Morgunblaðið - 17.09.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 251. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Tilhlökkun
fyrir tónleika
Diddú fagnar skemmtilegu tæki-
færi með Sinfóníunni Listir 24
Kynnar á
Eddunni
Eva María og Sveppi í sviðsljósi
á verðlaunaathöfn Fólk 56
Létt
en kalt
Viktoría Áskelsdóttir synti úr
Hrísey til Árskógsstrandar 11
Stúlkur trúaðri á
starfsframa en piltar
KONUR hafa farið fram úr körlum á
öllum skólastigum í mörgum af iðn-
ríkjum heims og stúlkur eru mun lík-
legri en piltar til að fara í háskóla, að
því er segir í nýrri skýrslu Efnahags-
og framfarastofnunarinnar (OECD).
Stúlkur hafa líka meiri trú á því að fá
hálaunuð störf en piltar.
Skýrslan byggist á samanburði á
námsárangri stúlkna og pilta í 43 þró-
uðum iðnríkjum. Niðurstaðan er að árangur kvenna er betri en karla og
gildir einu í hvaða álfu eða menningarsamfélagi þær eru. Þetta er öfugt við
það sem búist hefði verið við fyrir nokkrum áratugum, að því er fréttavefur
BBC hefur eftir Andreas Schleicher, sérfræðingi OECD í menntamálum.
Hann segir að á síðasta áratug hafi miklar breytingar orðið á væntingum
kvenna um starfsframa og árangur.
Könnunin sýndi að í nær öllum þróuðu löndunum hafa 15 ára stúlkur
meiri trú á að þær fái hálaunuð störf en piltar á sama aldri. 63% breskra
stúlkna búast við að fá „hvítflibbastörf sem krefjast mikillar fagkunnáttu“
fyrir þrítugt, en aðeins 51% breskra pilta. Sama á við í Bandaríkjunum, Jap-
an, Ítalíu, Spáni, Þýskalandi, Frakklandi og Ástralíu. Stúlkurnar hafa fulla
ástæðu til að vera sjálfsöruggari en piltar því að námsárangur þeirra er
betri, og það eykur líkur á vel launuðum störfum. Áhyggjum/2
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
LÖGREGLAN í Stokkhólmi
skýrði frá því í gærkvöldi að hún
hefði handtekið mann sem hún
hafði leitað vegna gruns um að
hann hefði myrt Önnu Lindh, utan-
ríkisráðherra Svíþjóðar.
Talsmaður lögreglunnar, Stina
Wessling, sagði að maðurinn hefði
verið handtekinn á veitingahúsi
fyrir utan Råsunda-leikvanginn í
bæjarfélaginu Solna í Stokkhólmi
klukkan níu í gærkvöldi að stað-
artíma, klukkan sjö að íslenskum
tíma. Hann er í varðhaldi í höfuð-
stöðvum lögreglunnar í Stokk-
hólmi.
Fyrr um daginn hafði lögreglan
gefið út handtökutilskipun á hend-
ur manninum.
Lögreglan veitti ekki upplýsing-
ar um hinn handtekna. Sænskir
fjölmiðlar sögðust vita hver hann
væri en birtu ekki nafn hans. Þeir
sögðu að hann væri maðurinn sem
lögreglan hefur leitað frá því að
hún dreifði myndum úr eftirlits-
kerfi NK-verslunarmiðstöðvarinn-
ar þar sem Lindh var stungin með
hnífi á miðvikudaginn var.
Í vinfengi við nýnasista
Á fréttavef Aftonbladet sagði að
hinn handtekni væri 35 ára karl-
maður sem meðal annars hefði um-
gengist hægriöfgamenn og væri í
vinfengi við „nokkra af illræmd-
ustu nýnasistum Svíþjóðar“. Haft
var þó eftir einum af yfirmönnum
rannsóknarlögreglunnar í gær-
kvöldi að ekkert benti til þess að
Lindh hefði verið myrt af pólitísk-
um ástæðum.
Að sögn sænskra fjölmiðla er
maðurinn á sakaskrá fyrir átján af-
brot og þyngsti dómurinn sem
hann hefur fengið er átta mánaða
fangelsi fyrir stórfelld fjársvik.
Að sögn fréttavefjar Dagens
Nyheter fékk maðurinn fyrsta
dóminn árið 1987. Hann hefur með-
al annars verið dæmdur fyrir
þjófnað, skemmdarverk, brot á
friðhelgi heimilisins, ofbeldi og hót-
anir í garð manns í opinberu starfi,
ofbeldisfullan mótþróa við hand-
töku og brot á lögum um meðferð
hnífa. Kona er sögð hafa kært hann
í fyrra og talið sig vera í hættu
vegna hótana hans.
Í síðasta dómnum yfir mannin-
um kemur meðal annars fram að
hann sé atvinnulaus, hafi átt við
áfengis- og fíkniefnavanda að
stríða og ekki haft fast aðsetur
lengi. Hermt er að hann hafi farið
í meðferð í Sviss vegna kók-
aínfíknar.
Í skýrslu geðlæknis um mann-
inn frá því í fyrra segir að hann
hafi ekki „átt við nein alvarleg
andleg vandamál að stríða“.
