Tíminn - 04.05.1968, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 4. maí 1968
IÞROTTIR
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
13
Lögreglan bjargaði
íslenzka landsliðinu
Æstur múgur réðist að ísl. landsliðsmönnunum í handknattleik, þegar þeir
fylgdust með knattspyrnuleik á Spáni. Sluppu við illan leik af vellinum.
Það fór nærri illa fyrir ís-
lenzku landsliðspiltunum í
handknattleik, þegar þeir fóru
að horfa á knattspyrnu á
Spáni. Múgur og margmenni
gerði sig líklegan til að ráðast
á þá, þegar þeir hvöttu ítalska
liðið Torino, sem þarna var
að leika gegn heimaliðinu Atl
etico Madrid. Leikar stóðu jafn
ir, 1:1, þegar Spánverjarnir
skoruðu vafasamt mark. Létu
íslenzku piltamir óánægju sína
í ljós með köllum, en þá skipti
engum togum, að mannfjöldinn,
hinir æstu áhangendur Atletico
Madrid, hópuðust í kringum þá
og gerðu sig líklega til að
lumbra á þeim.
Heilt lögreglulið dreif að og,
sló skjaldborg umihverfis ís-
lenzku leikmennina og forðaði
þeim út af vellinum, en æstur
múgurinn fylgdi á eftir. „Okk-
uít leizt ekki á blikuna, þegar
Iögreglumennimir smelltu upp
byssuhulstrunum" sagði Gunn-
•iau'gur Hjálmarsson, þegar við
ræddum við hann í gær, en
landsliðið kom heim í fyrra
kvöld. „Spánverjamir voru al-
veg óðir og lömdu án afláts á
gluggana á langferðabílnum,
sem við vorum í. Við þökkuðum
okkar sæla að sleppa lifandi
úr þessum darradansi", bætti
Gunnlaugur við.
Já, það gekk á ýmsu í Spán-
arför handknattleiksmanna.
Fyrst skellur í landslei'knum í
Alicante, einhver stærsti lands
leikjaósigur íslands. Síðan
uppreisn með sigri í síðari
landsleiknum í Madrid. Loks
óeirðir á knattspyrnuvelli. Við
spurðum Gunnlaug, hvort ekki
hafi verið noikkur leið að
forða hinu stóra tapi í Ali-
cante, þrátt fyrir erfið skilyrði,
en eins og kunnugt er, var
leikið utanhúss í steikjandi
hita.
„Jú, ég myndi segja það“,
sagði Gumtaugur. „Þegar okk
ur var orðið ljóst, að við yrð-
um að leika við þessar aðstæð
ur, ákváðum við að reyna að
halda knettinum sem mest.
Þetta gekk bærilega til að
byrja með og eftir 20 mínútna
leik voru Spánverjar aðeins
einu marki yfir. En þá hljóp
skyndilega allt í baklás- Ótíma
bær skot reynd æ ofan í æ.
Við vorum flestir undir sömu
sök seldir með þétta. Hefðum
við hins vegar bjilýð áfram
eins og lagt var fyrir, héfði
leikurinn aldrei endað með
þessum ósköpum. Sennilega
hefðum við þó tapað, en
aldrei með 12 marka mun."
.— Og svo var það síðari leik
urinn?
■— Já, hann var miklu já-
kvæðari. Það var leikið innan
húss í hinni glæsilegu íþrótta
höll í Madrid. Áhorfendur voru
ekki ýkja margir, eitthvað um
tvö þúsund. en leiknum var
sjónvarpað beint um adlan
Spán. Spánverjarnir voru stað
ráðnir í að endurtaka hinn
glæsilega leik í Alicante en
það tókst þeim ekki. Við vorum
staðráðnir í því að hleypa þeim
ekki of langt í byrjun og gáf
um aldrei eftir. Fyrri hálfleikn
um lauk með jafntefli, 9:9, en
í síðari hálfleik náðum við okk
ur enn betur á strik og náðum
þá ágætu forskoti, 16:13.
