Íslendingaþættir Tímans - 27.10.1971, Blaðsíða 24

Íslendingaþættir Tímans - 27.10.1971, Blaðsíða 24
ekki stundað i'ðnnám. Litlu síðar en þau Ludvig og Elísabet brugðu búi, fluttu þau til Skagastrandar og áttu þar heima til ársins 1968 en fluttu þá til Reykjavíkur. Á Skaga sti’önd annaðist Ludvig rekstur Sjúkrasamlags Höfðahrepps. Mikilli starfsævi er lokið. En það er hyggja mín, að Ludvig K 'ip hefði aldrei komizt yfir að \inna öll þau margvíslegu störf, sem hann vann um dagana, hefði honum ekki hlotnazt sú gifta, sem hann hlaut í lífsförunaut sínum, Elísabetu Stefánsdóttur. Elísabet er frábær kona að allri gerð. Skörungsskapur hennar, glæsi- mennska og dugnaðar er víðkunn ur. Það ræður líkum. að það kom í hennar hlut í löngum fjarvistum bónda hennar að veita forsjá bú- skap þeirra og stjórna mannmörgu heimili, naut hún þó vissulega góðra verka fósturforeldra Lud- vigs og síðar barna sinna, er þau lcomust á legg. Illugastaðaheimilið var í tíð þeirra Ludvigs og Elísa betar mörgum kunnugt. Illugastað ir lágu í fjölfarinni þjóðbraut milli Skagafjarðar og Húnaþings. og margur ferðamaðurinn og gangna- maðurinn naut þar hvíldar og að hlynningar. Þau Ludvig og Elísabet eignuð ust níu börn og lifa sjö þeirra. Elzti sonurinn, Júlíus skipstjóri og sá næstyngsti, Aðils bygginga- meistari, létust báðir á s.l. ári, löngu fyrir aldur fram. Þau Illuga staðahjón áttu miklu barnaláni að fagna, því að öll eru börn þeirra búin miklum mannkostum, gjörfu leik og dugnaði. Barnabörnin eru nú 98 að tölu oe börn þeirra 15. Við, sem kynntumst Ludvig Kemp, eigum um hann margar, góðar og skemmtilegar minningar. Hann var prýðilega greindur mað ur, fjölfróður og frásagnaglaður. Hann hafði mikið yndi af allri per- sónusögu og ættfræði og kunni skil á fjölmörgum mönnum og ætlum þeirra. Allur íslenzkur fróðleikur vai honum hugleikinn. Greinar þess efnis hafa nokkrar birzt eftir hann á prenti og út hefur komið frá hans hendi bókin Slysfarir í Skefilsstaðahreppi. Mest mun þó af fróðleik þeim, sem Ludvig safn aði, liggia í handritum og hafði hann ánafnað og afhent Sögufé lagi Skapfirðinga syrpur sínar. Hann hafði mikinn áhuga á störf- um þess félags og góðan hug bar hann í hverju einu til héraðs okk ar, enda var starfsvettvangur hans hér lengstur og hér heima í Skaga- firði kaus hann að bera beinin að ævidegi liðnum. Ludvig Kemp var maður hag mæltur og orti allmikið, og hafa sumar lausavísur hans orðið land- fleygar, og nokkuð af kveðskap hans hefur verið prentað svo sem í Austfirzkum ljóðum, sem út komu fyrir nokkrum árum. .Minningar þær, sem ég á um Ludvig Kemp, eru mér allar góð- ar. Hann kom oft á bernskuheim- ili mitt og var þar aufúsugestur. í kringum hann ríkti glaðværð og á umræðuefnum varð ekki þrot. Ég minnist með þakklæti þess vinarþels og tryggðar, sem ríkti milli heimilisins í Hvammi og 111 ugastaðaheimilisins og með enn meira þakklæti minnist ég þess þegar Ludvig Kemp greiddi götu mína á skólaárum mínum og tók mig í vinnu, sem enganv°ginn lá