Pressan - 08.12.1988, Blaðsíða 9

Pressan - 08.12.1988, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 8. desember 1988 9 • Utanríkisráðherra segirað ef NATO fái ekki heimild til forkönnunar fyrir næsta haust missi íslendingar verkefnið úr landi. • Hugmyndir um byggingu varaflugvallar á Grænlandi sagðar eiga að þrýsta á íslendinga. • Skýrsla starfshóps um varaflugvöll hefur verið opinberuð og sýnir að cjera má ráð fyrir að herinn noti flugvöllinn einnig á friðartímum. • Aætlanir um byggingu vallaríns gera ráð fyrir að hann verði cpinn allan sólarhringinn, til staðar verði slökkvilið og snjóruðningsdeild og fullkominn öryggisútbúnaður. Að sögn utanríkisráðherra mun NATO hugsanlega greiðan allan byggingarkostnaðinn en íslendingar rekstr- arkostnaðinn. Skv. upplýsingum af Keflavíkurflugvelli er rekstrar- kostnaður við þann völl einan um 30 milljónir dollara á ári. Aðaldalsflugvöllur er aöeins í 15 kílómetra fjarlægð frá Húsavik. Þar hefur nýlega risið glæsileg flugstöð, en ef áaetlanir um byggingu varaflugvallar komast i framkvæmd innan fárra ára verður gjörbreyt- ing á svæðinu. NATO gerir ráð fyrir 3.000 m flugbraut með tilheyrandi flugvélastæði, akstursbrautum og miklum viðbúnaði. Frumkostn- aðaráætlun hljóðar upp á 11—15 milljarða. PRESSUMYND/ Jóhann- es Sigurjónsson Bygging varaflugvallar fyrir millilandaflug hér á landi sem kostaður yrði af mannvirkjasjóði NATO er nú í at- hugun í utanríkisráðuneytinu. Bandaríkjamenn hafa sýnt þessu mikinn áhuga undanfarið og mannvirkja- sjóður NATO hefur þegar samþykkt fjárveitingu til að gera megi forkönnun á aðstæðum hér á landi fyrir slíkan flugvöll. Þetta kemur fram í svari utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Geir Haarde alþingismanni, sem dreift er á alþingi í dag. Mannvirkið mun kosta 11—15 milljarða. Skv. upplýsingum sem PRESSAN hefur aflað sér er um að ræða 3.000 metra langa flugbraut með stóru flug- hlaði og eldsneytisgeymum og öryggisbúnaði. Þetta eru fyrstu kröfur NATO og ennfremur að samhliða flug- brautinni verði ökubraut. Þá er gert ráð fyrir að þar verði stöðug vakt í flugturni allan sólarhringinn, slökkvilið, snjóruðningsdeild til að flugbraut verði alltaf haldið hreinni o.s.frv. Til samanburðar má geta þess að PRESSAN hefur aflað sér þeirra upplýsinga á Keflavík- urflugvelli að þar kosti reksturinn við flugbrautirnar einar (þ.e. hreinsun flugbrauta, slökkvilið, viðhald á brautarljósum o.þ.h.) um 30 milljónir dollara á ári eða tæplega einn og hálfan milljarð ísl. króna. Hugmyndir NATO munu ganga út á að framkvæmdir við byggingu varaflugvallar á Húsavík geti hafist árið 1994 eða 1995. Þaö er því augljóst aö varaflug- vallarmálið er að komast mjög áberandi á dagskrá þrátt fyrir and- stöðu Alþýðubandalagsins og framsóknarmanna við það að hér verði byggður NATO-flugvöllur og að í stjórnarsáttmálanum sé tekið fram að ekki verði ráðist í neinar nýjar hernaðarframkvæmdir. Eng- in ákvörðun hefur verið tekin og ekki stendur til að tekin verði ákvörðun um framkvæmdir á næst- unni. Hins vegar hefur PRESSAN fyrir því traustar heimildir að mjög fljótlega og ekki síðar en á fyrstu mánuðum næsta árs verði íslensk stjórnvöld að taka ákvörðun um að leyfa Bandaríkjamönnum að kanna hér möguleika fyrir gerð varaflug- vallar fyrir Atlantshafsbandalagið. ÞRÝSTINGUR FRÁ GRÆNLANDI Þrýstingurinn á málið kemur OMAR FRIÐRIKSSON einkum til vegna samþykkis græn- lensku heimastjórnarinnar og danskra stjórnvalda til handa NATO um að gera forkönnun á því að leggja varaflugvöll í Meistaravík á Austur-Grænlandi. Hér líta menn svo á að ef ekki verða teknar ákvarðanir skjótlega um forkönn- un hér á landi muni íslendingar missa herflugvöllinn til Grænlands en Jón Baldvin hefur nýlega upp- lýst að NATO sé reiðubúið til að kosta vallargerð hér á landi, senni- !EF VIÐ FÖLLUMST EKKI Á FORKÖNNUN HVERFUR VERKEFNIÐ ÚR LANDI í segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra. íslensk stjórnvöld verða að gera upp hug sinn tilNATO- flugvallar fyrir nœsta haust. