Vísir - 11.02.1978, Blaðsíða 6

Vísir - 11.02.1978, Blaðsíða 6
_________ i»70 T7T.GTU rAllir reyndust mér einstaklega vel" „Astæðan fyrir því að ég fór fram á fóstureyðingu var sú, að ég átti þegar þrjú börn og var fráskilin”, sagði 36 ára göm- ul kona.sem fyrir tveimárum fékk fóstureyðingu á fæðingar- deild Landsspitalans. „Ég hafði átt ierfiðleikum með getnaðarvarnir og haföi um sinn hvorki getað notað pilluna eða lykkju og hafði þvi orðið aðnota hettuna, sem við vitum aö er ekki fullnægjandi getn- aðarvörn, sem kom lika i ljós”. Ekki auðveld ákvörðun — Hvernig fórstu að þvi að fá fóstureyðingu? „Ég fór fyrst til mins kven- sjúkdómalæknis, sem ég hafði farið til i mörg ár, og verð ég að segja að hann reyndist mér ein- staklega vel. Það var mér mik- ils virði, þvi þetta er ákvörðun sem ekki er auðvelt að taka. Eftir að ég hafði rætt aðstæð- ur minar við hann fram og aft- ur, sagði hann mér hver venju- legur gangur væri. Það fyrsta sem viö gerðum var að fyUa út itarlega skýrslu, sem ég siöan fór sjálf með til félagsráðgjafa fæðingardeildar Landsspital- ans. Þar mætti ég sömu hlýjunni og ég var undrandi á þvi hve viðmót alls starfsfólksins, sem ég þurfti að tala við vegna þessa var gott. Það virtist ekki dæma, heldur sýna skilning. Ég fékk nákvæmar upplýs- ingar fyrir aðgerðina hjá bæði félagsráðgjafanum og kven- sjúkdómalækni um það hvernig fóstureyðing færi fram og hvaða afleiðingar hún gæti haft i för með sér. Að þessum viðtölum loknum var mér tjáð að þessu yröi hrað- að eins og mögulegt væri, enda leið ekki nema vika þar til ég var kölluð inn á deildina. Ég verð að játa það, að daginn áður en ég fór inn, leið mér illa. Ég bjóst við að litið yrði niður á mig, starfsfólkið myndi sýna mér kulda eða jafnvel fyrirlitn- ingu. En þær áhyggjur voru óþarf- ar. Deildarhjúkrunarkonan tók á móti mér og eftir nauðsynleg- an undirbúning sagði hún mér að hvila mig það sem eftir væri dagsins. Aðgerðin færi siðan fram næsta morgun. Ef mér liði ## Við erum að nálgast það að okkur f jölgi ekki meir'7 — segir Gunnlaugur Snœdal yfirlœknir „Aukning fóstureyðinga hefur ef til vill orðið nokkuð meiri en gert var ráð fyrir, en þess ber að geta að hinar miklu umræður, sem fram fóru við setningu laganna á slnum tfma, vöktu athygli á málinu”, sagði Gunnlaugur Snædal yfirlæknir fæðingardeildar Landsspitalans. Gunnlaugur kvað þó aukninguna fyrsta árið eftir gildistöku laganna hafa verið minni en búist hefði verið viö, hverju svo sem það sætti. Aukningin siðan sagði hann að ætti sér vitaskuld ýmsar or- sakir, en enginn vafi væri á þvi aö sú tiska væri að komast á, að fólk ætti aðeins tvö börn. Nýju lögin væru ekki svo mjög frábrugðin gömiu lögunum og lftill muuur væri á þeim ástæð- um sem gefnar væru. Hlýtur aö hafa áhrif á fólksfjölgun — Telur þú fóstureyðingar eiga þátt i minni fólksfjölgun hér á landi á siðasta ári? „450 fóstureyðingar á einu ári hljóta að hafa einhver áhrif, en svo kemur lika til afstaða fólks og' kannski ófrjósemisað- gerðirnar, þótt þær séu ef til vill ekki farnar að koma fram. Eins og fjöldi þeirra er orðinn, getur ekki verið langt i land með það. Eins og ég sagði áðan er frjóvgun oft