Morgunblaðið - 31.12.2003, Blaðsíða 1
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra segir að allt bendi til að
samruni fyrirtækja og einokunar-
tilburðir í kjölfarið sé að verða
meinsemd í íslenzku viðskiptalífi
og vill bregðast við því. Davíð vill
mæta samruna og hringamynd-
unum með nýrri löggjöf, sem gefa
myndi fyrirtækjum aðlögunar-
tíma að breyttu lagaumhverfi.
Þetta kemur fram í áramótagrein
forsætisráðherra í Morgun-
blaðinu í dag.
„Nefnd, sem ríkisstjórnin fól
menntamálaráðherra að skipa,
vinnur nú að athugun á samþjöpp-
un á fjölmiðlamarkaði, en eins og
kunnugt er skortir hér slíkan
lagaramma öfugt við það sem ger-
ist í flestum þeim löndum sem við
þekkjum til,“ segir Davíð í grein
sinni. „Lög, sem á niðurstöðum
nefndarinnar yrðu byggð, myndu
auðvitað ekki verða afturvirk. Að-
ilum, sem þau kynnu að taka til,
yrði gefinn hæfilegur tími til að
laga sig að hinu nýja lagaum-
hverfi.“
Davíð segir að þessar aðstæður
minni á að Samkeppnisstofnun
hafi á sínum tíma ekki talið sig
hafa lagaskilyrði til að stemma
stigu við tiltekinni ákvörðun sem
leiddi til samþjöppunar á mat-
vörumarkaði. „Úr þeim lagaann-
mörkum hefur nú verið bætt. Það
þýðir, með öðrum orðum, að slíkur
samruni sem nú er orðinn, hefði
ekki náð fram að ganga miðað við
þau lög sem gilda í landinu,“ segir
Davíð. „Nauðsynlegt virðist að
bregðast við þessu og vaxandi
hringamyndunum á ýmsum svið-
um með nýrri löggjöf sem gefa
myndi þeim sem í hlut ættu tiltek-
inn aðlögunartíma að breyttu
lagaumhverfi. Öll merki benda til
þess að samruni fyrirtækja og ein-
okunartilburðir í kjölfarið séu að
verða meinsemd í íslensku við-
skiptalífi. Við því er sjálfsagt og
eðlilegt að bregðast.“
Davíð Oddsson forsætisráðherra telur að samruni fyrirtækja og einok-
unartilburðir í kjölfarið séu að verða meinsemd í íslenzku viðskiptalífi
Vill bregðast við hringa-
myndun með nýjum lögum
Fyrirtækjum verði gefinn tiltekinn aðlögunartími að breyttu lagaumhverfi
Við áramót/Miðopna Davíð Oddsson forsætisráðherra.
Morgunblaðið/Ásdís
ÁRSLISTAR varð-
andi útgáfu í dæg-
urtónlist raðast nú
inn. Erlendis eru
tvær hljómplötur
mest áberandi,
Speakerboxxx/The
Love Below með
OutKast og Ele-
phant með The
White Stripes. Engin ein erlend plata er
áberandi hjá gagnrýnendum Morgunblaðs-
ins. Plata Mínuss, Halldór Laxness, er hins
vegar á toppnum hjá þremur af fjórum. 32b
Ár Mínuss
STOFNAÐ 1913 354. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Gamlársdagur 2003
Straumar og stefnur Áramótabrennurnar Fólk og fréttir liðins árs Hvað segja þau um áramótin? Bestu
plötur og kvikmyndir ársins Stjórnmálaforingjar við áramót Áramótagetraunir Krossgáta Minnisblað lesenda
ÞEGAR Vladímír Pútín Rúss-
landsforseti var njósnari KGB
í Austur-Þýskalandi hafði
hann mikið yndi af því að lesa
bannaða pöntunarlista póst-
verslana. Þetta kemur fram í
nýrri bók eftir fyrrverandi
KGB-njósnara sem starfaði
með Pútín í austur-þýsku borginni Dresden á
árunum 1984–90. Þar er því haldið fram að
Pútín hafi verið mjög sólginn í „forboðna
ávexti“ frá Vesturlöndum og látið smygla til
sín pöntunarlistum frá Vestur-Þýskalandi.
Var sólginn í
forboðna ávexti
SLÖKKVILIÐIÐ í New York-borg hefur
bjargað 43 ára gömlum manni sem var fastur
undir hrúgu af bókum, tímaritum og öðru
lesefni í tvo sólarhringa á heimili sínu.
