Vísir - 10.12.1976, Blaðsíða 9

Vísir - 10.12.1976, Blaðsíða 9
I Hamborgarjólatréð i vetrarskrúða en án ljósa. Á laugardaginn verður bætt úr þvi. Ljósm.JA LJÓSIN TENDRUÐ Á JÓLATRJÁNUM Jólasvipurinn er óöum aö færast yfir borgina og á laugardaginn nær hann niöur aö höfn, þvi þá veröur kveikt á Hamborgarjóla- trénu, sem Reykjavikurhöfn hefur nú eins og mörg undanfarin ár fengiö sent frá Hamborg. Tréö er gjöf frá klúbbnum Wikingerrunde, sem er félagsskapur fyrrverandi sjómanna, blaöa- og verslunarmanna i Hamborg og nágrenni. Uwe Marek blaðamaöur frá Hamborg er kominn hingað ásamt konu sinni til þess að afhenda tréö, sem að venju veröur reist á hafnarbakkanum við Hafnarbúöir. Afhendingin fer fram kl. 16 á laugardaginn aö viöstöddum borgarstjóranum I Reykjavik, sendi- herra Þýska sambandslýðveldisins á Islandi og öörum gestum. Gunnar B. Guðmundsson hafnarstjóri mun veita trénu móttöku. Lúðrasveit Reykjavikur mun leika viö Hafnarbúðir frá kl. 15:45. Og siðan verður jólalegt á Austurvelli. A sunnudaginn veröur siðan kveikt á jólatrénu á Austurvelli. Þaö tré er aö venju gjöf Osloborgarbúa til Reykvlkinga, en Oslo hefur I aldarfjórðung sýnt borgarbúum vinarhug meö þessum hætti. Að þessu sinni hefst athöfnin viö Austurvöll um kl. 15:30 meö leik Lúðrasveitar Reykjavikur undir stjórn Þorvalds Steingrimssonar. Sendiherra Noregs á íslandi, Olav Lydvo, mun afhenda tréö, en Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri mun veita trénu viötöku fyrir hönd borgarbúa. Athöfninni lýkur meö þvi aö Dómkórinn syngur jólasálma. Eftir að kveikt hefur veriö á jólatrénu veröur barnaskemmtun við Austurvöll. VERK ARMENSKS LISTAMANNS KYNNT f MÍR-SALNUM Sýning á leikmyndum og teikningum eftir armenska lista manninn Sarkis Arútsjan verður opnuö i MÍR-salnum Laugavegi 178 á laugardaginn. Sarkis Arútsjan er heiðurs- listamaður armenska sovét- lýðveldisins og hefur um árabil verið einn fremsti leikmynda- teiknari i Armeniu. Hann var um langt skeið aðalleikmynda- teiknari stærsta leikhúss Armeniu, Hins akademiska Súndúkjan-leikhúss i Érevan, en nú er hann fastráðinn aðal- leikmyndateiknari við Óperu- og ballettleikhúsið sem kennt er við Spendiarof, auk þess sem hann vinnur að einstökum verk- efnum fyrir önnur leikhús i Armeniu og viðar i Sovétrikjun- um. Á sýningunni eru 25 leik- myndir eftir Arútsjan, unnar með ýmsum hætti og blandaðri tækni fyrir sýningar á ýmsum þekktum sviðsverkum, 10 teikn- ingar og tússmyndir og auk þess nokkur sýnishorn armenskrar alþýðulistar. Sýningin verður opnuð kl. 14 á laugardaginn og verður siðan opin fram yfir áramót kl. 17-19 daglega, nema á laugardögum og sunnudögum kl. 14-19. Leikmynd Arútsjans viö leikritiö Sjö áfangar eftir armenskan höfund. Þórhaliur Filippusson— Ljós m. HL Mólar og svífur í tómstundunum „Ég hef nú mest dundaö viö þetta i tómstundum jafnhliöa svifflugi, en hef hugsað mér aö ieggja meiri rækt viö þaö I framtiðinni,” sagöi Þórhailur Filippusson I samtali viö VIsi. Þórhallur opnaði sl. þriðju- dag sýningu á 13 vatnslita- myndum á Mokka við Skóla- vörðustig. Þetta er hans fyrsta sýning og eru myndirnar allar gerðar