óvelkomin, en það er barnið mjög sjaldan. Kona sem finnur sig barnshafandi, án þess að hafa óskað þess, getur orðið óskaplega niðurdregin fyrstu 6-7 vikur meðgöngunnar, en svo er hún kannski ham- ingjusömust af öllum einum til tveim mánuðum siðar. Þetta hef ég séð gerast.” Mikil áhætta „Svo verðum við lika að taka tillit til þeirrar áhættu sem felst i fóstureyöingu. Kanadiskur yfirlæknir, dr. Edward Harkins skrifaði fyrir nokkru grein i timaritiö Toronto General Monitor þar sem hann undir- strikar að fóstureyðingar geti verið mjög hættulegar og telur hann ástæðu til að vara almenn- ing við þeirri hættu. Auk þess að alltaf geti oröið dauösföll af völdum fóstureyð- inga, getur hann þess að um 1/3 allra þeirra táninga, sem gang- ist undir þessa aögerð, verði ófrjóir. 1 þessu sambandi ber þess að geta, að sennilega er þessi tala tiltölulega há i Kan- ada, þar sem fóstureyðingar eru leyfðar allt að 16. viku með- göngu. Hér er aftur á móti mið- að við að aðgerðin fari fram áð- ur en 12 vikur eru liðnar af með- göngutimanum og vitað er að áhættan eykst mjög eftir þvi sem lengra liður á meðgöng- una.” Mistök i lögunum um ófrjósemisaðgerðir — Hvað finnst þér um þá aukningu sem hefur orðið á ófrjósemisaðgerðum? „Mér finnst þetta vera geysi- leg aukning. Ég veit um konur á besta aldri, sem hafa látiö framkvæma þessa aðgerð og mér finnst það voðalegt. Þvi þótt kona eigi tvö eða jafnvel þrjú börn, þá getur hún lent i þeirri aðstöðu að skilja við eða ingu.” — Hafa konurnar sem til þin koma notað einhverjar getnaðarvarnir? „Algengast er að ekkert hafi verið notað. Það er ekki mikið um að getnaðarvarnir klikki. En stundum er jafnvel pillunni kennt um það hvernig komið er, en það er ósannað mál. Aftur á móti sést það greinilega þegar lykkjan hefur verið notuð, þvi hún er til staöar i leginu og kon- an ófrisk samt. Það kemur fyrir að hingað koma konur sem aldrei hafa notað neinar getnaðarvarnir, nema þær sem óöruggar verða að teljast, svo sem svokallaða örugga tima og rofnar samfarir. Samkvæmt iögunum er skylda að fræða fólk um hvað stendur þvi til boða með getnaðarvarnir. Kynfræðslu- deildin i Heilsuverndarstöðinni er eina stofnunin sem sinnir þessu hlutverki, en ég tel það ekki fullnægjandi. Það þyrfti að gera miklu meira, til dæmis i skólunum og úti á landi og verða i framtiðinni i heiisu- gæslustöðvum”. Yngst 13 ára — Er algengast að konur á ákveðnum aldri sæki um fóstur- eyðingu? „Um helmingur þeirra eru undir þritugu. En einnig eru nokkrar yfir fertugt. Þær óska þá oft fóstureyðingar vegna ald- urs. Þeim finnst þær vera orðn- ar of gamlar og treysta sér ekki til aö byrja aftur. Við höfum orðið dálitið vör viö að unglingar hefji samlif án undirbúnings i sambandi við getnaðarvarnir og allmargar missa sinn mann og reglulega langa til að eignast barn eða börn með nýjum manni. En þá er það ekki mögulegt. Og ótal margt annað getur komið þarna til. Það eru mistök, að lögin skuli heimila frjálsar ófrjósemisað- gerðir eftir 25 ára aldur. Ef lög- in hefðu verið þannig, áð þau heimiluðu þær i sérstökum til- fellum, þar sem slikt á rétt á sér, hefði það verið annað mál. Ég tel 30 ár vera alveg lág- marksaldur til að