Maðurinn hafði safnað lesefninu í tíu ár til
að selja það á götunum og staflað því upp við
veggi íbúðarinnar, frá gólfi upp í loft. Bóka-
og blaðastaflarnir hrundu yfir hann á laug-
ardag og hann var farinn að örvænta um líf
sitt þegar slökkviliðsmenn og nágrannar
hans björguðu honum tveimur dögum síðar.
Lifði bókaflóðið af
New York. AP.
BÍÓÁRIÐ 2003 hefur verið gott. Margar fram-
bærilegar myndir á boðstólum og aðsóknin
fín. Gagnrýnendur Morgunblaðsins nefna
öðru fremur lokakafla Hringadróttinssögu,
Mystic River, Lilja-4-ever, Adaptation og Kill
Bill svo einhverjar séu nefndar. Þeir urðu fyr-
ir vonbrigðum með tvær Matrix-myndir, síð-
ustu Woody Allen-mynd, Stellu í framboði og
endurtekningarnar Dumb and Dumberer, Bad
Boys 2 og Scary Movie 2 – myndir sem þó
komust ekki í flokk með þeim verstu þar sem
m.a. er að finna My Boss’s Daughter, Maid in
Manhattan og The Hot Chick. 34b
Ár Nóa og Hilmis
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gleðilegt nýár
Fékk fimmtíu tíur
LÍNEY Halla Kristinsdóttir
brautskráðist frá MH fyrr í
desember með 9,82 í með-
aleinkunn. Er það hæsta
meðaleinkunninn í sögu skól-
ans. Hún fékk átta níur og
hvorki fleiri né færri en
fimmtíu tíur. Líney er einnig
að læra á trompet, er búin með sjötta stig og
reynir að fara sem oftast í sund. 10
LANGMESTA álagið er á nýársnótt hjá
Neyðarlínunni og bárust 2.000 símtöl þangað
fyrir ári. Þórhallur Ólafsson framkvæmda-
stjóri segir fólk hringja af ýmsum ástæðum.
Umfang starfseminnar hefur vaxið mikið frá
árinu 1996 þegar 50 þúsund hringingar bár-
ust í númerið 112 en í ár stefnir í að þær
verði um 300 þúsund. 8
Álag á nýársnótt
STJÓRNLAGADÓMSTÓLL í Úkraínu úr-
skurðaði í gær að Leoníd Kútsjma, forseti
landsins, gæti gegnt embættinu í þrjú kjör-
tímabil. Andstæðingar Kútsjma brugðust reið-
ir við úrskurðinum og hótuðu götumótmælum
og uppreisn til að knýja forsetann til að segja
af sér vegna ásakana um að hann hefði misnot-
að vald sitt.
Stjórnarskráin tók gildi árið 1996 og kveður
á um að forsetinn geti ekki gegnt embættinu
lengur en í tvö fimm ára kjörtímabil. Stjórn-
lagadómstóllinn komst hins vegar að þeirri nið-
urstöðu að þetta ákvæði gilti ekki um fyrra
kjörtímabil Kútsjma þar sem það hófst árið
1994, áður en stjórnarskráin var samþykkt.
Leiðtogi úkraínskra kommúnista, Petro
Symonenko, lýsti úrskurðinum sem „afleiðingu
siðlauss stjórnkerfis“ og „hneyksli“. Einn af
forystumönnum annars stjórnarandstöðu-
flokks, Okkar Úkraínu, sagði að til greina
kæmi að flokkurinn hvetti til fjöldamótmæla
um miðjan janúar.
Stjórnarandstaðan, kommúnistar og flokkar
sem vilja efnahagslegar og pólitískar umbætur
í landinu, reyndi að knýja Kútsjma til afsagnar
með götumótmælum á árunum 2001–2002. Þau
hófust eftir að forsetinn var sakaður um að
hafa staðið fyrir morði á blaðamanni sem hafði
rannsakað spillingarmál stjórnarinnar.
Einn stjórnarandstöðuflokkanna hvatti til
þess að Úkraínumenn færu að dæmi Georgíu-
manna sem risu upp gegn Edúard Shev-
ardnadze, forseta Georgíu, og knúðu hann til
afsagnar með götumótmælum. Óeining stjórn-
arandstöðuflokkanna stuðlaði að því að mót-
mælin í Úkraínu báru ekki árangur, auk þess
sem óeirðalögreglan hlýddi fyrirmælum um að
kveða þau niður, ólíkt lögreglunni í Georgíu
sem neitaði að ráðast á mótmælendur.
Hóta uppreisn gegn Kútsjma
Stjórnlagadómstóll í
Úkraínu úrskurðar
forseta landsins í vil
Kíev. AP.