Íslendingaþættir Tímans - 18.05.1974, Blaðsíða 9

Íslendingaþættir Tímans - 18.05.1974, Blaðsíða 9
Steinunn Briem Hinn 26. febrúar andaðist i Kaupmannahöfn Steinunn Sigriður Briem, dóttir hjónanna Sigriðar Skúladóttur, Árnasonar læknis, og Eggerts P. Briem, sem bæði eru landskunnra, merkra og traustra ætta. Með fráfalli Steinunnar brotnaði fögur grein af gömlum stofni. Steinunn var elzt barna sinna ágætu foreldra. Skarpar gáfur hennar komu snemma i ljós og eigi siður, að henni var i blóð borin djúp þrá til alls, sem fagurt er og göfugt i lifinu, og var að þeim miklu mannkostum, sem komu i ljós hjá henni ungri, hlúð af miklu ást- riki i föðurgarði. Ung að árum hóf hún nám i tónlist- arskólanum i Reykjavik og var hún i skólanum árin 1946-52, og framhalds- tónlistarnám stundaði hún i Royal Academy of Music i Lundúnum 1952- 1955 og hjá Maestro Rodolfo Caporall i Rómaborg 1955-59. Hélt hún pianótónleika þar 1957, 1958 og 1959, og einnig hér i bænum og á Akureyri (1957 og 1960). Pianókennslu stundaði hún um skeið. Ahugi Steinunnar fyrir fögrum bókmenntum kom einnig snemma i ljós, og las hún mikið, einkum sigild rit heimskunnra höfunda, og flest þeirra á frummálum, en hún var mikill mála- maður, átti mikið og gott bókasafn, og bera hinar ýmsu þýðingar hennar úr erlendum málum vitni um það, og það, mun eigi ofmælt, að hún hafi bæði talað og ritað þau mál, sem hún lagði stund á, afburða vel. Hún var gædd ágætri frásagnargáfu og still hennar var aðlaðandi, flekklaus og fagur. Meðal bóka þeirra, er hún þýddi, eru: Yogaheimspeki, Fullnuminn og Fulluminn vestan hafs. Hafði hún mik- inn áhuga á heimspekilegum efnum og guðspeki og las mikinn fjölda slikra rita og kynnti sér rækilega skoðanir hinna beztu manna, er um slik efni rit- uðu. Eigi get ég hér allra þeirra bóka, sem Steinunn þýddi, en minnast vil ég með fáum orðum Svipmynda hennar, eða viðtala, en það er mikið verk i tveimur bindum. Um þetta verk skrif- aði ég i Timann á sinum tima og sagði m.a.: „Steinunn kallar sjálf viðtölin svipmyndir, og að visu er brugðið þar upp svipmyndum úr lifi nútimafóíks og nútimalifi, en svo samvizku- samlega og vel unnin eru viðtöl hennar, að engum getur dulizt varan- legt gildi þeirra”. Svipmyndir komu út 1966 (fyrra bindið) og hið siðara (Myndbrot) 1969. Barnabækurnar, sem Steinunn örfáar hendingar ætlum við að afmælisbarninu festa á blað, hamingjuóskirnar heils hugar ljá hylla þig sjötuga vordögum á. Ung ertu enn þó að aldur sé hár, ennþá svo verður um komandi ár vori um nafn þitt ég tengi mitt tal þá tið kanntu að meta og blómanna val. Við almennar vinsældir veit ég þú býrð, i verkum og háttum er saga þin skýrð, sveitungar gamlir allir sem einn ótvirætt vita, að þinn skjöldur er hreinn. þýddi, eru gulls igildi, og hlotnaðist henni mikil og verðskulduð viðurkenning fyrir þær þýðingar, enda eru þær frábærar. Og ég skildi það betur, hverri fullkomnun hún hafði náð, er hún eitt sinn sagði mér, að hún læsi Þúsund og eina nótt áriega til þess að bæta og fegra stil sinn. Steinunn gerðist starfsmaður Visis 1963. Tókst þá með okkur einlæg, traust vinátta, sem aldrei féll neinn skuggi á og hélzt, þótt haf skildi á milli tvöseinustu árin, og þetta ersagteinnig með tilliti til hinnar miklu andlegu auðlegðar hennar, sem hún miðlaði mér af á mörgum ógleymanlegum viðræðustundum. Mérbarst sorgarfregnin um andlát hennar, er ég var staddur austanfjalls á slóðum, þar sem hún dvaldist barn á sumri hverju, en ég áður sumarlangt á unglingsárum, og áttum bæði þaðan góðar minningar, sem urðu nánast sameiginlegar og stundum bar á góma okkar i milli — og þeirra og annarra var nú gott að minnast þar, og gott til þess að hugsa að geta notiö yls þeirra og bjarma óstigin spor. AxelThorsteinsson Af mörkum þú hefur til menningar lagt mæta vel staðið þinni á vakt. Traustsins þú nýtur, við verðum þess vör að velferð og hollustu greiðir þú för. Þó halli degi og hausti nú að og hverfi sól úr hádegisstað, löngum finnst birta leika um þann, sem langt umfram skyldu þjóð sinni vann. Hér enginn er lifsferill leiddur i ljós, þér litið er gefið um heiður og hrós. Við viljum það vona þér gangi allt i vil og vorið þig umvefji birtu og yl. Óskar Guðlaugsson Sjötug: Guðbjörg H. Árnadóttir Steinsstöðum Arnað heilla íslendingaþættir 9

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.