Vísir - 20.06.1979, Blaðsíða 1

Vísir - 20.06.1979, Blaðsíða 1
tfpaUQr* löíW^ Miðvikudagur 20. júni 1979, 136. tbl. 69. árg. Enn frekari samdráttur hjá Flugleiðum: FRESTU U RÁflA 40 FLUGFREYJUR Um f jörutiu flugfreyjur og flugþjónar sem ver- ið hafa á námskeiðum hjá Flugleiðum hafa ekki verið ráðin hjá félaginu fyrst um sinn, að bvi er Sveinn Sæ- L........................ mundsson blaðafulltrúi Flugleiða sagði við Visi i morgun. Sveinn sagöi að vegna óviss- unnar sem hefði skapast þegar DC-10 þota Flugleiða var kyrr- sett i Bandarikjunum hefði ekki verið hægt að ráða þetta fólk. Að öllu óbreyttu hefði þaö verið aö koma til starfa smátt og smátt næstu daga og vikur. Einnig hefði staðið til að endurráða nokkrar eldri flug- freyjur en af. sömu ástæðum hefði veriö hætt við það. Sveinn sagöi að ómögulegt væri að segja til um það hvenær horfur væru á þvi aö tian fengi aö fara i loftið aftur. Þá sagði Sveinn að miklu færra sumarfólk hefði verið ráöiðhjá Flugleiðum nú en áöur og sums staöar erlendis heföi félagið ekki bætt við neinum starfsmönnum i sumar. — KS Yfirvinnu- hann hiá farmönnum Sameiginlegum fundi yfirmanna á kaupskipaflotanum um bráða- birgöalög rfkisstjórnarinnar lauk nokkru eftir miðnætti með þvf að samþykkt var yfirvinnubann á Faxaflóasvæðinu og i heimahöfn- um. Gildir þetta yfirvinnubann milli kl. 12 og 13 dag hvern svo og eftir kl. 17.08. Jafnframt verður yfirvinnubannið I gildi um helgar og á tyllidögum. Aö sögn Páls Hermannssonar blaöafulltrúa FFSl var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum harðorð ályktun þar sem bráða- birgðalögunum var mótmælt. I ályktuninni voru lögin nefnd „þrælasamningar”. „Við teljum þetta yfirvinnu- bann hérna á Faxaflóasvæðinu fullkomlega löglega aðgerð”, sagði Páll Hermannsson, „og þaö þýðir að við vinnum eins og land- verkamenn i þessum höfnum.” Fundurinn I gærkvöldi fól for- ystumönnum sambandsins aö boöa verkfall frá og meö fyrsta degi, er lögin falla úr gildi, þ.e. 1. janúar 1980. „Við höfum lagt fram kröfur okkar og þeim ætlum við aö ná”, -sagði Páll að lokum. Gsal.' Farskipin eru nú sem óðast að leysa festar og taka upp fyrra „liferni” eftir að farmenn hurfu frá þeirri skoöun sinni að virða lög rikisstjórnarinnar að vettugi. Hér á þessari mynd er þó ekki veriö að leysa festar heldur er það Bakkafoss sem hér leggst að bryggju inni I Sundahöfn I morgun. — Gsal/VIsismynd: Þ.G. Halldóra Bjarnadóttir virtist vel ern, þótt hún þyrfti aöstoö við að komast að hljóðnemanum. SLO I GEGN A VÍSNAKVÚLDI Það er ekki á hverjum degi sem hálfnirætt fólk „treður upp”. Halldóra Bjarnadóttir er orðin 86 ára gömul, en hún lét það ekki aftra sér frá þvi að koma fram á vlsnakvöldi Visna- vinafélagsins á Hótel Borg á mánudagskvöldið. Halldóra fór með visur eftir sjálfa sig og visu sem Magnús ljósvikingur gerði um hana 15 ára gamla. Vakti flutningur hennar mikla hrifningu og var henni þakkað með dynjandi lófataki. Nánar segir frá visnakvöldinu i þættinum Lif og list á bls. 16. Rainbow Warrior á ytri höfninni) Reykjavik. Visismynd: JA Ralnbow warrlor settur I tarbann: Lögbanns- málið 4-5 ár I gangl? „Það er hugsanlegt að Greenpeacemenn fái ekki að athafna sig við hvaiavernd á ís- iandsmiðum næstu 4-5 árin sam- kvæmt framvindu mála i Islenska réttarkerfinu”, sagði Hörður Ólafsson lögmaður Greenpeace- samtakanna i lögbannsmáli þvi sem Hvalur h/f hefur höfðað gegn þeim. Hörður sagði að þangað til lög- bannsúrskuröur hefði veriö kveð- inn upp, en það ætti að gerast inn- an viku, hefði verið sett farbann á Rainbow Warrior af borgar- fógetanum i Reykjavik. Ekki kvaðst hann skilja þá ákvörðun og þvi hefði sá úrskurður verið kærður til Hæstaréttar. Kvaöst hann telja að borgarfógeti vildi að skipiö væri I höfn svo að hann gæti birt þvi lögbannsúrskuröinn. Eftir að hann hefði veriö kveö- inn upp gætu málsaðilar fyrst lagt fram gögn sin i málinu um rétt- mæti friðunaraðgeröa Green- peace á Islandsmiðum og sá málarekstur gæti tekiö 4-5 ár samkvæmt þeirri reynslu sem menn hefðu af framvindu mála i hinu islenska réttarkerfi sagði Höröur að lokum. —HR Veruleg áhrif á afgreiðslu kaupskipanna „Það er ljóst að þetta yfirvinnu- bann farmanna mun hafa veruleg áhrif á afgreiðslu skipanna i Reykjavik og það mun svo aftur leiða til þess að áætlanir um af- greiðslu skipanna i erlendum höfnum munu ekki standast”, sagði Ómar Jóhannsson aö- stoðarframkvæmdastjóri skipa- deildar sambandsins i morgun. Fjögur sambandsskip Ifara frá Reykjavik i dag og eitt frá Reyöarfiröi. Gsal. Riðja um lán h|á borglnni til að borga skatta sinai Isbjörninn h/f og Kirkjusandur h/f hafa farið fram á lánafyrir- greiöslu hjá borginni vegna van- goldinna opinberra gjalda. Borgarráð visaði beiðninni til fjármáladeildar, sem er meö málið til umfjöllunar. Að sögn borgarstjóra munu tvær eða þrjár aörar slikar beiðnir liggja fyrir. Slik fyrirgreiðsla mun ekki hafa tiðkast áður. — JM

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.