Lögreglan neitaði að staðfesta
fréttir fjölmiðlanna um manninn.
Meintur morðingi Önnu
Lindh tekinn höndum
Hinn grunaði
sagður 35 ára
karlmaður sem er
á sakaskrá fyrir
mörg afbrot
Reuters
Var óvopnaður og veitti ekki mótspyrnu
VEITINGAHÚSIÐ í bæjarfélaginu Solna í Stokkhólmi þar sem lög-
reglumenn handtóku mann sem grunaður er um að hafa myrt
Önnu Lindh fyrir viku. Maðurinn var óvopnaður og veitti ekki mót-
spyrnu þegar hann var handtekinn. Hann var að horfa á knatt-
spyrnuleik, sem sýndur var á stórum sjónvarpsskjá, og hópur
knattspyrnuáhugamanna varð vitni að handtökunni. Myndin til
hægri er af hinum grunaða, en hún var tekin úr eftirlitskerfi versl-
unarmiðstöðvarinnar þar sem Anna Lindh var myrt.
Bandaríkin
hafna álykt-
un um Arafat
Sameinuðu þjóðunum. AFP.
BANDARÍKIN beittu í gærkvöldi neitun-
arvaldi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna gegn ályktunartillögu um að hvetja
Ísraela til að reka ekki Yasser Arafat, leið-
toga Palestínumanna, í útlegð eða ráða hann
af dögum.
Ellefu aðildarríkja ráðsins greiddu at-
kvæði með tillögunni, aðeins Bandaríkin
voru á móti og þrjú sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna.
Í texta ályktunardraga, sem Sýrlendingar
lögðu fram fyrir hönd arabaríkja, er þess
„krafist að Ísraelar, hernámsvaldið, hætti
við allar tilraunir til að vísa kjörnum forseta
palestínsku heimastjórnarinnar úr landi og
láti af því að ógna öryggi hans“.
Ákvörðun öryggisráðs Ísraels, sem skip-
að er öllum æðstu mönnum öryggismála
landsins undir forsæti Ariels Sharon for-
sætisráðherra, um að Arafat skyldi „fjar-
lægður“, hefur kallað fram sterk viðbrögð
ráðamanna út um allan heim. Búist er við að
sú ákvörðun Bandaríkjanna að beita neit-
unarvaldi sínu í málinu veki reiði í Mið-Aust-
urlöndum og víðar.
Ísraelar hafna/14
Reuters
Yasser Arafat kom fram á fjöldafundi í
Ramallah á Vesturbakkanum í gær.
11 ríki í öryggisráði SÞ
studdu ályktunina
NORÐURÁL á Grundartanga
undirritaði nýlega endurfjár-
mögnunarsamning með sam-
bankaláni til 15 ára upp á 185
milljónir dollara, eða nærri 15
milljarða króna. Íslandsbanki,
Landsbanki Íslands og Kaupþing-
Búnaðarbanki eiga rúmlega 40%
hlut í því láni, eða sex milljarða
króna. Aðrir bankar eru The
Royal Bank of Scotland, sem leiðir
þennan hóp, NM Rothschild &
Sons Ltd. í London, franski bank-
inn BNP Paribas og Fortis Bank,
sem starfar í Hollandi, Belgíu og
Lúxemborg.
Að sögn Ragnars Guðmunds-
sonar, framkvæmdastjóra fjár-
mála- og stjórnunarsviðs Norður-
áls, gekk vel að ná
sambankaláninu í gegn. Náðst
hafi fram hagkvæmari skilyrði,
lengri lánstími og hærri lánsfjár-
hæð en áður var. Með láninu er
verið að endurfjármagna eldri lán
til Norðuráls og segir Ragnar að
svigrúm skapist nú til frekari fjár-
festinga.
Mikill áhugi á að fjármagna
stækkun álversins
Hlutur íslensku bankanna í lán-
inu er sem fyrr segir rúm 40%.
Kaupþing-Búnaðarbanki kom inn
sem nýr aðili í sambankaláninu og
Íslandsbanki og Landsbanki juku
sína hluti verulega, að sögn Ragn-
ars.
Hann segir þessa banka, og
fleiri til, hafa sýnt mikinn áhuga á
að fjármagna fyrirhugaða stækk-
un álversins úr 90 þúsund tonnum
í 180 þúsund tonn, sem áætlað er
að muni kosta um 300 milljónir
dollara eða um 25 milljarða króna.
Miðað við stækkun upp í 240 þús-
und tonna ársframleiðslugetu er
um 40 milljarða króna fjárfestingu
að ræða hjá Norðuráli.
Reiknar Ragnar með nokkrum
tilboðum í fjármögnun stækkunar-
innar en beðið er svara og um-
sagna bankanna um nýja orku-
sala, Orkuveitu Reykjavíkur og
Hitaveitu Suðurnesja, í stað
Landsvirkjunar. Von er á niður-
stöðu á næstu vikum.
Norðurál á Grundartanga tekur 15 milljarða sambankalán
Íslenskir bankar með
sex milljarða hlut