slikar óaftur- kallanlegar aðgerðir séu gerðar eingöngu að ósk viðkomandi. Þessi þróun i viðhorfum fólks, fóstureyðingum og ófrjósemis- aðgerðum, bendir til að við stefnum i sömu átt og ná- grannaþjóðir okkar, það er að segja aö tveggja barna fjöl- skyldur verði algengastar. Ef svo er, hver verður þá afkoma islensks þjóðlifs eftir nokkra áratugi?” Um helmingur þeirra kvenna sem sækja um fóstureyðingu á Islandi er undir þritugu. All- margar eru 15-18 ára, og sú yngsta er 13 ára. 15-18 ára gamlar stúlkur hafa óskaö eftir fóstureyðingu. Eins kemur fyrir að þær eru enn yngri, allt niður i 13 ára”. Enn farið til London — Heldur þú að enn séu gerð- ar hér ólöglegar fóstureyðing- ar? „Ég bara veit það ekki. Ég hef ekki orðið vör við það. Hins vegar veit ég að Lundúnaferðir tiðkast enn, þótt þeim hafi sennilega fækkað, en þar eru sem kunnugt er algerlega frjálsar fóstureyðingar. Ég tel óæskilegt að fólk sé að flakka til annars lands i aðgerð af þessu tagi, sem hefur áhættu i för með sér.” — Telur þú að þessi þróun haldi áfram, þ.e. að fóstur- eyöingum fjölgi ár frá ári? „Ég held að löggjafinn hafi náð sinum tilgangi með þeim lögum sem við búum nú við. Ég held, eða vona, að þau hafi ekki haft óæskileg áhrif. Hvort við þurfum að óttast meiri aukningu i framtiðinni, vona ég ekki, þvi ég óska engum þess að þurfa að ganga i gegn- um þessa aðgerð. Við þurfum að spyrja okkur sjálf hvort við höf- um upp á meira að bjóða. Get- um við gert meira fyrir barn- margar fjölskyldur? Getum við ekki lika gert meira fyrir ungar stúlkur, sem margar eru illa stæðar? Þær hafa ekki öðlast rétt til fæöingarorlofs, ef þær eru ekki i stéttarfélagi og sjúkradaggjöld fá þær ekki fyrr en 17 ára, þótt þær verði veikar á meðgöngutimanum. Þetta eru þau atriði sem við verðum að koma i lag, ef við viljum halda fóstureyðingum niðri.” Útskýringar oft mis- skildar — Er það rétt, sem heyrst hefur, aö viðmót starfsfólks fæðingardeildarinnar hafi breyst gagnvart þeim konum, sem sækja um fóstureyðingu, eftir að nýju lögin tóku gildi? „Ég held ekki að viðhorfið hafi breyst hjá starfsfólkinu. Þaðer mikið til sama fólkiö sem vinnur við þetta. Hins vegar var fólk deildarinnar þvingaö til að vinna við yfirþyrmandi að- stöðuleysi áður en nýja álman var tekin i notkun. Það var ætl- ast til meira af deildinni, en hægt var að sinna og má vera að það hafi eitthvað haft aö segja. Mér finnst annars oft gæta misskilnings hjá fólki, þegar reynt er að útskýra þá áhættu sem hlýtur að vera samfara fóstureyðingu. Einstaka mann- eskja hefur misskilið þetta og haldið að verið væri að reyna að teljahana ofan af þvi að fá fóst- ureyðingu. Ég legg engan dóm á það við konuna, hvort ákvörðun hennar sé rétt eða ekki”. Tekið frjálslega á þessu — Litið þið svoá aö um frjáls- ar fóstureyðingar sé að ræða fram að 12. viku? „Það er tekið frjálslega á þessu, en það er ekki beint hægt að segja að fóstureyðingarnar séu algerlega frjálsar, þegar konan þarf að ræða við að minnsta kosti tvo sérfræðinga til að fá fóstureyðingu. Hins vegar verð ég að játa það,að þegar konan heldur fast viö si'na ákvörðun eftir aö rætt hefur verið við hana, þá fær hún að öðru jöfnu sina