á þessu ári nema ein, sem er frá árinu 1949. Þegar þessar myndir eru skoðaðar kemur greinilega i ljós að listamaðurinn hefur oft verið staddur á Sandskeiði, þar sem flugvöllur Svifflugs- félagsins er, þvi nokkrar myndanna sýna Vifilfell. Þórhallur stundaði nám I Handiða- og myndlistaskólan- um árin 1950 og ’51 og sagðist hann aldrei hafa lagt pensilinn alveg frá séí siðan. Mest heföi hann málað i oliu, en á þessu ári hefði hann snúið sér að vatnslitunum. Mosfellingar efna til kvöldvöku í gömlum stíl Karlakórinn Stefnir og Leikfélagiö I Mosfellshreppi gangast fyrir fjölbreyttri jólakvöldvöku I félagsheimilinu Hlégaröi á laugardag- inn kl. 20.30. Þetta er fyrsta tilraun félaganna á þessu sviöi og ef vel tekst til þá verður væntanlega um árvissa samkomu að ræða. A kvöldvökunni mun Söngfélagið Stefnir syngja, félagar úr Leik- félaginu lesa upp úr ýmsum skáldverkum, Blásarakvintett Sinfón- iuhljómsveitarinnarleika,sóknarpresturinn séra Birgir Asgeirsson mun flytja hugvekju og Ólfur Ragnarsson flytur erindi. Stjórnendur kvöldvökunnar eru þau hjónin Sigriður Þorvaldsdótt- ir leikkona og Lárus Sveinsson trompetleikari. Þá verður bpðið upp á kaffiveitingar og gefst gestum kostur á að smakka á jólabakkelsinu fyrr en venjulega. Félagar Söngfélagsins Stefnis. Lífgað upp ó gamla miðbœinn Nýr sýningarsaiur hefur veriö opnaöur I Aöalstræti 8. Ber hann nafniö Galleri Solon Isiandus og dregur nafn sitt af Sölva Helgasyni, einum litrikasta listræna persónuleika Isiands á 19. öld, þótt ekki heföi hann menntun eöa ián til aö þroska hæfileika sina til fulls. Galleriið er samvinnufyrirtæki nokkurra listamanna og listá- hugamanna og er tilgangurinn með stofnun þess sá að gefa þvi lista- fólki sem vinnur smágerva eða seinunna list, tækifæri til þess að koma verkum sinum á framfæri með reglulegu millibili, i stað þess að þurfa að biða mörg ár eftir að geta fyllt stærri sýningarsali borg- arinnar. Auk þess gefst listmálurum sá möguleiki að sýna úrval nýjustu verka sinna i hentugu húsnæði. En aðstandendur þessa galleris hyggjastefna til yfirlitssýninga á litt þekktum listamönnum, lifs og liðnum, innlendum og erlendum. Einnig er fyrirhugað að halda tónleika og fyrirlestra og standa fyrir öðrum listviðburðum sem stuöla myndu að lifi i gamla mið- bænum. Að sögn aðstandenda er Galleri Solon Islandus ekki gróöastofnun fremur en Sölvi forðum og verður reynt aö reka það með þeim á- góða sem fæst af hverri sýningu. Við frágang húsnæðisins fengu þeir fjárhagslega aðstoð m.a. frá menntamálaráðuneytinu og menningarsjóði. Þeir sem standa aö gallerfinu eru Aðalsteinn Ingólfsson, Gunnar Orn Gunnarsson, Kolbrún Björgúlfsdóttir, Kristján Kristjánsson, Leifur Breiðfjörð, Magnús Kjartansson, Siguröur örlygsson, Stein- unn Bergsteinsdóttir, Steingrimur Kristmundsson, Þorbjörg Þórðardóttir og örn Þorsteinsson og var það opnað meö verkum eftir þau öll sl. laugardag. Galleríið er opið kl. 2-6 virka daga nema mánudaga, og kl. 2-10 um helgar. 'ÍSTTANfw ^ Siöasta hönd er lögö á skiltiö sem prýöir nú eitt eista hús bæjarins. — Ljósm. JA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.