Vísir - 23.08.1979, Blaðsíða 11

Vísir - 23.08.1979, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 23. ágdst 1979. Snorri Magnússon, þjálfari Sáms, Sámur og Sumarliði Guðbjörnsson, formaður hjálparsveitarinnar. „Ég held aö fólk geri sér ekki grein fyrir því, hvað það er erfitt að leita að fólki með hundi. Hundurinn þarf að þræða alla þá leið sem maðurinn hefur farið og það tekur kannski jafn langan tíma og hjá manninum sjálfum. Stundum finnst þó maðurinn ekki þótt hann hafi komið á þann stað sem hundurinn stoppar. Þannig var það með Geirfinnsmálið. Við vorum með hund sem rakti slóð Geirfinns Ein- arssonar niður í Hafnarkaffi í Keflavík. Við, einsog margir aðrir, vorum ákaf lega óánægðir með hundinn og héldum að honum hefði skjátlast því talið var að Geir- finnur hefði gengið lengra. Ári síðar kemur það síðan upp úr kafinu að Geirfinnur haf i sést í Hafnarkaf f i og farið þangað eins og hundurinn rakti." Sámur kankast vift fóstra sinn, Snorra Magnússon. Vísismyndir ÞG. hverjum? Má það koma beint til ykkar og biöja ykkur aö koma meö hundinn? „Viö myndum eflaust koma, værum viö nokkurn veginn ör- uggir um aö einhver væri týnd- ur, en viö viljum helst aö svona beiönir komi frá lögreglunni,” sagði Sumarliöi. „Viö værum I raun og veru aö taka fram fyrir hendurnar á lögreglunni ef við geröum þaö. Annars vil ég taka þaö fram aö viö höfum átt alveg sérstaklega gott samband viö lögregluna hér á höfuöborgar- svæöinu og einnig hefur dóms- málaráöuneytiö reynst okkur alveg sérstaklega vel.” Eru sporhundar 100% öruggir? „Nei, auðvitaö eru þeir ekki óskeikulir. Margt getur komiö i veg fyrir að árangur náist. Þaö getur veriö aö einhver hafi meö- höndlaö mikið þann fatnaö, sem sá, sem leita skal aö á, og hund- urinn finni ranga lykt. Þaö er annars mjög áriöandi aö hund- urinn lykti af flik, sem enginn hefur handfjatlað áöur. Einnig ruglar þaö hundinn ef slóðin slitnar, til dæmis þegar sá sem leita á aö fer upp i stræt- isvagn eöa annað farartæki.” Ætla að fá annan hund „Nú erum viö aö reisa hunda- byrgi fyrir sveitina úti á Alfta- nesi, þvi þaö stendur til aö fá annan hund, þvi eins og gefur aö skilja er þaö slæmt aö hafa bara einn hund, þvi ef hundurinn er nýkominn úr leit og beiö.ni um aðra berst, þá er hundurinn óvigur. Sólarhringur þarf minnst aö liöa á milli leita.” ^SS — Þetta sagði Snorri Magnús- son, félagi i Hjálparsveit skáta I Hafnarfirði, en hann er uppal- andi og þjálfari sporhunds sem sveitin á. Fyrir stuttu týndist aldraður maöur og var auglýst eftir hon- um i útvarpi og fjölmiölum. Snorri var fenginn til þess að koma meö Sám til aö rekja slóö gamla mannsins. Sámur finnur hann siöan meövitundarlitinn úti f örfirisey og mátti vist ekki tæpara standa, svo mikiö var af manninum dregiö. Þetta dæmi er aðeins eitt fárra sem sanna gildi spor- hunda hér á landi. Snorri Magnússon hefur haft umsjón meö sporhundum Hjálpar- sveitarinnar i Hafnarfirði i nokkur ár og hefur hann fært dagbók yfir leitirnar sem hund- ar hans hafa tekiö þátt i. Visir hefur enga ástæðu til að efast um sannleiksgildi þessarar bókar og fullyröir aö hundar þessir eru þarfaþing og þaö sanna þær 197 frásagnir af leit meö sporhundum, sem skráöar eru í. þessa dagbók. Visir ræddi viö Snorra og Sumarliöa Guöbjörnsson, for- mann Hjálparsveitar skáta 1 Hafnarfiröi fyrir skömmu um nýja hundinn og nauðsyn spor- hunda. Á launum við uppeldið Fyrsta spurningin var sú hvort það væri ekki timafrekt að annast uppeldi og þjálfun hundsins. „Maður er auövitaö alltaf bundinn viö hann, alla daga árs- ins, þvi þaö má alltaf búast viö útkalli,” sagöi Snorri. „Maöur getur ekki stungiö honum inn i skáp klukkan fjögur á föstudegi þegar vinnuvikunni lýkur.” — Er þetta sjálfboðavinna hjá þér eða ertu á launum? „Ég er eini maðurinn I Hjálparsveit skáta i Hafnarfirði sem er á launum. Ég þarf að æfa hundinn, elda ofan i hann, sækja mat fyrir hann, þjálfa hann, sem er mjög timafrekt starf og krefst mannskaps. Ég er búinn aö fara meö hann i 200 æfingar frá þvi að ég byrjaöi að æfa hann um áramótin.” — Er hundurinn i góöri þjálfun? „Sámur er nú aðeins þriggja ára, og ekki enn kominn i eins góöa þjálfun og hinir voru, en það er óhætt að segja aö hann er efnilegur. . . Sólarhringur þarf að líða á milli leita — Hvernig fer þjálfunin fram? „Hún fer þannig fram að þaö er stöðugt veriö að búa hann undir leitir. Þaö þarf aö fá menn til að leggja slóö og það þarf aö fá menn til aö aka bæöi mér og hundinum á milli. Langur timi veröur aö liöa á milli þess aö slóöin er lögð og hundurinn fer að leita. Ég læt hundinn þefa af ein- hverju sem sá á sem leita skal að. Aöur hefur einhver gengið i 6—7 km og kannski er sólar- hringur siöan þaö geröist. Þá þræðir hundurinn slóö mannsins og loks verður hann aö koma aö manninum sem leitaö var þaö, þvi hundurinn veröur aö finna að hann geri rétt.” — Getur hann leitaö aö öörum manni strax eftir leit? „Nei, þaö veröa aö líöa 24 tim- ar á milli leita, hann þarf aö losa sig við lyktina úr fyrri leit- inni.” Sögðu mig Ijúga „Ég var úti f Danmörku og Noregi fyrir skömmu og I Dan- mörku segja þeir aö hundarnir geti ekki rakiö slóö sem er eldri en fjórir tímar. 1 Noregi segja þeir aö hundarnir geti rakiö slóö sem er allt aö 24 tima gömul, en þá viö bestu hugsanleg skilyrði og aö enginn annar en sá týndi hafi átt þar leiö um,” sagöi Sumarliöi Guöbjörnsson, vara- formaöurHjálparsveitarskáta i Hafnarfiröi. „Þegar ég sagöi aö viö hefö- um fundiö mann sem haföi týnst fyrir 55 timum og auk þess heföi snjóaö yfir hann, þá sögöu þeir mig ljúga.” Blófthundurinn Sámur. Lögreglan milliliðurinn — Hvernig á fólk aö bera sig að vilji það láta leita aö ein- ** 1» né m. m-mm '•wwwmrwaliK '** im m jfe*

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.