þá á lausu. Ludvig var tryggur vin ur vina sinna. Honum fylgja marg- ar og hlýjar kveðjur og blessunar óskir yfir skil heimanna tveggja. Ég bið þessum aldna vini mín um fararheilla. Konu hans og börn- um sendi ég kveðjur mínar með bæn um blessun Guðs þeim til handa. Gunnar Gíslason. t Ludvig R. Kemp andaðist að heimili sínu í Reykjavík hinn 30. júlí s.l. Hann var jarðsettur á Sauð árkróki 7. ágúst. Ludvig R. Kemp fæddist í Vík urgerði í Fáskrúðsfjarðarhreppi 8. ágúst 1889. ^ Foreldrar hans voru Stefán Árnason, síðar bóndi á Ásunnar- stöðum í Breiðdalshreppi, og kona hans Helga Ludvigsdóttir Kemp, en ætt sína rakti hún til Þýzka lands og er nafnið Kemp þaðan komið. Hann stundaði nám við Flensborg arskólann og lauk gagnfræðaprófi þaðan 1909. Þá settist hann í Verzl unarskól íslands og lauk þaðan prófi 1911. Hann kvæntist 30. maí 1912, Elísabetu Stefánsdóttur frá Jórvík í Breiðdalshreppi. Þau bjuggu um skeið að Hafragili í Laxárdal í Skagafjarðarsýslu en fluttu 1916 að Illugastöðum í sömu sveit og bjuggu þar í 31 ár, þar til þau fluttu til Akureyrar. Á Skagaströnd bjuggu þau frá 1949 til 1969 og veitti Kemp þar sjúkrasamlagi byggðarlagsins for stöðu. Árið 1969 fluttust þau til Reykja víkur, en þar voru þá þrjú af börn um þeirra búsett. Ludvig Kemp var auk þess verk stjóri á sumrum við vega og hafn- argerð um þriggja áratuga skeið, þar til hann fluttist til Skaga- strandar. Með Ludvig Rudolf Kemp, eða „Kemp“, eins og hann var ávallt kallaður á uppvaxtarárum mínum í Skagafirði, er horfinn af sjónar- sviðinu fágætur maður, sem varð minnisstæður öllum þeim stóra hópi, sem kynntist honum eitt hvað, mikið eða lítið. Sem vegavinnuverkstjóri hafði hann allnáin tengsl við stóran hcp manna af ólíkustu manngerðum. Skopskyn og smitandi íslenzk gam ansemi ásamt einstæðum tökum hans á íslenzku máli, gerðu vist- ina í vegavinnubúðunum skemmti lega og fræðandi fyrir þá, sem yndi höfðu af íslenzku vísunni og hnyttilega sagðri sögu, en Kemp var ótrúlega fjölfróður um sögu þjóðarinnar og bókmenntir, auk þess sem hann hafði á reiðum hönd um gnægð af kenningum forns kveðskapar. Það var því eðlilegt, að sjálfsgagnrýnin forðaði flestum frá því að láta eigin kveðskap heyr ast, ef einhver var, en til voru þeir, sem ótrauðir stunduðu sína vísnasmíð, og það af auknum krafti. Við hirð Kemps, en svo var vinnuflokkurinn stundum nefnd- ur í gamni, vildu stundum „horn skella á nösum og hnútur fljúga um borð“, eins og forðum hjá Goð mundi á Glæsivöllum, en sá var þó munurinn, að hirðmenn Kemns komust ekki hjá því að finna góð vildina og umhyggjuna, sem hann bar fyrir öllum, undir hinu glettna yfirborði, og því mun enginn hafa skilið við hirð hans „kalinn á hjarta“, eins og Grímur Thomsen lætur menn sleppa úr höll Goð- myndar. Svipað var þessu farið í hérað inu. Vísur hans og kvæði flugu með vindinum og vöktu bæði hrifn ingu og hneykslun í senn, eins og kvæði Þorsteins Erlingssonar gerðu á sínum tíma. 24 fSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.