu og stofn í landinu. Samkomulagið felur í sér útgjöld ríkissjóðs upp á 25 milljónir króna í gegnum Byggðasjóð, en að auki mun ríkið beita sér fyrir skuld- breytingu hjá hinum gjald- þrota og verst stöddu upp á 260 milljónir króna. Er þetta talið leysa vanda um 20% þeirra sem í vandræðum hafa átt.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.