Nokkrar mínútuf voru til leiks
ioka og við ákváðum að halda
knettinum sem mest, með öðr
um orðum að tefja, en ekki
tókst betur til, að við misstum
knöttinn tvisvar eða þrisvar og
Spánverjum tókst í öll skiptin
að skora. Var staðan þá orðin
jöfn aftur, 17:17, og ^ðeíns mín
úta tií leiksloka. Ingólfur Ósk
arsson sagði síðasta orðið í
þessari viðureign, en sigurmark
ið skoraði hann með föstu gólf
skoti. Við vorum sannarlega
fegnir, þegar flauta tímavarðar
ins gall við skömmu síðar.
Fyrsti sigur á heimavelli and-
stæðings var staðreynd.
Framhaia a bls. 14.
Og enn
Guðmundur setti sitt 99. ísl.met!
Alf-Reykjavík. — Sundfólkið
okkar slær ekki slöku við þessa
dagana. í fyrrakvöld fór fram hið
svokallaða Sigurgeirsmót í Sund-
hölÞnni á vegum Sundráðsins og
voru þá sett þrjú ný fslandsmet.
Sigrún Siggeirsdóttir úr Ármanni
byrjaði á því að setja met í 400
metra fjórsundi, synti á _ 6:04,0
mín. En ekki stóð þetta íslands-
met, nema í 8 mínútur, því að
f síðari riðlinum synti Hrafnhild
6-0!
Breiðablik burstaði Hafnfirð- j
inga í Litlu bikarkeppninni á!
fimmtudaginn, en leiknum lauk 1
6:0. Koma þessi úrslit sannarlega
á óvart. Hvað er að, Hafnfirðing-
ar?
ur Guðmundsdóttir, ÍR, á nýju
og enn glæsilegra meti, 5:45,7 mín.
Gamla metið í þessari grein átti
hún sjálf, en það var sett árið
1964 og var 6:16,4 mínútur. Þess
má geta, að Hrafnhildur Kristjáns
dóttir, Ármanni, synti einnig und-
ir gamla metinu, en tími hennar
var 6:07.0 mín.
Þá var röðin komin að Guð-
mundi Gislasyni, Ármanni, en
hann setti nýtt íslandsmet í 200
metra baksundi, synti á 2:24,8 mín
útum- Fyrra metið var 2:25,1 mín.
Til gamans má geta þess, að
þetta var 99. íslandsmetið, sem
Guðmundur setur á ferli sínum.
Eru þá ekki meðtaldar metajafn
anir.
Árangur í öðrum greinum, sem
keppt var í, var nokkuð góður.
T. d. synti Ellen Ingvadóttir, Ár
manni, á 2:57,3 mínútum í 200
metra bringusundi, en árangur
Guðmundur — 99. metið!
hennar er nýtt stúlknamet. Þessi
árangur Ellenar er mjög athygl-
isverður, en fslandsmetið i grein
inni er 2:54,7 mínútur og er ekki
ólíklegt, að Ellen eigi eftir að sló
það.
Þá setti Vilborg Júlíusdóttir, Ár
manni, telpnamet í 400 metra fjór
sundi, synti á 6:53,5 mínútum.
Námskeið fyrir
íþróttakennara
Dagana 28. júlí til 3. ágúst 1968
fer fr,am íþróttakennaranámskeið
á vegum danska íþróttakennara-
sambandsins. Námskeiðið verður
haldið í Sönderborg og verður boð
ið íþróttakennurum frá öllum
Norðurlöndunum. Námskeiðið er
bæði fyrir karla og konur, og tíu
fslendingum er boðin þátttaka.
Aðaiviðíangsefni v.erður kynn-
ing á hinu enska leikfimikerfi
Educational Gymnastics. Kennari
Mr. Percy Jones Lancashire
Education Authority England. Aðr
ar greinar verða:
Fyrir konur: Körfuknattleikur
1. og II. stig. Kennari Birthe Lem
berg. Áhaldaieikfimi Sonja Niel-
son. Rytmisk leikfimi (Kit Kruse).
Sund (Kaj : Warming). Frjálsar
íþróttir (Karen Inge Halkier). Or
ientering. (Ivar Berg Sörensen).
Fyrir karla: Blak. Kennari Per
Göran Pérson. Áhaldaleikfimi.
Kennari Ole Rasch. Frjálsar íþrótt
ir. Kennari Flemming Westh. Ryt-
misk leikfimi. Kennari Verner
Jörgensen. Sund. Kennari Kaj
Warming.