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráöherra er nú staddur íhöfuðstöðv- um NATO í Brussel á ráðherrafundi bandalagsins. PRESSAN náði tali af honum á millifunda ígœr. „Þetta varaflugvallarmál er í athugun í utanrík- isráðuneytinu. Þeirri athugun er ekki lokið og sú skoðun beinist að því að ganga úr skugga um hvort um nokkur skilyrði sé að rœða varðandi stjórn- un eða nýtingu varaflugvallar á friðartímum í tengslum við mannvirkja- sjóð Atlantshafsbandalagsins, “ segir hann í samtali við PRESSUNA. lega að öllu leyti. Aftur á móti telja margir fullvíst að bandaríski herinn hafi langtum meiri áhuga á Húsa- vík en Meistaravík. Ástæðan er fyrst og fremst veðurskilyrði, því þegar Keflavíkurflugvöllur er lok- aður eru litlar líkur á að Húsavík sé jafnframt lokuð vegna veðurs, en veður eru öll vályndari í Meistara- vík. Skv. áreiðanlegum heimildum mun sá möguleiki einnig vera fyrir hendi að Bandaríkin hafi áhuga á að byggja flugvöll á Grænlandi sem verði í raun herstöð á friðartímum. Á Húsavík verði þá varaflugvöllur fyrir bæði Keflavíkurherstöðina og herstöð á Austur-Grænlandi. í grænlenskum fjölmiðlum hefur því hins vegar verið haldið töluvert á loft að beiðni NATO um varaflug- völl þar sé í raun til komin til að þrýsta á íslendinga. ÆFINGAFLUG VID VÖLLINN í áratugi hefur verið uppi um- ræða um varaflugvöll fyrir milli- landaflug og hefur NATO og eink- um Bandaríkjaher í síauknum mæli sýnt áhuga á að slíkur flugvöllur gæti einnig sinnt hernaðarþörfum. Síðastliðið vor skilaði sérstakur starfshópur skýrslu sinni um vara- millilandaflugvöll. Farið hefur ver- ið með þessa skýrslu sem trúnaðar- mál þar til fyrir nokkrum dögum að samgönguráðherra lét koma henni í dreifingu. í skýrslunni er fjallað um úttekt á aðflugsskilyrðum, veður- fari, aðstöðu til mannvirkjagerðar og umhverfismálum. Þar er fyrst og fremst miðað við þarfir flugvallar, sem hefði 3 þús. metra langa flug- braut og gæti hann bæði sinnt þörf- um alþjóðlegs áætlunar- og leigu- flugs, svo og herflugs. Mælti starfs- hópurinn með Húsavík í þessu sam- bandi. í skýrslunni er miðað við þarfir NATO, enda var starfshópurinn til kominn í beinu framhaldi af við- ræðum sérstakrar viðræðunefndar sem átti í könnunarviðræðum við Atlantshafsbandalagið um þetta mál. Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra hefur að undanförnu „Þetta tekur nokkurn tíma í und- irbúningi, svo ekki er að vænta ákvarðana um það í bráð,“ segir hann. Ráðherra segir jafnframt að sú kostnaðartala upp á 11 milljarða króna sem hann hefur varpað fram vegna byggingar vallarins byggist á lauslegri kostnaðaráætlun. „Spurningin sem við þurfum að svara núna er einfaldlega þessi: Viljum við fyrir okkar leyti heimila að fram fari svokölluð forkönnun á málinu. Það er nú þegar ákveðið að slík könnun fari fram í Grænlandi. Hún er óskuldbindandi." — Þrýstir það mál á Islendinga um að taka ákvörðun um forkönn- un? „Ekki út af fyrir sig, vegna þess að það liggur fyrir að ef við föll- umst ekki á að þessi forkönnun fari fram þá verður málið látið niður falla að því er ísland varðar og verk- efnið hverfur bara úr landi.“ • — Brýtur það ekki í bága við stjórnarsáttmála að þessu máli skuli vera haldið í athugun? „Að sjálfsögðu ekki. Það liggur alveg ljóst fyrir að hér er ekki um neina hernaðarframkvæmd að ræða. Hér er um að ræða mann- virki sem er í einu og öllu á ábyrgð og undir stjórn íslenskra aðila við venjulegar kringumstæður. Aróðurinn gegn málinu hefur fyrst qg fremst verið sá að hér sé á ferðinni einhver dulbúin herstöð. Það er alrangt. Hér er um að ræða mannvirki sem er nauðsynlegt, hver svo sem kostar það og framkvæmir, fyrir íslenskt millilandaflug. Það er aðkallandi og brýnt af öryggis- ástæðum. Það liggur ljóst fyrir að jafnvel þótt mannvirkjasjóður NATO kæmi ekki inn í myndina þá yrðum við að gera sömu kröfur til þess að því er varðar tæknileg at- riði.Það yrði að öllu leyti undir ís- lenskri stjórn, íslenskri flugmála- stjórn og stjórn íslenskra yfirvalda og mannað af íslendingum. Einu skilyrði mannvirkjasjóðsins varða stríðstíma og við vitum öll hvað gerist á stríðstímum.“ — Munu íslendingar þá bera rekstrarkostnaðinn við völlinn? „Trúlega. “ — Verður þetta mál á dagskrá í ferð þinni þarna í Brussel? „Ekki umfram það að afla frek- ari upplýsinga.“ — Hefurðu sett þér einhver tímamörk í málinu? „Þetta mál verður úr sögunni næsta haust ef íslensk stjórnvöld sinna því ekki, hvort sem það fer í hendur Dana eða annarra."

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.