Vísir - 06.05.1978, Blaðsíða 5

Vísir - 06.05.1978, Blaðsíða 5
5 VÍSIK Laugardagur 6. mai 1978 „w ÞU LEIKUR í LANDSLIÐI VERÐA ÓVINIRNIR 10 SINN- UM 10" SPJALL VIÐ HERMANN GUNNARSSON, ÍÞRÓTTAKAPPA OG FRÉTTAMANN „Ég man ekki eftir mér öðruvísi en með bolta/ þannig að það er eiginlega óraunhæft að nefna ein- hvern ákveðinn aldur og segja: Þá byrjaði ég í fót- bolta. Þegar ég var strákur lék ég mér aðallega á Framnesvellinum svokallaða, sem var lítill völlur við Hringbrautina. Þetta var í vesturbænum og þvi að sjálfsögðu á KR-svæði. Ég lék mér þarna aðal- lega með eldri strákum/ eins og Þórólfi Beck og Erni Steinsen/ og lærði mikið af þeim strax i upphaf i. Auðvitað átti svo að troða mér í KR; pabbi var til dæmis vitlaus KR-ingur/ en ég var ekki i sama flokki og þessir strákar, þannig að ég hætti við það. Ég var plataður á æfingu hjá Víkingi og spilaði með þeim í tvö sumur. Þá hef ég verið 9 og 10 ára. Svo fluttumst við inn i Smáibúðahverfiðsem er Vikings-hverfi , en með pínulítið meiri þroska skiidi maður að Valur var félagið sem mann lang- aði alltaf í, svo ég sió til og byrjaði þar". Þannig hófst ferill Hermanns Gunnarssonar i iþróttunum, ferill sem óhætt er að segja aö hafi oröið lengri og viöburðar- rikari en flestra annarra inn- lendra iþróttamanna. Helgar- blaðiö ræddi við Hermann á heimili hans i Breiöholtinu fyrir stuttu, og auðvitað barst taliö fyrst að iþróttunum. Hermann hætti keppni fyrir um einu ári siðan, þegar hann tók við starfi iþróttafréttamanns útvarpsins - af Jóni Ásgeirssyni. ,,Ég hafði spiiað á móti Val áður en ég gekk yfir i þeirra raðir, ávallt i fjórða flokki. Ég man hvað ég varð sár þegar ég gekk svo niður i fimmta flokk þar, vegna þess að hann hafði þá verið stofnaður.” „Siðan spilaði ég allar götur með Val bæði i handbolta og fót- bolta, og reyndar i fyrstu deild i körfubolta lika. Ég hef senni- lega oröið sigurvegari i um það bil 60 mótum á ferlinum. Við urðum alltaf meistarar i gegnum alla yngri flokkana, bæði i handbolta og fótbolta. Flestir þessara stráka eru löngu hættir, og reyndar vorum við Bergsveinn Alfonsson einir eftir i langan tima. Það er alþekkt þetta vandamál, að alltof margir hætta iðkun iþrótta á aldrinum 15-16 ára”. „Helvitis strákarnir" ,,Ég lék mina fyrstu meistaraflokksleiki 16 ára, bæöi i handbolta og fótbolta og áður en ég fór að leika i öðrum flokki. Valur var á timamótum þegar þetta var', i liðinu voru gamlir jaxlar, en heldur var farið að halla undan fæti. Svo vorum við Bergsveinn settir inn i liðið i fyrsta leik i Reykjavikurmóti, og það gekk vel. Við unnum mótið man ég var og i úrslita- leiknum skoruðum við Berg- sveinn öll mörkin. Ég man enn eftir orðum Arna Njálssonar, sem þá var fyririiði liðsins: „Helvitis strákarnir! Þetta er fyrsta Reykjavikurmótið sem þið takið þátt i og þá vinnum við, en við hinir höfum þurft að berjast fyrir þessu i tiu ár”. „Við verðum bikarmeistarar 1965 og siðan Islandsmeistarar 66 og 67. Það lið kemur ekki vel út úr samanburði við Valsliöið eins og það hefur verið á undan- förnum árum. Liðið i dag er miklu betra frá knattspyrnu- legu sjónarmiði, það fer ekki á milli mála. Það sem gerði Val að tslandsmeisturum þá, var fyrst og fremst sigurvilji, sam- staða og barátta. Þá voru fjórir, öftustu menn i vörninni t.d. ekki undir 400 kilóum og það þætti ekki vænlegt til árangurs i dag”. Haltrað á kantinum „Fyrstu landsleikirnir komu 1966, og það ár útskrifaðist ég einnig úr Verslunarskólanum. Það er eftirminnilegt ár. Fyrsti leikurinn i handboltanum var við Pólverja i heimsmeistara- keppninni, leikur sem við unn- um 23-21. t kjölfar þess leiks fylgdi frægur leikur viö Dani, sem við þurftum að vinna meö fimm mörkum til aö komast áfram. Um tima vorum við þessum fimm mörkum yfir, en forystan tapaðist og við töp- uðum leiknum. •Fyrr á árinu lék ég fyrsta fótboltalandsleikinn — Við Wales hérna á Laugardals- vellinum.. Það var taugastekk- ingur i leikmönnum og við fengum á okkur þrjú mörk. Fljótlega i siðari hálfleik meiddist ég og gat litið beitt mér, en var ekki tekin útaf, heldur látinn haltra úti á kanti. Viö höfðum áður skorað tvö mörk og svo á siöustu sekúnd- unni skoraöi ég jöfnunar- markið. Það var að vonum ákaflega kærkomið. „Það var alltaf verið að segja mér að handboltinn og fót- boltinn toguðust á i manni og að þetta væri ekki hægt. Ég fann aldrei fyrir þvi sjálfur að þessar iþróttagreinar tækju hvor frá annari. Viö höfum rætt þetta kunningjarnir sem höfum verið lengi i þessu og meðal annars komist að þvi að við höfum fórnað aö minnsta kosti nokkr- um milljónum i peningum i sportið. En við sjáum ekki eftir einni einustu minútu þegar upp er staðið.” Heimsmet á 7. hæð „Ég hef eignast aragrúa vina og kunningja i gegnum iþrótt- irnar og hef t.d. ferðast til nánast allra Evrópulandanna og til Bandarikjanna útá þær. Maður hefur leikið á signum moldarvelli i Luxemburg og einnig uppá sjöundu hæð i há- hýsi i New York. Það var dálitið eftirminnilegt. 1966 lékum við tvo landsleiki við Bandarikja- menn i handknattleik. og annar þeirra var einmitt leikinn á sjö- undu hæð i mikilli iþrótta- miðstöð. Þetta var löng og skemmtileg ferð. Þeir höfðu sæmilegu liði á að skipa og stóðu i okkur i fyrri leiknum, en þann siðari, sem leikinn var i há- hýsinu. unnum við 41-17. Þá setti ég heimsmet. sem ég held að standi enn, meö þvi aö skora 17 mörk. Það var ansi gaman, eins og gefur að skilja.” Svag fyrir sjónvarpinu Annars er eftirminnilegasti leikurinn sem ég spilaði senni- Hermann og unnusta hans Ragnheiöur ólafsdóttir. VIÐTAL: GUÐJÓN ARNGRÍMSSON MYNDIR: BJÖRGVIN PÁLSSON 0. FL. !

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.