Einnig verða flutt erindi og
hringborðsumræður o. fl. Danska
íþróttakennarasambandið styrkir
tvo íslendinga (íþr.kenn.) um 500
kr. cfcinskar hvorn.
Væntanlegir þátttakendur til-
kynni þátttöku til Jónínu Tryggva
dóttur, sími 84324 eða Árna
Njálssonar sími 32805 fyrir 8.
maí n k.
(Stjórn íþróttakennarafélags
íslands).
Hrafnhildur — stórbaetti metið
Kornungur og efnilegur sund-
maður úr KR, Kristbjörn Magnús
son, setti nýtt sveinamet í 200
metra baksundi, synti á 2:58,5 mín
útum. Er þetta i fyrsta sinn, sem
1 Kristbjörn syndir 200 metra bak
sund og á hann áreiðanlega eftir
að bæta sig í þessari grein.
í lok mótsins fór fram úrslita
leikur Sigurgeirsmótsins í sund
knattleik KR og Ármann léku til
úrslita og var leikurinn mjög
jafn og spennandi. Fyrsta hluta
lauk með jafntefli, 2:2. Öðrum
hluta lauk einnig með jafntefli,
1:1, en í þriðja hluta sigruðu KR-
ingar, 2:0. Fjórða og síðasta hluta
lauk 1:1 og lauk leiknum þvi
með tveggja marka sigri KR, 6:4.
Beztur hjá KR var fyrirliðinn, Sig-
mar Björnsson, en hann skoraði 3
mörk. Þá sýndi Valdimar Valdi-
marsson ágætan leik. Hjá Ármanni
var Stefán Ingólfsson einna bezt-
ur. Annars eru bæði liðin skipuð
nokkuð jöfnum leikmönnum.
„KríHskt" atvik úr leik KR oq Vik-
ings. Magnús, markv. KR, stökk á
HafliSa, miSherja Víkings, innan
vítateigs, eins og myndin sýnir.
Greinileg vítaspyrna, en dómarinn
lokaSi augunum. (Tímam.: Róbert)
Knattspyrna
um helgina
Rvíkurmótinu og Litlu bikar-
keppninni verður haldið áfram
um helgina. Tveir leikir fara
I fram í Litlu bikarkeppninni í dag.
;í Kópavogi leika heimamenn gegn
i Keflavik kl. 3 og í Hafnarfirði
i mæta heimamenn Akranesi kl. 4.
I Keflavík hefur hlotið 6 stig,
Framuald a bls. 14
STUTTAR
FRÉTTIR
• Dundee og Leeds léku
fyrri leikinn í undanúrslitum i
Borgakeppni Evrópu í fyrra-
kvöld. Fór leikurinn fram á
velli Dundee og lauk með
jafntefli, 1:1.
—0—
• Enska landsliðið (leik-
menn undir 24 ára) sigraði
Ungverja 4:0 í leik, sem háður
var í Liverpool í fyrrakvöld.
Er þetta fyrsti sigur liðsins i
þessum aldursflokki gegn Ung-
verjum.
—0—
• f undanúrslitum í Evrópu-
bikarkeppni bikarhafa sigraði
SW Hamburg Cardiff í síðari
leik liðanna 3:2 og er þýzka
liðið þar með komið i úrslit en
fyrri leiknum lauk með jafn-
tefli.
—0—
• Úrslit á Englandi í fyrra
kvöld: Arsenal - Sheff. W. 3:2
Fulham - Stoke 0:2, WBA •
West Ham 3:1. í 2. deild vann
Ipswich Crystal Palace 3:1 og
er með því líklegur sigurvegari
í deildinni.
Badmlnton
íslandsmeistaramót í badminton
verður sett í íþróttahúsi KR i dag
kl. 1,30. Mót þetta mun verða
fjölmennasta badmintonmót sem
farið hefur fram á landi hér til
þessa.
Keppendur eru frá Reykjavík,
ísafirði, Akranesi, Siglufirði, —
Keflavík, Stykkishólmi og Grund
arfirði.
Keppt verður i meistaraflokki
og fyrsta flokki — og í fjórum
af fimm greinuim íþróttarinnar 1
Fratnhald á bls. 14