fóstureyð- ingu ”. — Hvaða hættur eru helst fylgifiskar þessarar aðgeröar? „Það geta komið ýmis eftir- köst eftir svona aðgerð, en bólguhættan er aðalatriöið, þvi hún getur valdið ófrjósemi. Ungar stúlkur hugsa ekki allt- af fyrir framtiðinni og stundum sjá þær mjög eftir þvi. Hættan á bólgum er meiri hjá ungum stúlkum, sem ekki hafa átt börn og þær eru okkar vandamál. Þessi hætta er þvi minni sem aðgerðin er framkvæmd fyrr á meðgöngutimanum og þvi höf- um viö haldið okkur við 12 vik- urnar. Einstaka konur fá miklar blæðingar og það hefur komið fyrir, að þurft hefur að taka leg úr ungri stúlku, þar sem ekki vær hægt að stöðva blæðingarn- ar á annan hátt . Nú svo koma alltaf fyrir dauðsföll. Erlendfy er reiknað með einu sliku tilfelli af hverj- um þúsund fóstureyðingum. Þetta hefur þó ekki hent hér á landi siðan fyrir daga penisillinsins”. Nógu sárt fyrir þær sem i þvi lenda „Deildin er aö vinna núna að samantekt á tölum um eftirköst, en þær liggja ekki fyrir ennþá. Það er þvi erfitt að nefna, hversu algengt er aö ófrjósemi leiði af fóstureyðingum, en ég býst við að um 5-10% þeirra sem ekkihafafættáður verði ófrjóar og 2-5% hinna. Ég vil ekki hræða neinn með þessu, en þetta er naktar stao- reyndir og þótt þessi eftirköst illa skyidi ég ekki hika við að láta hana eða félagsráðgjafann vita. Aðgerðin fór svo fram eins og ákveðið var og strax á hádegi þriðja dags var ég útskrifuð”. Þakklátust fyrir elsku- legheitin — Hefurðu einhvern tima séð eftir þessari ákvörðun? „Aðstæður minar voru þær, að mér fannst ekkert annað koma til greina og þar hefur ekkert breyst i huga minum. Þó vil ég undirstrika það að ég lit á fóstureyðingar sem neyðarráð- stöfun, en úr þvi að ég þurfti að gangast undir þessa aðgerð, er ég þakklátust fyrir elskulegheit allra þeirra, sem þarna áttu hlut að máli”. Gunnlaugur Snædal: „Ekki beint hægt að segja að fóstur- eyöingar séu algerlega frjáls- ar”. teljist ef til vill ekki mjög algeng, þá erþað nógu sárt fyrir þær sem i þessu lenda. Svo eru ýmis minni háttar eft- irkösteinnig til. Þará meðal má nefna sálræn eftirköst, sem geta oft orðið töluverð. Sumar konur sjá eftir aö hafa látið framkvæma fóstureyðing- una og fyrir kemur að áföll seinna i lifinu eru túlkuð sem hefnd frá forsjóninni. Annars er min „lifsfllósOfia” sú, að ég lít á vandamál konu, sem sækir um fóstureyðingu sem hvert annað vandamál, sem þarf að leysa. Oft finnst mér rökin vera fyrir hendi, en stundum er ég sannfærður um það gagnstæða. Vilji konunnar vegur þó þyngst á metunum. Efúrköstin eru slæm, þegar þau verða, en með góðum lyfj- um og aðstæðum er hægt að halda þeim niðri”. Ólöglegar fóstureyð- ingar horfnar — Telur þú aö ólöglegar fóst- ureyðingar séu ekki lengur framkvæmdar? , ,Ég held aö þær hafi horfið alveg. Það var sennilega aldrei mikiðum þær og til margra ára hafa þær ekki verið, svo okkur sé kunnugt. Það hefur lika komiö i ljós að skriðan i hinar frægu Bretlands- ferðir var aldrei sií, sem talið var. Bretar gefa skýrslur um það hvað margar konur hafi komið fráhverju landi og héðan hafa að meðaltali aöeins 16 kon- ur komið á ári, jafnvel þegar

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.