Morgunblaðið - 17.04.2004, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 17.04.2004, Blaðsíða 61
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 61 Dagskrá mótsins: Mfl. karla: kl. 11.00 8 manna úrslit Mfl. karla: kl. 11.45 4 manna úrslit Mfl. karla: kl. 12.30 Úrslitaleikur Mfl. kvenna kl. 11.45 4 kvenna úrslit Mfl. kvenna kl. 12.30 Úrslitaleikur Áhugafólk um borðtennis fjölmennið! Íslandsmeistarinn Guðmundur E. Stephensen Lokamót Grand Prix mótaraða BTÍ 2004 í borðtennis sunnudaginn 18. apríl TBR-íþróttahúsið FÓLK  EIÐUR Smári Guðjohnsen verður væntanlega ekki með liði Chelsea í dag þegar liðið tekur á móti Everton í ensku úrvalsdeildinni. Eiður hefur átt við veikindi að stríða í vikunni en hann nældi sér í vírus og hefur legið heima með hita undanfarna daga. Juan Sebastian Veron, sem nýstig- inn er upp úr erfiðum bakmeiðslum, verður hvíldur í dag og þá eru Claude Makelele, Emmanuel Petit, Carlo Cudicini og Glen Johnson allir á sjúkralistanum.  HERMANN Hreiðarsson verður á sínum stað í vörn Charlton sem fær Birmingham í heimsókn á The Vall- ey í dag. Leikurinn er mikilvægur fyrir bæði lið enda þau í baráttunni um fjórða sætið í deildinni. Hermann segir á heimasíðu Charlton að eftir sigurinn á Liverpool hafi hann enn trú á að Charlton geti náð 4. sætinu.  KEVIN Keegan knattspyrnustjóri Manchester City vísar á bug þeim vangaveltum um að veikindi hans í baki kunni að verða til þess að hann hætti störfum hjá félaginu í lok leik- tíðarinnar. Keegan á tvö ár eftir af fimm ára samningi sínum við City og hann segir ekkert vera í spilunum annað en að hann verði út samnings- tímann hjá félaginu.  ROY Keane og Ruud Van Nistel- rooy hafa hvorugir náð sér af meiðslum og ólíklegt er að Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Man- chester United, tefli þeim fram í leiknum gegn Portsmouth í dag. Báðir hafa verið fjarri góðu gamni í liði United í síðustu tveimur leikjum en það hefur ekki komið að sök því liðið hefur unnið báða leikina, Birm- ingham, 2:1, og Everton, 1:0.  STEFAN Reuter, varnarmaður Dortmund, leikur í dag sinn 500. leik í þýsku Bundesligunni í knatt- spyrnu, þegar Dortmund fær meist- ara Bayern München í heimsókn á Westfalen-völlinn í Dortmund. Að- eins níu leikmenn hafa spilað fleiri leiki í deildinni en Reuter.  FRANSKI knattspyrnumaðurinn Bixente Lizarazu tilkynnti í gær að hann myndi yfirgefa herbúðir þýsku meistaranna í Bayern München í sumar. Samningur Lizarazu við Bæjara rennur út í sumar. Hann vildi fá framlengingu en samninga- viðræður milli hans og forráða- manna Bayern fóru út um þúfur.  FIFA ákvað í gær að refsa lands- liði Kamerúna fyrir að spila í ólög- legum búningum í Afríkukeppninni. Búningurinn var samfestingur og það er ekki leyfilegt í reglum FIFA en Kamerúnar hafa áður brotið regl- ur hvað búninga varðar. Refsing FIFA er tvenns konar. Annars vegar hefja Kamerúnar undankeppni HM með 6 stig í mínus og þá er þeim gert að greiða 86 þúsund evrur í sekt. FALUR Harðarson leikmaður og annar þjálfari Íslands – og bikarmeistaraliðs Keflavíkur sagði í lokahófi fé- lagsins á fimmtudaginn að hann myndi ekki leika fleiri leiki með liðinu. Falur sem verður 36 ára síðar á þessu ári hefur átt við þrálát hnémeiðsli að stríða undanfarin misseri og lék lítið með liðinu í vetur. Falur afhenti Gunnari Einarssyni, fyrirliða, keppnistreyju nr. 4 í lokahófinu og mun Gunnar leika með fjarkann á bakinu á næstu leiktíð. Falur hefur leikið 106 A-landsleiki, á árunum 1989 -2000, og er í 9. sæti á lista yfir leikja- hæstu landsliðsmenn frá upphafi. Hann hóf ferilinn með Keflavík í efstu deild tímabilið 1986-1987. Hann lék með háskólaliði í Bandaríkjunum 1991-1993, og með KR í tvö tímabil, 1993-1995. Falur lék sem atvinnu- maður í Finnlandi, 1999-2000, með liðinu Honka. Falur er hættur einnig útnefndir í gær en þeir eru María Ben Erlingsdóttir úr Íslands- meistaraliði Keflavíkur og Sævar Haraldsson úr Haukum. Úrvalslið 1. deildar kvenna er þannig skipað: Hildur Sigurðardótt- ir KR, Alda Leif Jónsdóttir ÍS, Sól- veig Gunnlaugsdóttir Grindavík, Birna Valgarðsdóttir Keflavík, Erla Þorsteinsdóttir Keflavík. Engin leikmaður úr Íslandsmeist- araliði Keflavíkur er í úrvalsliði úr- valsdeildar karla en það er þannig skipað: Lárus Jónsson Hamri, Pálmi Freyr Sigurgeirsson Breiðabliki, Páll Axel Vilbergsson Grindavík, Páll Kristinsson Njarðvík, Hlynur Bæringsson Snæfelli. Leifur bestur 6. árið í röð Að auki voru fjölmargar aðrar við- urkenningar veittar í hófinu í gær og þar má nefna að Bárður Eyþórsson, þjálfari Snæfells, og Gréta María Grétarsdóttir, þjálfari KR, voru út- nefnd þjálfarar ársins og skólastjór- inn Leifur Sigfinnur Garðarsson varð fyrir valinu sem dómari ársins. Þetta er í sjötta árið í röð sem Leifur er valinn sá besti og í áttunda sinn sem hann hlítur þessa nafnbót. Þetta er annað árið í röð semHildur Sigurðardóttir er út- nefnd sem leikmaður ársins en hún skoraði 18 stig að meðaltali í leik í vetur en KR féll úr leik í und- anúrslitum gegn ÍS. Bestu ungu leikmennirnir voru Morgunblaðið/Golli Páll Axel Vilbergsson, fyrirliði Grindvíkinga, var besti leikmaður ársins 2004 að mati leikmanna og þjálfara í úrvalsdeild. Hildur og Páll Axel leikmenn ársins HILDUR Sigurðardóttir úr KR og Páll Axel Vilbergsson úr Grindavík voru útnefnd bestu leikmenn ársins á lokahófi Körfuknattleiks- sambands Íslands, KKÍ, sem fram fór á Hótel Sögu í gærkvöld. Það eru leikmenn og þjálfarar sem standa að kjörinu. Þetta er annað ár- ið í röð sem leikmaður úr liði Grindavíkur er efstur í þessu kjöri en Helgi Jónas Guðfinnsson var leikmaður ársins í fyrra. Páll Axel, sem skoraði 23,4 stig að meðaltali í vetur, hefur aldrei áður fengið þessa viðurkenningu. Grindavík endaði í öðru sæti í deildarkeppninni en féll úr leik í undanúrslitum gegn Íslandsmeistaraliði Keflavíkur. Morgunblaðið/Sverrir Hildur Sigurðardóttir, fyrirliði KR, er leikmaður ársins í 1. deild kvenna annað árið í röð en hún er hér í leik gegn Keflavík. ÍSLENSKI landsliðsmaðurinn Brenton Birmingham sem leikið hefur með úrvalsdeildarliði Njarðvíkur undanfarin misseri hefur samið við liðið á ný og mun hann jafnframt vera aðstoðarþjálfari liðsins. Einar Jóhannsson mun stýra liðinu á næsta ári en hann var aðstoðarmaður Friðriks Ragnarssonar í vetur, en Friðrik ákvað að snúa sér að öðrum verk- efnum eftir að keppnistímabilinu lauk. Njarðvík féll úr keppni gegn Snæfelli í undanúrslitum Íslands- mótsins en liðið varð meistari í Hópbílabikarkeppn- inni í vetur. Brenton samdi við Njarðvík á ný
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.